Læknablaðið - 15.01.1991, Qupperneq 50
40
LÆKNABLAÐIÐ
í heilsugæslu, um 500 við tannlækningar og
um 300 við önnur störf. Ekki er vitað hve
margir hafa starfsréttindi samkvæmt lögum
en sennilega eru það um fimm þúsund manns.
Menntunarmál heilbrigðisstétta
eru ekki verkefni heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins og hefur
ráðuneytið því aðeins óbein áhrif á
nýliðun stærstu stéttanna. Nú er vitað að
nýliðun lækna og tannlækna, lyfjafræðinga,
sjúkraþjálfara og ljósmæðra er nægileg
miðað við útskriftir síðustu ára en nýliðun
hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða er hvergi
nærri næg og hefur farið síminnkandi síðustu
ár. Þannig hafa útskrifast að meðaltali 50
hjúkrunarfræðingar á ári síðustu fjögur
ár en þyrftu að vera um 100. Hér er um
svipaða þróun að ræða og hefur orðið í öðrum
löndum. Aðsókn í umönnunarstörf hvers
konar í heilbrigðisþjónustu hefur stöðugt farið
minnkandi meðan þörfin í þjóðfélaginu fyrir
þessa starfsemi hefur vaxið.
7. FJÁRMÁL OG REKSTUR
Undanfarin ár hafa fjárhæðir sem svara til um
7% þjóðarframleiðslu farið til heilbrigðismála.
Af fjárlögum hvers árs hafa 38-40% farið
til heilbrigðis- og tryggingamála og þar af
um 25% til heilbrigðismála en um 15% til
tryggingamála annarra en sjúkratrygginga,
þ.e. til lífeyristrygginga, slysatrygginga og
atvinnuleysistrygginga.
Kostnaður í heilbrigðisþjónustu hefur
skipst þannig að meginhlutinn hefur farið í
kostnað vegna sjúkrahúsþjónustu og nokkur
undanfarin ár hefur þessi kostnaðarliður
verið um 70% af heildarkostnaði
heilbrigðisþjónustu. 1 ár er gert ráð fyrir
að af öllum kostnaði í heilbrigðisþjónustu
fari 69% í sjúkrahúskostnað, 9% í kostnað
við læknishjálp, 9% í kostnað við lyf, 8% í
kostnað vegna tannlækninga og 5% í kostnað
vegna fjárfestinga og annarra útgjalda.
Flest sjúkrahús voru rekin með greiðslum
miðað við daggjöld frá 1967 og fram til 1980.
Á síðasta áratug hafa sjúkrahús í vaxandi
mæli verið færð yfir á föst fjárlög og er nú
svo komið að ríkissjúkrahús, öll sjúkrahús
sveitarfélaga og nokkrar sjálfseignarstofnanir
eru á föstum fjárlögum.
Það er alveg ljóst að betur er hægt að
stjóma útgjöldum sjúkrahúsa með föstum
fjárlagagreiðslum og hafa stjómir sjúkrahúsa
því aðra stjóm á fjármálum nú en var fyrir um
það bil 10 ámm.
Ljóst er að þessi stjómun kemur niður á
verkefnum sjúkrahúsa og til þess að endar nái
saman í fjármálum þarf oft að draga starfsemi
saman eða leggja hana niður tímabundið.
Svo sem fyrr sagði er sjúkrahúsum
ríkisins stjómað af nefnd, stjómamefnd
ríkisspítala, sem að meirihluta er kosin af
Alþingi. Stjómir sjúkrahúsa sveitarfélaga
eru skipaðar af ráðherra þó þannig að
meirihluti stjómarmanna er tilnefndur af
sveitarfélögum, starfslið tilnefnir einn
stjómarmann og ráðherra einn, sem
jafnframt er formaður. Einkasjúkrahúsum og
sjúkrahúsum sjálfseignarstofnana er þannig
stjómað að eignaraðilar kjósa meirihluta
stjómar, en starfslið og ráðherra tilnefna einn
stjómarmann hvor.
8. MÁLEFNI ALDRAÐRA
Á síðasta áratug hafa málefni aldraðra verið
tekin nýjum tökum. Framkvæmdasjóður
aldraðra var stofnaður með lögum árið 1981.
Frá upphafi hefur sjóðurinn veitt styrki sem
samanlagt nema tæplega 2 milljörðum króna
á verðlagi í ársbyrjun 1990. Þessum styrkjum
hefur verið varið til uppbyggingar rúmlega 70
stofnana fyrir aldraða víðs vegar um landið.
Fyrstu lög um málefni aldraða gengu í
gildi í ársbyrjun 1983 og var þá jafnframt
stofnuð sérstök deild í heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu til að annast þann
málaflokk. Lög um málefni aldraðra hafa
verið endurskoðuð á tímabilinu og ný lög
tóku gildi í ársbyrjun 1990. Hlutverk laga
um málefni aldraðra er að leiðbeina um
uppbyggingu og fyrirkomulag stofnana fyrir
aldraða og um fyrirkomulag öldrunarþjónustu
í sveitarfélögum. Helsta nýmæli í lögunum,
sem tóku gildi á þessu ári, er að nú er hverju
sveitarfélagi skylt að reka heimaþjónustu fyrir
aldraða. Hlutverk Framkvæmdasjóðs aldraðra
er rýmkað þannig að hann getur nú aðstoðað
sveitarfélög við að koma á fót heimaþjónustu.
Vistunarmat á að vera forsenda langdvalar á
öldrunarstofnun. Breyting hefur verið gerð á
greiðslufyrirkomulagi vegna stofnanadvalar
þannig að aldraðir taka nú meiri þátt í