Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.09.1990, Side 23

Læknablaðið - 15.09.1990, Side 23
LÆKNABLAÐIÐ 341 og þjónar fyrst og fremst hagsmunum hans. Læknir kann því að þurfa að vísa sjúklingi til annars starfsbróður síns til áframhaldandi meðferðar ef það er hagsmunum sjúklings fyrir bestu. A þess háttar tilvik reyndi í einum dómi Hæstaréttar frá árinu 1987 (Hrd. 1987, 1168). Leitað var til slysadeildar sjúkrahúss með 11 ára telpu eftir að hún hafði misst tvær framtennur og laskað sex aðrar. Onnur framtönnin mun hafa losnað en hin datt úr og mun hún hafa verið meðferðis á slysadeildina. Þar var gert að meiðslum telpunnar. Þó var framtönnunum ekki komið fyrir og ráðlagði læknir deildarinnar, að farið yrði með hana til tannlæknis daginn eftir. Að áliti sérfróðra meðdómenda var álitið að læknirinn hefði átt að koma framtönnunum fyrir í tannholunum og kalla síðan á tannlækni. Taldar voru verulegar líkur að með því hefði mátt græða framtennurnar í. Var tjónið rakið til vanrækslu læknisins og eigandi sjúkrahússins dæmdur skaðabótaskyldur. Jafnframt er mikilvægt við val á læknismeðferð að leitað sé samþykkis sjúklings einkum ef um er að tefla meiri háttar meðferð, til dæmis skurðaðgerð og sjúklingur er fær um að taka sjálfur ákvörðun um hvort hann gangist undir aðgerðina eða ekki (5). En til að sjúklingur geti gefið samþykki af fúsum og frjálsum vilja verður hann að hafa fengið ítarlegar upplýsingar um hina fyrirhuguðu aðgerð og þær hættur sem henni kunna að vera samfara. Þótt mikilvægt sé að afla samþykkis sjúklings áður en meðferð hefst má skortur á samþykki ekki leiða til þess að nauðsynleg aðgerð dragist úr hömlu þannig að heilsufarslegir hagsmunir kunni að vera í húfi. Kann þetta einkum að eiga við, ef engin ástæða er til að ætla að meðferð yrði hafnað. í dómi Hæstaréttar íslands frá febrúar síðastliðnum (Hrd. 8.2.1989) er meðal annars fjallað um skyldu læknis til skjótrar ákvörðunar um val á læknismeðferð þegar um líf eða dauða er að tefla. Þunguð kona kom síðla dags inn á fæðingardeild sjúkrahúss til að fæða bam sitt. Við skoðun sást að lega fóstursins var óregluleg og röntgenmyndataka sýndi að fóstrið lá þvert í móðurkviði. Gerði læknir svonefnda »ytri vendingu«. Um kvöldið féll naflastrengur fram með þeim afleiðingum að lífsamband fóstursins við fylgjuna rofnaði. Eftir það fékk fóstrið ekki súrefni um naflastrenginn. Að sögn konunnar hugðist læknirinn í fyrstu framkalla fæðingu með sogklukku, en frá því hafi verið horfið. Tuttugu og átta mínútum eftir að naflastrengurinn féll fram var konan svæfð fyrir keisaraskurðaðgerð og þannig náðist bamið út 5 mínútum síðar, en hafði þá skaddast á heila og lést síðar. Dánarbú bamsins og foreldrar þess höfðuðu skaðabótamál á hendur eigenda sjúkrahússins. Héraðsdómur, sem skipaður var einum löglærðum dómara og tveimur læknum, áleit ekkert benda til að fóstrið hafi skaddast á meðgöngutíma. Héraðsdómarar töldu líklegt, að bamið hafi orðið fyrir súrefnisskorti við það að naflastrengur féll fram eða eftir það, þar til það var tekið með keisaraskurði 33 mínútum síðar. Héraðsdómur taldi ósannað, að læknirinn hefði gert allt sem hann gat til að ná baminu út á sem skemmstum tíma eftir að naflastrengurinn féll fram. Segir í dóminum að við þessar aðstæður verði læknir að meta í skyndi hvaða aðgerð sé vænlegust til að ná bami út á sem skemmstum tíma og með minnstri áhættu. Viðbrögð læknis þurfi að vera markviss og ákveðin. Ætla megi að tíminn frá því að naflastrengurinn féll fram þar til konan var svæfð fyrir keisaraskurð kunni að hafa skipt sköpum um ástand bamsins og líkur þess til að komast óskaddað úr fæðingunni. Sönnunarbyrði um ofangreind atriði var felld á eiganda sjúkrahússins og hann dæmdur skaðabótaskyldur vegna tjónsins. I Hæstarétti var niðurstaða héraðsdóms um bótaskyldu staðfest. II. 5. Hœfi lœknis Þegar tiltekin meðferð hefur verið ákveðin er mikilvægt að hún sé framkvæmd af lækni sem til þess er hæfur. Að öðmm kosti er viðbúið að læknir sem meðferðina annast baki sér bótaábyrgð og eftir atvikum sá læknir sem undir venjulegum kringumstæðum hefði átt að annast hana og var til þess hæfur. Til er norskur Hæstaréttardómur (Rt. 1962, 944), þar sem aðstoðarlæknir skaddaði andlitstaug í sjúklingi, sem gekkst undir aðgerð vegna kýlis. Bæði yfirlæknir og aðstoðarlæknir voru taldir hafa hagað sér á óforsvaranlegan hátt. Aðstoðarlæknirinn var ekki hæfur til að framkvæma aðgerðina og yfirlæknirinn, sem vissi að aðstoðarlæknirinn ætlaði að framkvæma aðgerðina, fór af sjúkrahúsinu áður en aðgerðin hófst.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.