Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1992, Síða 22

Læknablaðið - 15.01.1992, Síða 22
20 LÆKNABLAÐIÐ Af sænskum og íslenskum niðurstöðum um tíðni hækkaðs sermiskalks (18-20) og að verulegur hluti þessa hóps sé með kalkvakaóhóf, má ætla að aðeins lítill hluti sjúklinga með kalkvakaóhóf komi til skurðlæknismeðferðar hér á landi. Ástæður þessa geta verið þær að greiningu sé ábótavant. I annan stað gætu viðhorf lækna sem um þessa sjúkdóma fjalla verið íhaldssöm varðandi skurðlækningu. Niðurstöður þessarar könnunar, þ.e. að nærri 90% sjúklinga fái eðlilegt sermiskalk, að tíðni tímabundinna fylgikvilla sé mjög lág og að engin varanleg mein hljótist af aðgerð, sýna að þeirra vegna er ekki ástæða til íhaldssemi varðandi skurðlækningu á þessum sjúkdómi hér. Stærð, þyngd og vefjagerð kirtilæxlanna í þessari rannsókn er mjög svipuð því sem aðrir hafa lýst (22-24,37). I einu tilfelli var um að ræða tvö kirtilæxli samtímis. Þau eru fátíð en hefur þó verið lýst í 1-5% tilfella (22,23). Tvö tilfelli greindust af rauðfrumu kirtilæxlum, en þau eru sjaldgæf (3-7.8%) og fram undir lok áttunda áratugarins voru þau álitin vera óstarfhæf. Á síðustu árum hefur hins vegar verið sýnt fram á að þau valda kalkvakaóhófi og sjúklingar fái bata við brottnám (38). Svo reyndist í báðum þeim tilfellum sem greindust á Borgarspítala. í einu tilfelli kirtilæxlis var saga um geislajoðmeðferð vegna skjaldvakaóhófs, en samband virðist á milli geislameðferðar á hálslíffæri og kalkvakaóhófs (39). Kalkkirtilæxli greindist hjá einum sjúklingi með æxlamergð vakakirtla (multiple endocrine adenomatosis - MEA), sem er óvanalegt, þar sem oftast er um að ræða vefjaauka hjá þannig sjúklingum (23). I báðum vefjaaukatilfellunum voru allir kölkungamir stækkaðir, en þó misjafnlega mikið í hvoru tilfelli um sig, en vefjagerðin var ntjög ámóta í báðum tilfellum og að mestu leyti uppbyggð af meginfrumum. Ýmis vandamál koma upp í sambandi við vefjagreiningu kölkunga sem valda kalkvakaóhófi og engin vefjafræðiteikn leyfa örugga aðgreiningu kirtilæxlis frá vefjaauka þegar einn stakur kölkungur er tekinn til vefjaskoðunar. Gildir einu hvort um frystiskurðarrannsókn eða rannsókn á varanlegum sneiðum er að ræða. Vefjagerð er oft sú sama bæði í góðkynja kirtilæxli og vefjaauka og vefjafræðileg skilmerki skortir til að greina með vissu þarna á milli. Aukin stærð og þyngd kölkungs aðskilur hann frá eðlilegum kalkkirtli en hjálpar að öðru leyti ekki til við mismunagreiningu kirtilæxlis og vefjaauka (23). Stærð og þyngd kölkunga er mjög misjöfn í þessum sjúkdómum og í sumum tilfellum er ósamhverf stækkun kölkunga við vefjaauka þannig að einn kölkungur er stækkaður en hinir eðlilegir eða einungis lítillega stækkaðir. í þeim tilfellum er ekki hægt að greina milli kirtilæxlis og vefjaauka við skurðaðgerð. Margir hafa því bent á nauðsyn þess að vefjasýni sé ávallt tekið frá að minnsta kosti einum eðlilega útlítandi kölkungi auk hins afbrigðilega (23- 25,37). ÞAKKIR Þakkir eru færðar Þorgeiri Þorgeirssyni yfirlækni meinafræðideildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, sem góðfúslega lét í té upplýsingar um vefjagreiningu sjúklinga sem þar voru greindir, svo og Jóhanni H. Jóhannssyni fyrir ábendingar um íslenskt orðfæri. SUMMARY We did a clinical and pathological study of 34 patients (27 females and 7 males) operated on for primary hyperparathyroidism during a 5 year period 1985-1989 at the Reykjavík City Hospital. Of these 28 patients became normocalcemic immediately after operation, 2 patients needed medical treatment for hypoparathyroidism for several months. Four patients had a persistent hypercalcemia. two of those were successfully reoperated on after localization of a parathyroid adenoma with the help of selective venous sampling and angiography in one case and thallium-technetium subtraction scintigraphy in the other. Two patients relapsed but they have only mild and symptomfree hypercalcemia. Two patients still have slight persistent hypercalcemia. Two patients suffered transient unilateral vocal cord paralysis. No other complications were noticed. The operative success rate is 88.2%. Histological diagnosis was confirmed in 31 patients, 29 patients (93.5%) had adenoma, two patients (6.5%) had hyperplasia. There was one case of double adenoma. Two patients had oxyphil cell adenoma. In one case of adenoma there was a previous history of radioiodine treatment for

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.