Læknablaðið - 15.01.1991, Blaðsíða 53
LÆKNABLAÐIÐ
43
fjárveitingar svo það gæti orðið. Ráðið á
að samræma rannsóknir og fræðslu á sviði
manneldismála, koma á samstarfi milli
neytenda og framleiðenda og vera ráðunautur
ráðherra um manneldismál. Síðustu tvö ár
hefur verið samstarf milli ráðuneytisins og
manneldisráðs um skipulag og framkvæmd
neyslukönnunar fyrir landið, sem lýkur
á næsta ári. I manneldisráði skulu sitja
menn með sérþekkingu á manneldismálum.
Formaður manneldisráðs er Snorri P.
Snorrason, læknir.
11.5 Eiturefnanefnd starfar í samræmi við lög
um eiturefni og hættuleg efni. Sex menn sitja
í nefndinni og skulu þeir hafa sérmenntun
í eiturefnafræði, lyfjafræði, efnafræði,
efnaverkfræði og heilsufræði. Hlutverk
nefndarinnar er að veita upplýsingar um
meðferð eiturefna og hættulegra efna og gera
tillögur um röðum efna á lista eftir skaðsemi
og notkunarsviði. Ráðherra staðfestir tillögur
nefndarinnar. Formaður eiturefnanefndar er
Þór Sigþórsson, lyfjafræðingur.
11.6 Tóbaksvarnanefnd starfar samkvæmt
lögum um tóbaksvamir og hefur það
hlutverk að vera opinberum aðilum til
ráðuneytis um tóbaksvamir og gera tillögur
um ráðstafanir til að vinna gegn neyslu
tóbaks. Tóbaksvamanefnd gerir tillögur til
ráðherra um ráðstöfun fjár til tóbaksvama en
til þeirra rennur 2 o/oo af brúttósölu tóbaks.
Formaður tóbaksvamanefndar er nú Egill
Heiðar Gíslason.
11.7 Afengisvarnaráð fer samkvæmt
áfengislögum með umsjón áfengisvama
í landinu og er áfengisvamanefndum
sveitarfélaga til ráðgjafar og leiðbeiningar.
Alþingi kýs fjóra menn í ráðið en formaður
ráðsins er áfengisvamaráðunautur ríkisins,
Olafur Haukur Amason.
12. SKÓLAR HEILBRIGÐISSTÉTTA
Enda þótt menntunarmál heilbrigðisstétta
séu verkefni menntamálaráðuneytis hefur
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti enn
umsjón með fjómm skólum heilbrigðisstétta.
Einn þeirra, Sjúkraliðaskóli Islands, sem
rekinn hefur verið í rúmlega 10 ár verður
lagður niður síðar á þessu hausti þar eð
menntun sjúkraliða hefur verið flutt í
fjölbrautarskóla.
Hinir skólamir sem ráðuneytið rekur eru:
12.1 Lyfjatæknaskóli Islands: Hlutverk
Lyfjatæknaskólans er að tæknimennta
aðstoðarfólk við lyfjagerð og lyfjaafgreiðslu.
Ríkið rekur skólann í samvinnu við
Apótekarafélag íslands. Námstími er þrjú
ár. Skólastjóri er nú Sigrún Valdemarsdóttir,
lyfjafræðingur. Formaður skólanefndar er
Ingólf J. Petersen, skrifstofustjóri í heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytinu.
12.2 Ljósmæðraskóli íslands: Skólinn
er rekinn í tengslum við fæðinga- og
kvenlækningadeild Landspítala. Skólastjóri
er yfirlæknir kvennadeildar og yfirljósmóðir
aðalkennari. Tilgangur námsins er að veita
menntun til að gegna ljósmæðrastörfum.
Námið tekur eitt til tvö ár. Nú þarf
hjúkrunarfræðingspróf til að komast inn í
Ljósmæðraskólann. Stjómamefnd ríkisspítala
er stjóm skólans. Skólastjóri er Gunnlaugur
Snædal, prófessor.
12.3 Þroskaþjálfaskóli íslands: Skólinn hefur
starfað í tæp 20 ár í núverandi mynd og er
hlutverk hans að mennta fólk til að annast
uppeldi, umönnun og þjálfun þroskaheftra.
Námstími er þrjú ár. Skólastjóri er Bryndís
Víglundsdóttir og formaður skólanefndar er
Haraldur Ólafsson, dósent.
Á síðasta Alþingi var lagt fram fmmvarp
til laga um flutning þessara skóla til
menntamálaráðuneytis. Fmmvarpið náði ekki
fram að ganga.
13. RIT HEILBRIGÐIS- OG
TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIS
Enda þótt það hafi verið hlutverk landlæknis
að sjá um útgáfu heilbrigðisskýrslna og hann
hafi gefið út ýmis rit sem fylgirit þeirra hefur
ráðuneytið gefið út ýmis rit um heilbrigðismál.
Þessi eru helst eftir ámm:
1971: Tillögur og greinargerð með frumvarpi
til laga um heilbrigðisþjónustu.
1972: Heilbrigðisreglugerð.
1973: Rekstarhagræðing í Tryggingastofnun
ríkisins.
Lyfjasala og lyfjagerð.
Vistrýmisþörf heilbrigðisstofnana.
Fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir.
1974: Kvikasilfur í íslendingum.