Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.1992, Page 49

Læknablaðið - 15.12.1992, Page 49
LÆKNABLAÐIÐ 439 í rauninni heilbrigðisfræði og betur fari á því að þessar sérgreinar fái heitið heilbrigðisfræði. Þannig yrði samræmi milli sérgreinarheitis og fagsins í læknadeildinni á sama hátt og er í öðrum greinum. Eins og áður segir var það að líkindum Vilmundur Jónsson landlæknir sem fyrstur lýsti þörfinni fyrir sérmenntun í heilbrigðisfræði. Rök hans eru enn í fullu gildi. Að áliti undirritaðs eru helstu rökin eftirfarandi: / fyrsta lagi hefur heilbrigðisfræði lengi verið ein af aðal kennslugreinum í læknadeild. / öðru lagi hefur þekkingu á þessu sviði fleygt fram á undanfömum árum og áratugum og eru rannsóknir stundaðar af miklum fjölda vísindamanna í fjölmörgum löndum við læknadeildir háskóla og sérháskóla í heilbrigðisfræði. / þriðja lagi hefur heilbrigðisfræði fengið viðurkenningu sem sérgrein í læknisfræði í þeim löndum sem við höfum mest skipti við. í stuttu máli má lýsa sérþekkingu lækna á sviði heilbrigðisfræði á eftirfarandi hátt: 1. Þekking til könnunar á heilsufarsástandi meðal hópa og aðferðir sem beitt er við slíka könnun. Faraldsfræði, tölfræði og lýðfræði. 2. Þekking á sviði heilbrigðiseftirlits, hollustuhátta og umhverfisheilsuverndar. 3. Þekking á aðferðum heilsuvemdar og á möguleikum hinna ýmsu heilsuverndargreina. Skipulagning opinberra aðgerða til vemdar gegn sjúkdómum og mat á slíkum aðgerðum. 4. Þekking á aðgerðum til eflingar heilbrigði. 5. Kunnátta á sviði stjómunarfræði, stefnumörkunar og skipulags heilbrigðismála og áætlanagerðar. Eðlilegt er að sérnámi í heilbrigðisfræði verði hagað eins og sérnámi í öðrum greinum í samræmi við ákvæði A-C liðar í 2. grein reglugerðar nr. 39/1970 um veitingu lækningaleyfis og sérfræðileyfa. í 3. grein reglugerðarinnar komi viðbótarákvæði um að sérnám fari fram í viðurkenndum háskólum. I 4. grein verði gert ráð fyrir háskólagráðu í greininni og því til viðbótar eins til eins og hálfs árs starfsreynsla á viðurkenndri stofnun á sviði heilbrigðisfræði erlendis eða í sérstökum stöðum aðstoðarlækna við landlæknisembættið, héraðslæknisembættin og Hollustuvemd ríkisins. Auk þess er eðlilegt að gera kröfu um eins árs starf við heilsugæslustöð. HEIMILDIR 1. Tulinius H. Faraldsfræði og heilsuvemd. Reykjavík: Háskólaútgáfan, 1989: 17. 2. Tillaga til þingsályktunar um íslenska heilbrigðisáætlun Alþingis, 1989. 145. mál. 3. Holland WW, Detels R, Knox G. Oxford textbook of public health. Oxford: Oxford University Press, 1984: 5-7. 4. Johnsen B. Sóttvamarráðstafanir á Islandi eftir afnám einokunarverslunar 1787. Fyrsta heilbrigðisnefndin 1848. Læknablaðið 1990; 76: 267-76. 5. Hannesson G. Heilbrigðisstarf og heilbrigðisskýrslur. Reykjavík: Félagsprentsmiðjan, 1924. 6. Acheson RM. The medicalization of public health, the United Kingdom and thc United States Contrasted. J Public Health Med 1990; 12: 31-8. 7. Natvig H. Lerebog i Hygiene. Norge: Fabritius Forlagshus, 1977. 8. Johnsen B. Qui bono ?, Af brautryðjendastarfi Guðmundar Hannessonar. Læknablaðið 1989; 75: 11- 23. 9. Jónsson V. Með hug og orði. Reykjavík: Iðunn, 1985. 10. Þingtíðindi A. Löggjafarþingið 1938-1937. Þingskjal 69: 222. 11. Stjómartíðindi A. 1949: 168.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.