Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.1990, Blaðsíða 11

Læknablaðið - 15.09.1990, Blaðsíða 11
LÆKNABLAÐIÐ 1990; 76; 329-33 329 Hjalti Kristjánsson 1), Jóhann Ág. Sigurðsson 1), Guðjón Magnússon 1), Leif Berggren 2) SKOÐANIR LÆKNA Á STARFSSVIÐUM SÉRGREINAII Heildræn yfirsýn og óvinsæl viöfangsefni ÁGRIP Á síðustu árum hefur orðið mikil fjölgun lækna í vissum sérgreinum, meðal annars í heimilislækningum. Með aukinni sérmenntun telja heimilislæknar að þeir eigi að sinna vissum verkefnum sem áður hafa verið í höndum annarra sérfræðinga. Þetta hefur leitt til nokkurrar óvissu um það hvað sé sjúklingum fyrir bestu og deilna innan stéttarinnar um verkaskiptingu. Þessi grein er önnur í röðinni af fimm um skoðanir lækna á starfssviðum sérgreina og tilhneigingu til vallhöslunar (non-physical territorial behaviour) (1,2,3). Hér verður einkum fjallað um heildræna yfirsýn og afstöðu til óvinsælla verkefna. INNGANGUR í heimilislækningum er lögð á það áhersla að greina vandamál sjúklinga samtímis í líkamlegu, geðrænu, félagslegu og sálrænu samhengi (holistic view) (4,5). Bent hefur verið á, að þessi áhersla á heildaryfirsýn vandmála sé ekki einskorðuð við heimilislækningar, heldur eigi við um aðrar greinar læknisfræðinnar (6). Til þess að athuga þessi atriði nánar voru settar fram eftirfarandi tilgátur: * Fagfélögin hafa ólíkar viðmiðanir að leiðarljósi við úrlausn viðfangsefna. * Fagfélög vilja ógjaman fást við þau verkefni sem eru »minna« metin í samfélaginu og leitast við að beina þeim til annarra (2). EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Árið 1988 var sendur út spumingalisti með 65 spumingum til 185 lækna í sjö sérgreinum. Frá 1) læknadeild Háskóla íslands / heimilis- og félagslæknisfræöi, 2) Nordiska Hálsovárdshögskolan, Gautaborg. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Jóhann Ag. Sigurðsson. Table I. Total agreement scores for different specialities and statistical comparisons for statements Q1 and in fig 1 (Q2), fig 2 (Q16), fig 3 (Q23), fig 4 (Q30) and fig 5 (Q36). Agreement scores Q1 Q2 Q16 Q23 Q30 Q36 General Practitioners 98 89 82 73 76 71 Pediatricians 89 66* 26* 43* 26** 51 Geriatricians 100 69 56 25* 25** 44 Gynaecologists 95 62** 44* 54 24** 61 Psychiatrists 100 75 54* 56 41** 51 Oto-laryngologists .. 86 63* 47* 45* 32** 73 Internists 88 65* 35* 33* 30** 60 *p<0,05, **p<0,01 compared to General Practitioners. Heimtur í heild vom 81%. Efnivið og aðferðum hefur áður verið lýst (1). Við tölfræðilegan samanburð var notað kí- kvaðratpróf (p<0.05 var talið gefa marktækan mun). NIÐURSTÖÐUR Heildrœn yfirsýn (holistic view). Læknar vom almennt sammála, að ekki sé síður mikilvægt við meðferð sjúklinga að skoða vandamál þeirra frá sálrænu og félagslegu sjónarmiði en líffræðilegu (tafla I, Ql). Þó var marktækur munur á stigagjöf háls-, nef- og eymalækna annars vegar og heimilislækna hins vegar. Á myndum 1-5 sést nánar álit lækna á því, hvort heildræn yfirsýn sé álíka mikilvæg eða mikilvægari en sérþekking í einstökum sérgreinum. Eins og sjá má á mynd 1 leggja heimilislæknar meiri áherslu á umhverfi og lifnaðarhætti en sérþekkingu, þegar læknar vilja stuðla að heilbrigðara lífemi sjúklinga. Mynd 2 sýnir skoðanir lækna á mikilvægi þekkingar á umhverfi og félagslegum aðstæðum bama borið saman við sérþekkingu á bamasjúkdómum í ungbamaeftirlitinu. Heimilislæknar leggja sem fyrr meiri áherslu á félagslegar aðstæður en aðrar sérgreinar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.