Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1991, Blaðsíða 21

Læknablaðið - 15.01.1991, Blaðsíða 21
LÆKNABLAÐIÐ 1991; 77: 13-8 13 Helga Erlendsdóttirl), Einar Thoroddsen2), Siguröur Stefánsson2), Magnús Gottfreössonl), Haraldur Briem1,3), Siguröur Guömundssonl ,3) MIÐEYRNABÓLGA - ORSAKIR OG FORSPÁRGILDI NEFKOKSRÆKTUNAR ÚTDRÁTTUR Miðeymabólga (otitis media) er einn algengasti kvilli sem böm hrjáir, og benda erlendar og nýleg hérlend rannsókn til að við þriggja ára aldur hafi um 65-70% bama fengið bráða miðeymabólgu a.m.k. einu sinni. Engar kannanir hafa hins vegar farið fram á orsökum sjúkdómsins hér á landi og var því athugun þessi gerð. Jafnframt var leitast við að meta forspárgildi ræktunar frá nefkokssýni um sýkingarvalda í miðeyra. Til rannsóknarinnar völdust 159 böm á aldrinum sex mánaða til tólf ára (meðalaldur tvö ár) sem leituðu til háls-, nef- og eymadeildar Borgarspítala á tímabilinu nóvember 1988 til janúar 1990 vegna bráðrar miðeymabólgu. Var rannsókn þessi hluti af samanburðarrannsókn á amoxicillíni og lóracarbef og var gerð í samvinnu við lyfjafyrirtækið Eli Lilly & Co. Greining var staðfest með klínískri skoðun og var sýni tekið til ræktunar með ástungu á hljóðhimnu (tymphanocentesis) í öllum tilvikum (á báðum eyrum í 35 tilvikum). Jafnframt var tekið sýni úr nefkoki 148 barna. »Jákvætt« strok frá nefkoki var skilgreint sem sýni er úr óx sami sýkill og frá ástungu á hljóðhimnu. Reiknað var næmi (sensitivity), sértæki (specificity), jákvætt og neikvætt forspárgildi fyrir þessi tengsl. Eru hér eingöngu kynntar niðurstöður bakteríuræktana. Frá 75 af 159 miðeymasýnum (47%) uxu 84 sjúkdómsvaldar og skiptust eftir tegundum sem hér segir: S. pneumoniae (41%), H. influenzae (38%), B. catarrhalis (7%), S. aureus (4%), S. pyogenes (1%), peptococcus (1%), Gram-neikvæðir stafir/aðrir (7%). Af H. influenzae stofnum framleiddu 9 (28%) /3-lactamasa en hinsvegar allir B. catarrhalis stofnanna. Tilvist sýkils í nefkoki sagði lítt Frá 1) sýklarannsóknadeild, 2) háls-, nef- og eyrnadeild, 3) lyflækningadeild Borgarspítala. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Siguröur Guömundsson. fyrir um tilvist sama sýkils í eyra, og var jákvætt forspárgildi þegar litið var til allra sýkla einungis 45%. Fyrir S. pneumoniae reyndist jákvætt forspárgildi vera 29%, fyrir H. influenzae 36% og fyrir B. catarrhalis 8%. Algengustu orsakir bráðrar miðeymabólgu í þessari rannsókn voru S. pneumoniae og /7. influenzae og er það í samræmi við aðrar kannanir. Jákvætt forspárgildi nefkoksræktana er lítið og gagnslaust við orsakagreiningu sjúkdómsins. Kjörmeðferð bráðrar miðeymabólgu hefur að dómi flestra verið penicillín eða ampicillín og skyld lyf. í þessari rannsókn reyndust hins vegar 27% greindra stofna vera ónæmir fyrir þessum lyfjum og bar þar mest á H. influenzae og B. catarrhalis er framleiddu /3-lactamasa. Virðist því ef til vill ástæða til að huga að öðrum lyfjum við upphafsmeðferð miðeyrnabólgu, t.d. trímetóprím-súlfametoxazól (Primazol®, Bactrim®, Sulfotrim®) eða amoxicillín- clavúlanat (Augmentin®), a.m.k. til handa mjög veikum bömum. INNGANGUR Miðeymabólga (otitis media) er einn algengasti kvilli sem böm hrjáir. Benda erlendar (1,2) og nýleg hérlend rannsókn (3) til að við 12 mánaða aldur hafi um 50% bama og við tveggja og þriggja ára aldur um 65-70% bama fengið bráða miðeymabólgu a.m.k. einu sinni. Engar kannanir hafa farið fram á orsökum sjúkdómsins hér á landi, en bæði austan hafs og vestan hafa þeim verið gerð góð skil í mörgum rannsóknum á undanförnum áratugum (4). Bera þar hæst Streptococcus pneumoniae og Hemophilus influenzae, en á eftir fylgir Streptococcus pyogenes auk Branhamella catarrhalis á sumum svæðum. Því kann að virðast að verið sé að bera í bakkafullan lækinn þegar gerð er sérstök athugun á orsökum miðeymabólgu hér á landi. Hins vegar framleiða um 8-12%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.