Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.1992, Page 8

Læknablaðið - 15.01.1992, Page 8
6 LÆKNABLAÐIÐ hreingróðri og 68% í blönduðum gróðri, en þegar um er að ræða bráða miðeymabólgu með brostinni hljóðhimnu, er H. influenzae og S. pneumoniae samþætt orsök í um 58% tilfella. Hugsanlegt er að sameiginlega séu bakteríurnar meinvirkari en einar sér og þess vegna bresti hljóðhimnan. Athyglisvert er, að í hópi I (POM) eru einungis 10.7% sýna án bakteríuvaxtar en hliðstæð tala í hópi 3 er 5.3%. Þetta er gjörólíkt niðurstöðum nýlegrar rannsóknar á Borgarspítalanum, þar sem 53% sýna var án örveruvaxtar (17). Sambærilegar erlendar tölur úr stórum hópi barna eru 27% að meðaltali (30,31). Það skal þó tekið fram, að í hópi 1 (POM) í þessari rannsókn voru einstaklingar með miðeyrnabólgu sem ekki hafði svarað sýklalyfjameðferð eða hafði tekið sig upp á nýjan leik að meðferð lokinni. Hið sama gildir þó ekki um hóp 3, þar sem hljóðhimna hafði brostið, þar sem flestir þeir sjúklingar höfðu fengið bráða miðeymabólgu de novo. Niðurstöður varðandi slím-límeyra (MOM) eru sambærilegar við aðrar erlendar rannsóknir hvað lýtur að fjölda jákvæðra ræktana eða um 39.5% (12,15). Ur langvarandi vökva í miðeyra ræktaðist M. catarrhalis \ 13%, S. pneumoniae í 10.5% og H. influenzae einungis í 5.3%. Þetta er frábrugðið því, sem greint hefur verið frá hérlendis í rannsókn frá Akureyri 1984, þar sem kóagúlasa-neikvæðir stafýlókokkar reyndust vera algengasta bakterían sem óx frá miðeyrnavökva (18). Sjúklingar með langvarandi útferð úr eyra (COM) sýna mjög fjölskrúðugan vöxt baktería. 5. aureus fannst í 56.5% tilvika í blönduðum gróðri. Gram-neikvæðir stafir fundust að liluta. Þessar niðurstöður líkjast erlendum rannsóknum og er greinilegt að um allt aðra bakteríuflóru er að ræða í þessum hópi einstaklinga. Vitað er að P. aeruginosa ræktast oft úr langvarandi útferð og er algengi erlendis gjaman á bilinu 30-60% (30,32,33). í þessari rannsókn ræktaðist P. aeruginosa einungis í tæplega 9% einstaklinganna. Þessar niðurstöður benda til þess að H. influenzae sé algengari í bráðri miðeymabólgu hérlendis en annars staðar. Tíðni H. influenzae var verulega hærri en komið hefur fram í erlendum rannsóknum. Þar sem þessi sjúklingahópur var valinn, er spurning hvort hægt sé að álykta að þær bakteríur sem fundust í flokki POM finnist í jafn ríkum mæli hjá öllum börnum með bráða eyrnabólgu, sérstaklega þar sem þessi böm höfðu áður verið meðhöndluð að minnsta kosti einu sinni með sýklalyfi, án þess að fullum bata væri náð. Þegar svo H. influenzae og S. pneumoniae mæta tvíefldir til leiks, virðist það á hinn bóginn auka á meinvirkni sýkingarinnar í hópi þeirra barna þar sem hljóðhimnan hafði brostið. Böm í þeim hópi höfðu ekki verið meðhöndluð með sýklalyfjum innan tveggja vikna áður en hljóðhimnan brast við bráðasýkingu. Menn hefur greint á um hvort penisillín eitt sér dugi í meðferð bráðrar miðeymabólgu á Islandi miðað við reynslu á hinum Norðurlöndunum. Ofangreindar niðurstöður gefa vísbendingu um að nota frekar breiðvirkari sýklalyf hérlendis við bráðri miðeyrnabólgu. I ljósi þess, að sjúklingar með langvarandi slím í miðeyra (MOM) hafa meinvaldandi bakteríur í miðeymaslími í 40% tilfella, ætti að reyna sýklalyfjameðhöndlun hjá þessum hópi áður en til ástungu og/eða rörlagningar kemur. Sjúklingar f hópi 4 (COM) ættu hins vegar ekki að fá meðhöndlun með sýklalyfi án þess að niðurstöður ræktunar og næmisprófa liggi fyrir. Þetta er enn brýnna vegna tilkomu fjölónæmra pneumókokka á íslandi (34). ÞAKKIR Karli G. Kristinssyni, lækni og sérfræðingi í sýklafræði, eru þakkaðar leiðbeiningar og góð ráðgjöf, svo og Þresti Laxdal bamalækni og Sigurði Guðmundssyni smitsjúkdómasérfræðingi. Kristín Snorradóttir læknafulltrúi á háls-, nef- og eymadeild Borgarspítalans á þakkir skyldar fyrir veitta aðstoð. Gerður Helgadóttir læknafulltrúi sá um frágang mynda.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.