Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.01.1992, Qupperneq 25

Læknablaðið - 15.01.1992, Qupperneq 25
LÆKNABLAÐIÐ 1992: 78: 2.1-31. 23 Tómas Zoéga, Júlíus Björnsson, Tómas Helgason SAMANBURÐUR Á GEÐLYFJAÁVÍSUNUM UTAN SJÚKRAHÚSA í REYKJAVÍK í MARS 1989 OG í MARS 1984 ÁGRIP Gerður var samanburður á geðlyfjaávísunum utan sjúkrahúsa í Reykjavík í mars 1989 og í mars 1984. Safnað var saman öllum lyfseðlum á geðlyf er Reykvíkingar fengu í mars 1989. Upplýsingar sem fram komu á lyfseðlunum voru skráðar og flokkaðar. Niðurstöður voru bomar saman við samskonar athugun sem gerð var í mars 1984 (1). Fjöldi lyfseðla á geðlyf sem hver sjúklingur fær er óbreyttur eða 1.3 á mánuði. Konur fá áfram nálægt 65% allra lyfseðla á geðlyf. Lítilsháttar fækkun varð á lyfseðlum á róandi lyf en fjölgun varð á ávísunum á svefnlyf. Fjölgunin á sér stað fyrst og fremst á þeim lyfseðlum þar sem litlu magni af lyfjum er ávísað. Töluverð aukning hefur orðið á skilgreindum dagskömmtum (SDS) í flokki geðdeyfðarlyfja bæði hjá konum og körlum. Algengi geðlyfjanotkunar vex fram að 75 ára aldri. INNGANGUR Lyfjanotkun af ýmsu tagi hefur í vaxandi mæli verið undir smásjánni, bæði vegna kostnaðar og hugsanlegra aukaverkana. Geðlyfjanotkun er mismikil á Norðurlöndum (2). Ekkert bendir þó til þess að verulegur munur sé á tíðni geðsjúkdóma í þessum löndum. Geðsjúkdómar eru mjög algengir og hefur viðeigandi lyfjameðferð bætt mjög horfur margra sjúklinga og líðan þeirra. Geðlyf eru yfirleitt hluti af annarri meðferð sem notuð er. Margir halda að notkun svefnlyfja og róandi lyfja sé of mikil. Settar hafa verið takmarkanir á hámarksskammta og töflustærð bæði róandi lyfja og svefnlyfja (3,4) og hefur það haft áhrif á notkun þessara lyfja (4,5). Minni umræða hefur verið um notkun sefandi lyfja og geðdeyfðarlyfja. Frá geödeild Landspítalans. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Tómas Zoéga. Mikilsvert að er geðlyfjameðferð sé hnitmiðuð og að sjúklingar fái þá meðferð sem best er talin. Stundum kunna geðlyf að vera ofnotuð en f öðrum tilvikum eru þau ekki gefin, þegar lfklegt er að þau geti gert gagn eða gefin í of litlum skömmtum. Nauðsynlegt er að upplýsingar um geðlyfjaávísanir og breytingar á þeim séu sem gleggstar og er þessi rannsókn þáttur í þeirri viðleitni. Sams konar athugun var gerð í mars 1984 (1,6,7). EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Skráðir voru allir lyfseðlar (einnig þeir sem sjúklingar greiddu að fullu) á geðlyf er íbúar Reykjavíkur fengu í mars 1989. Með leyfi tölvunefndar og samþykki landlæknis voru upplýsingar skráðar í gagnagrunn. I samráði við Sjúkrasamlag Reykjavíkur og lyfsala í Reykjavík var lyfseðlum, sem afgreiddir voru í apótekum þar, safnað saman og þeir tölvuskráðir á geðdeild Landspítalans. Allar upplýsingar sem fram komu á lyfseðlunum voru skráðar og flokkaðar í fimm tegundir samkvæmt ATC-kerfi (Anatomical- Therapeutical-Chemical Classification) (8). Lyfjamagn á hverjum seðli var umreiknað í skilgreinda dagskammta (SDS) (Defined Daily Doses=DDD) eins og þeir voru 1984, þannig að magntölur eru sambærilegar við það sem kemur fram í fyrri grein (I). Skilgreiningar á SDS nýrra lyfja liggja fyrir (9). Kyn- og aldursskipting Reykvíkinga miðast við 1. desember 1989 (10). Tölfræðilegur samanburður var gerður með kí- kvaðrat prófunum eða útreikningi á staðalvillu mismunar hlutfallstalna. NIÐURSTÖÐUR I mars 1989 fengu 4987 einstaklingar í Reykjavík afgreidd geðlyf í apóteki. Lyfseðlafjöldinn reyndist vera 7070, og á lyfseðlununi voru 8882 ávísanir á geðlyf.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.