Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.1992, Page 42

Læknablaðið - 15.01.1992, Page 42
38 LÆKNABLAÐIÐ Það er ekki auðvelt að yfirfæra þessa umræðu á íslenskar aðstæður. Til þess skortir upplýsingar um konur og karla í læknastétt. A tímum vaxandi atvinnuleysis meðal sérfræðinga má þó gera ráð fyrir auknum kröfum um nám og störf við stöðuráðningar. Það er því ungum konum ef til vill mikilvægara nú fremur en nokkru sinni fyrr að stunda nám sitt vel, undirbúa sémám vandlega, slá ekki af kröfum um rannsóknavinnu og skorast ekki undan tækifærum, sem fela í sér stjómun og ábyrgð. Hvernig er staðan hér á landi: í vor eru 74 ár liðin frá því að fyrsta íslenska konan, Kristín Olafsdóttir, lauk námi úr læknadeild Háskóla Islands. Kristín starfaði sem læknir í Reykjavík til æviloka 1971. Hún var gift og átti þrjú böm. Katrín Thoroddsen lauk námi frá Háskóla Islands vorið 1921 og hlaut fyrst íslenskra kvenna sérfræðiviðurkenningu, vorið 1927. Katrín starfaði sem læknir í Reykjavík frá 1926, var yfirlæknir Heilsuvemdarstöðvar Reykjavíkur og síðar bamadeildar Heilsuvemdarstöðvarinnar. Hún var ógift og bamlaus. Margrét Guðnadóttir varð fyrst kvenna prófessor við læknadeild Háskóla íslands árið 1969. Hún lauk námi frá Háskóla íslands 1956. Hún starfaði sem sérfræðingur í veirufræði við Tilraunastöð Háskóla íslands 1960-1969, var prófessor í sýklafræði frá 1969 og forstöðumaður rannsóknastofu í veirufræði frá 1974. Margrét á tvö böm. Alls hafa 222 konur hlotið lækningaleyfi á íslandi frá 1917 til 1990. Á sama tíma hafa 66 Fjöldi kwnna útskrifaðar frá lœknadeild Háskála Islands, seni hlotið hafa íslenskt lœkningaleyfi. 1917-1970 40 1971-1990 182 Samtals 222 Konur í lœknastétt sem hlotið hafa séifra'ðiviðurkenningu á Islandi. Sérgrein 1917-1970 1971-1990 Samtals Barnalækningar 5 3 8 Lyflækningar 3 8 11 Skurölækningar 1 1 Svæfingalækningar 2 (1) 3 (1) 5 (2) Geölækningar 7 6 13 Augnlækningar 2 2 4 Kvenlækningar 1 5 6 Rannsóknagreinar 3 10 13 Heimilislækningar 7 7 Samtals 24 44 68 (Hjá 66 konum) Frá skóladagheimilisdeildinni á Mýri. Ljósm: -hþ- konur hlotið sérfræðiviðurkenningu á Islandi. Eins og sjá má í nteðfylgjandi töflum eykst fjöldi kvenna í læknastétt verulega eftir 1970. Hvað kennslu í læknadeild varðar eru nokkrar konur stundakennarar við deildina, tvær eru dósentar og ein prófessor. Lítið er vitað um viðhorf íslenskra kvenna til sémáms. Hvemig konur velja sér sérgreinar og við hverju þær búast að loknu námi. Hvaða áhrif fjölskyldan hefur á starfsval eða vinnutíma. Hvort bameignir og uppeldisstörf draga úr möguleikum kvenna til stöðuveitinga eða metorða í læknastétt. Hvort konur verða fyrir áreitni í starfi vegna kynferðis. Hvort veita þarf konum tímabundinn forgang að stöðum til að jafna mun milli kynjanna.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.