Læknablaðið - 15.08.1993, Qupperneq 16
224
LÆKNABLAÐIÐ
Hjartavernd voru frá einstaklingum sem komu
til rannsóknar á nokkurra vikna tímabili.
Hluti þeirra var úr slembiúrtaki sem notað
hefur verið til faraldsfræðilegra rannsókna
á sjúkdómum meðal íslendinga (89 sýni)
(tafla I). Öll þau sýni voru frá einstaklingum
eldri en 55 ára en önnur sýni frá Hjartavernd
voru frá fólki á ýmsum aldri sem komu
til rannsóknar af eigin hvötum eða vegna
ábendingar læknis.
Til mótefnamælinganna voru notuð efni
(kit) frá Organon-Teknika (Turnhout,
Belgíu). Annars vegar voru mæld heildar
(total) mótefni gegn lifrarbólguveiru A og
hins vegar mótefni af IgM gerð, sem gefa
til kynna nýlega sýkingu. Mælingarnar
byggjast á ELISA aðferð (enzyme-linked-
immunosorbent-assay).
Til staðtölulegs mats á hinum ýmsu hópum
var beitt kí-kvaðratprófi (3).
NIÐURSTÖÐUR
Mynd 1 sýnir fjölda innsendra sýna sem
á voru gerðar mælingar á mótefnum gegn
lifrarbólguveiru A á tímabilinu apríl 1988-
aprfl 1991. A mynd 2 er sýndur fjöldi
einstaklinga sem reyndust hafa nýja eða mjög
nýlega sýkingu, það er jákvætt IgM. Er þar
aðeins um að ræða 16 sjúklinga á þremur
árum. Ekki voru til nákvæmar upplýsingar um
alla, en vitað var um þrjá sem sýkst höfðu á
ferðum erlendis auk eins erlends ferðamanns.
Hægt var að rekja eitt tilfelli til sambands við
utanlandsfara sem veiktist. Vitað var um fjóra
sem misnotuðu áfengi eða vímuefni, þar af
voru tveir sprautufíklar.
Mynd 3 og tafla II sýna algengi mótefna
miðað við aldur, í fyrrgreindu úrtaki frá
Hjartavernd og Rannsóknastofu Háskólans í
veirufræði. Marktækur munur var á algengi
mótefna eftir aldri einstaklinga (P< 0,001).
Aukning algengis er mest hjá fólki sem fætt
er í byrjun seinni heimsstyrjaldar, það er að
segja fólki sem er 50-54 ára nú. Ekki reyndist
marktækur munur milli kynja á algengi
heildarmótefna gegn lifrarbólguveiru A (P>
0,05) og ekki var heldur marktækur munur
milli slembiúrtaks Hjartaverndar og annarra
sýna frá Hjartavernd og Rannsóknastofu
Háskólans í veirufræði (tafla I).
Tafla I. Sanianburður á slembiúríaki Hjartaverndar
annars vegar og öðrum sýnum frá Hjartavernd og
Rannsóknastofu Háskólans í veirufrœði hins vegar með
tilliti til fjölda einstaklinga með heildarmótefni gegn
lifrarbólguveiru A. Ekki reyndist marktœkur munur milli
hópanna.
Úrtak án slembiúrtaks
Hjartaverndar Slembiútrak Hjartaverndar
Aldur Einstak- lingar Einstakl með mótefni (%) Mótefni Einstak- lingar Einstakl. með (%) mótefni Mótefni
55-59 .. 63 10 (15,9) 22 4 (18,2)
60-64 . 69 24 (34,8) 9 2 (22,2)
65-69 . 58 22 (37,9) 6 1 (16,7)
70-74 . 39 19 (48,7) 25 13 (52,0)
>75.. . 61 39 (63,9) 27 20 (74,1)
Tafla II. Fjöldi einstaklinga í úrtaki og algengi
heildarmótefna gegn lifrarbólguveiru A. Munur milli
kynja var ekki marktœkur.
Með mótefni
Aldur Karlar Konur Alls Karlar Konur Alls (%)
15-19 39 33 72 0 1 1 (1,4)
20-24 32 51 83 0 0 0 (0,0)
25-29 51 67 118 0 2 2 (1,7)
30-34 39 45 84 0 0 0 (0,0)
35-39 67 33 100 3 0 3 (3,0)
40-44 60 44 104 3 0 3 (2,9)
45-49 61 33 94 2 2 4 (4,3)
50-54 36 30 66 6 5 11 (16,7)
55-59 31 54 85 5 9 14 (16,5)
60-64 32 46 78 12 14 26 (33,3)
65-69 24 40 64 7 16 23 (35,9)
70-74 35 29 64 18 14 32 (50,0)
>75. 35 53 88 21 38 59 (67,0)
Alls 542 558 1100 77 101 178 (16,2)
UMRÆÐA
A rannsóknartímabilinu greindust aðeins
16 tilfelli bráðrar sýkingar af völdum
lifrarbólguveiru A. Er þetta lága nýgengi
í samræmi við heilbrigðisskýrslur síðustu
áratuga, þar sem oftast er aðeins greint
frá örfáum tilfellum lifrarbólgu A (icterus
epidemicus) árlega og einnig fytxi athugunum
á veirugulu sem fram hafa farið hérlendis
(2,4,5). Þess ber að geta að einnig fer fram
greining á lifrarbólgu A á Borgarspítalanum í
Reykjavík. Þótt ekki sé hægt að fullyrða um
uppruna smits í öllum þessum 16 tilfellum
vegna skorts á upplýsingum eru nokkur þeirra
tengd utanlandsferðum. Einnig kom upp
tilgáta um óvenjulega smitleið, það er eftir