Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.1991, Page 48

Læknablaðið - 15.01.1991, Page 48
38 LÆKNABLAÐIÐ umsjón með sóttvömum og vera leiðbeinandi við ónæmisaðgerðir. Ólafur Ólafsson er landlæknir. Hjá embætti landlæknis eru 7,25 starfsmannaheimildir. 4.4 Héraðslœknar: Fyrir gildistöku laga um heilbrigðisþjónustu vom héraðslæknr í 56 hémðum embættislæknar en jafnframt heimilislæknar. I lögunum, sem tóku gildi 1. janúar 1974, var í II. kafla gert ráð fyrir að landinu skyldi skipt í fimm læknishéruð. Með bráðabirgðaákvæði var þessum kafla laganna frestað en ákveðið að ráðherra skipaði einn lækni í hverju heilsugæsluumdæmi til að gegna embættisstörfum og skyldi hann jafnframt vera heilsugæslulæknir. Þetta fyrirkomulag gafst ekki vel og með breytingum á lögunum árið 1978 var ákveðið að læknishémð yrðu átta, að heilbrigðismálaráð störfuðu í hverju héraði undir stjóm héraðslæknis, en héraðslæknir skyldi áfram vera starfandi heilsugæslulæknir, nema í Reykjavík þar sem borgarlæknir yrði einnig héraðslæknir. Þetta fyrirkomulag hefur síðan haldist. Um næstu áramót er gert ráð fyrir að sú breyting verði, að héraðslæknisembætti í Reykjavík, Reykjaneslæknishéraði og Norðurlandshéraði eystra verði sjálfstæð embætti með auknum og breyttum verkefnum. Þar er einnig gert ráð fyrir að ráða héraðshjúkrunarfræðinga í héruð við hlið héraðslækna. Héraðslœknar eru nú: í Reykjavíkur- læknishéraði Skúli G. Johnsen, í Vesturlandslæknishéraði Halldór Jónsson, Akranesi, í Vestfjarðalæknishéraði enginn, í Norðurlandslæknishéraði vestra Friðrik Friðriksson, Sauðárkróki, í Norðurlandslæknishéraði eystra Ólafur H. Oddsson, Akureyri, í Austurlandslæknishéraði Stefán Þórarinsson, Egilsstöðum, í Suðurlandslæknishéraði Isleifur Halldórsson, Hvolsvelli og í Reykjaneslæknishéraði Jóhann Ágúst Sigurðsson, Hafnarfirði. 4.5 Hollustuvernd ríkisins: Um svipað leyti og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið var stofnað gengu í gildi lög um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit og Heilbrigðiseftirlit ríkisins var sett á stofn. Árið 1984 var starfsemin endurskoðuð, Hollustuvemd ríkisins stofnuð og Geislavamir ríkisins, sem áður hafði starfað sem sjálfstæð stofnun sett sem deild í Hollustuvemd. Hlutverk Hollustuvemdar ríkisins er að hafa eftirlit með því að landsmönnum séu tryggð sem heilsusamlegust lífsskilyrði. Almennt heilbrigðiseftirlit er hjá heilbrigðisnefndum sveitarfélaga en Hollustuvemd ríkisins er umsjónar-, eftirlits- og ráðgjafaraðili. Heilbrigðisnefndir eru nú 46 í sveitarfélögum eftir svæðum. Ný heilbrigðisreglugerð var sett á þessu ári og leysti af hólmi reglugerð um sama efni frá árinu 1972. Ný mengunarvamareglugerð, hin fyrsta sinnar tegundar hér á landi, var sett árið 1989. Nú starfar Hollustuvemd ríkisins í fjómm deildum, heilbrigðiseftirlitsdeild, rannsóknarstofu, eiturefnadeild og mengunarvamadeild og heyrir sú deild nú undir nýtt umhverfisráðuneyti þó stofnunin sem heild heyri undir heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti. Framkvæmdastjóri Hollustuvemdar ríkisins er Leifur Eysteinsson, viðskiptafræðingur. Formaður stjómar er Hermann Sveinbjömsson, aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra. Hjá Hollustuvemd em 32,3 starfsmannaheimildir, þar af fjórir verkefnaráðnir. 4.6 Geislavarnir ríkisins: Geislavamir ríkisins vom upphaflega sjálfstæð stofnun. Þær vom felldar undir Hollustuvemd ríkisins árið 1984 en skildar aftur frá Hollustuvemd árið 1986 og starfa nú að nýju sem sjálfstæð stofnun. Tilgangur Geislavama ríkisins er að gæta öryggis vegna geislunar frá geislavirkum efnum og geislatækjum. Síðustu ár hefur starfsemi Geislavama verið efld sérstaklega með tilliti til rannsóknarverkefna. Forstöðumaður Geislavama ríkisins er Sigurður M. Magnússon, kjameðlisfræðingur. Formaður stjómar er Magnús Magnússon, prófessor. Hjá Geislavömum em 5,5 starfsmannaheimildir. 4.7 Heyrnar- og talmeinastöð Islands: Heymar- og talmeinastöð íslands var stofnsett árið 1978 og er hlutverk hennar þjónusta við heymarskerta, sjúkdómsgreining málhaltra,

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.