Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1992, Síða 44

Læknablaðið - 15.01.1992, Síða 44
40 LÆKNABLAÐIÐ sannindin eru því hnýtt við skipulagið. Og skipulag, í þessu tilviki vinnufyrirkomulag, er ekki aðeins kjaramál í víðri merkingu, heldur einnig hreint launamál. Sú er venjan á Islandi, að samið er um laun launafólks undir lágmarkskostnaði við framfærslu. Hins vegar getur launafólk bætt laun sín með tilliti til fyrirkomulags vinnunnar þannig, að það fái lifað af þeim. Þetta gildir einnig um lækna. Þannig verður vinnufyrirkomulagið mikilsverður launaþáttur, sem stendur þó oft í vegi fyrir því, að notið verði þeirra tveggja alkunnu sanninda, sem fyrr var um fjallað. Gerð samninga: Aðferðina við gerð kjarasamninga sjúkrahúslækna hefur borið af leið. í löndum, þar sem enn er beitt heilbrigðri skynsemi og þar sem faglegar og siðferðilegar skyldur eru hafnar yfir umræður, eru kjör lækna góð og kjarasamningar eru stuttir og einfaldir. Kjarasamningar eru heilstæðir og byggðir á grundvallaratriðum. Þeir taka tillit til menntunar og þjálfunar, til lengdar starfsævinnar, til stöðugs menntunarkostnaðar og til þeirrar þekkingarkröfu, álags og ábyrgðar, sem starfinu fylgir. Framkvæmd svona samnings er einföld, hún er einnig ódýr og myndi spara talsverðan stjórnunar-, eftirlits- og skrifstofukostnað. Samningur af þessari gerð og með slíkri gerð er læknum nauðsynlegur. Það er andstætt siðferðilegum skyldum okkar og þeim eiðum sem við höfum gengist undir að þurfa að standa í átökum um kaup og kjör. Við munum aldrei hlaupast á brott frá veiku fólki og þyrfti þar enga eiða til og er það mál aldrei á dagskrá. Uppsagnir og brotthvarf úr starfi er auðvitað heimilt, en þjónar hvorki hagsmunum þjóðarheildarinnar né okkar sjálfra, og það verður að vera jöfn ábyrgð ráðamanna og okkar, að ekki komi til slfkra atburða. Enginn vill til þeirra stofna. Læknar komust næst því að búa við samning af þessu tagi eftir 1967. Því miður tókst ekki að varðveita þá samningamynd og erfitt er nú að koma henni á aftur nema slíkt yrði talin meiri háttar stökkbreyting í kjarabótum. Starfsmenn hinna áhrifaríku fjölmiðla myndu aldrei skilja slíka breytingu öðruvísi og hirðfífi þeirra ekki reyna það; þannig myndi verða mótuð afstaða liins almenna borgara og þar með andstaða viðsemjenda. Þetta er því miður liðin tíð og glatað tækifæri. Nú er samningsgerðin ekki eftir neinum grundvallarákvæðum. Leiðarljósin eru fá og síst af öllu röksemdir. Helst er karpað um ómerkilega prósentuhækkanir í launum og venjulega hafa einhverjir allt aðrir en samningsaðilar ákveðið í ljósi einhverra allt annarra forsendna hverjar þær ættu að vera. Svolítið er náttúrulega um það rætt, hvort menn séu vakandi eða sofandi í vinnunni eða alltaf að eða ekki; nú eru stimpilklukkumar lfka að komast á. Helst er hægt a,ð semja um greiðslur fyrir vinnu, sem getur komið í veg fyrir heppilegt og eðlilegt vinnufyrirkomulag, auk þess sem stundum má semja um greiðslur fyrir að gera ekki neitt. En slíkt finnst okkur, sem förum bráðum að teljast eldri kynslóðin í landinu, eilítið einkennilegt. En allt um það. Mörgum réttindamálum gengur erfiðlega að ýta fram, eins og síðustu samningar eru glöggt dæmi um. Andstaðan, sem var við sjálfsögð réttindi var mikil og mætti vera læknum umhugsunarefni ekki síður en hversu erfiðlega gengur að þoka áfram frekari lífeyrisréttindum. Omögulegt er að fjalla utn samningsgerð öðruvísi en vikið sé að þætti samninganefndar ríkisins. Ekki efast ég um, að í henni sitji gott fólk og vel hæft. Fólk sern hefur umborið mig og fleiri árum saman. Hún virðist þó ekki hafa áhuga á að gera samninga eftir öðru grundvallarsjónarmiði en því, að grunnkaup sé lágt og það eitt þjóni hagsmunum ríkisins. Að öðru leyti er inntak samningsgerðarinnar að koma hugsanlegum kjarabótum þannig fyrir í samningum að helst enginn fái í þær ráðið. Flókinn samningur er einnig brothættur samningur ef reynt er að breyta til dæmis vinnufyrirkomulagi til hins betra þótt merkilegt sé. Flókinn samningur kostar einnig mikið eftirlit. Hann er dýr í framkvæmd. Heilbrigðara launakerfi en er í dag ætti auðvitað að vera metnaðarmál vinnuveitanda. Með því tryggir hann sér góðan starfskraft og nýtir þá menntun og þjálfun, sem ekki aðeins læknar, heldur fleiri stéttir þjóðfélagsins hafa aflað sér hér heima eða flytja hingað heim. Það orkar einnig tvímælis, hvort það í reynd eða þegar til lengdar lætur hefði í för með sér nokkuð aukinn rekstrarkostnað stofnana. Markvissara væri ráðið í stöður því sterkari sem siðferðileg aðstaða vinnuveitandans gagnvart launþeganum væri.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.