Læknablaðið - 15.01.1991, Qupperneq 49
LÆKNABLAÐIÐ
39
skráning heymarskertra og málhaltra,
heymarmælingar og útvegun hjálpartækja
fyrir þessa hópa. Stofnunin hefur aðsetur
í Reykjavík en á að annast þjónustu við
landsbyggðina, m.a. með ferðum um landið.
Yfirlæknir Heymar- og talmeinastöðvar
Islands er Einar Sindrason, forstöðumaður
er Birgir Ass Sigurðsson, talmeinafræðingur.
Formaður stjómar er Ingimar Sigurðsson,
skrifstofustjóri í heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneyti. Hjá stöðinni eru 19
starfsmannaheimildir.
4.8 Sjónstöð Islands: Lög um þjónustu- og
endurhæfingarstöð sjónskertra gengu í gildi
l. janúar 1985. Tilgangur stofnunarinnar
er að efla þjónustu við sjónskerta með
sjúkdómsgreiningu, mælingum, útvegun
sérhæfðra hjálpartækja, þjálfun og
endurhæfingu. Stofnunin hefur starfað í náinni
samvinnu við Blindrafélögin.
Yfirlæknir Þjónustu- og endurhæfingarstöðvar
sjónskertra er Guðmundur Viggósson.
Formaður stjómar er Bessi Gíslason,
lyfjafræðingur. Hjá stöðinni eru 5,5
starfsmannaheimildir, þar af einn
verkefnaráðinn.
4.9 Tryggingaeftirlit ríkisins: Arið 1973 vom
sett lög um vátryggingastarfsemi og var þá
m. a. ákveðið að setja á stofn Tryggingaeftirlit
ríkisins. Tryggingaeftirlitið á að hafa eftirlit
og umsjón með vátryggingastarfsemi í
landinu og vera ráðgjafi ráðuneytisins um
allt er vátryggingar varðar. I upphaflegum
lögum var gert ráð fyrir sérstakri stjóm
fyrir þessari starfsemi en því var breytt árið
1978 og starfar stofnunin nú án stjómar.
Forstöðumaður er Erlendur Lámsson,
trygginga stærðfræðingur. Hjá eftirlitinu em
6,5 starfsmannaheimildir.
4.10 Lyfjaeftirlit ríkisins: Lyfjaeftirlit ríkisins
er sjálfstæð stofnun sem hefur formlegt
eftirlit með rekstri lyfjabúða, lyfjaheildsölu
og lyfjagerð og annast ýmis konar annað
lyfjaeftirlit. Forstöðumaður er Freyja Frisbæk,
lyfjafræðingur. Starfsmannaheimildir em 2,7
þar af 1,2 verkefnaráðnir.
4.11 At\’innuleysistryggingasjóður:
Atvinnuleysistryggingasjóður er vörslusjóður
þess fjár, sem ætlað er til atvinnuleysisbóta.
Ríkissjóður greiðir nú 3/4 og atvinnurekendur
1/4 til sjóðsins. Sjö manna stjóm fer með
málefni sjóðsins og er meirihluti kjörinn af
Alþingi en ASI tilnefnir tvo og VSÍ einn.
Ráðherra skipar formann úr hópi þingkjörinna.
Formaður sjóðstjómar er nú Daði Olafsson,
húsgagnabólstrari. Skrifstofustjóri er Eyjólfur
Jónsson, lögfræðingur.
5. VÁTRYGGINGASTARFSEMI
Enda þótt vátryggingastarfsemi sé ekki tengd
neinum öðmm verkefnum heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins hefur hún verið
á verkefnalista þess frá byrjun.
Fljótlega eftir stofnun ráðuneytisins var
hafist handa um að setja löggjöf um
vátryggingastarfsemi, en engin heildarlöggjöf
um þessa starfsemi var áður til. Hin nýju
lög tóku gildi 1. janúar 1974 og þá tók
Tryggingaeftirlit til starfa, svo sem annars
staðar er um rætt.
Lögin um vátryggingastarfsemi gerðu ráð fyrir
setningu reglugerða um nánari framkvæmd
laganna og starfsemi vátryggingafélaga og það
kom í hlut Tryggingaeftirlitsins næstu ár að
vinna að samningu reglugerða og gera tillögur
um þær til ráðuneytisins.
Endurskoðun laganna fór fram á árinu 1977
og 1978 og gildandi lög eru frá þeim tíma.
Það er almenn skoðun þeirra sem til þekkja
að setning laga um vátryggingastarfsemi og
starfsemi Tryggingaeftirlitsins hafi veitt aukið
aðhald að vátryggingastarfsemi og þar með
stuðlað að öryggi vátryggingataka.
Ráðuneytið veitir félögum heimild til að reka
vátryggingastarfsemi að fengnum tillögum
Tryggingaeftirlits. Vátryggingafélög sem leyfi
hafa til vátryggingastarfa hér á landi eru nú
27.
6. STARFSSTÉTTIR
í HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU OG
MANNAFLI
A síðustu tuttugu árum hefur markvisst
verið unnið að því að sérmenntað starfslið
í heilbrigðisþjónustu fái starfsréttindi með
sérstöku leyfi ráðherra. Lögvemduð starfsheiti
heilbrigðisstétta eru nú 27 og em þau ýmist
vemduð með lögum eða reglugerðum.
Alls munu nú starfa á landinu í
heilbrigðisþjónustu um 8.500 manns. Þar af
starfa um sjö þúsund á sjúkrahúsum, um 700