Læknablaðið - 15.08.1993, Side 32
238
LÆKNABLAÐIÐ
upp erlendis, en komu til enduraðgerðar á
Landspítala (hópur 2).
Hópur 1, sjúklingar skornir upp á
Landspítala: A tímabilinu 14. júní 1986
til ársloka 1991 voru gerðar 616 aðgerðir á
Landspítala, þar sem hjarta- og lungnavél
var notuð, 556 kransæðaaðgerðir, 47
hjartalokuskipti og í sumum tilvikum aðrar
aðgerðir einnig, 11 lokanir á opi milli
framhólfa og tvær aðgerðir vegna gúls á
meginslagæð (tafla I).
Hópur 2, sjúklingar skornir upp erlendis: Á
tímabilinu 1. janúar 1983 til 31. desember
1986 gekkst 481 Islendingur undir opnar
hjartaaðgerðir erlendis, börn eru ekki talin
með. Kransæðaaðgerðir voru gerðar á
410 sjúklingum, lokuaðgerðir og aðrar
aðgerðir voru gerðar á 71 sjúklingi (tafla I).
Þessir sjúklingar voru lang flestir skornir
upp í London, flestir þeirra á Brompton
sjúkrahúsinu en einnig nokkrir á St. Thomas
og Guy’s sjúkrahúsunum en fáir á öðrum.
Til Bandaríkjanna fór eitthvað af sjúklingum
til aðgerðar en þeir voru ekki margir vegna
kostnaðarmunar, en kostnaður var meiri
þar en í Englandi. Sjúklingar skornir upp
erlendis komu til Islands venjulega 10 til 14
dögum eftir aðgerð og voru þá lagðir inn á
hjartadeildir sjúkrahúsanna í nokkra daga.
AÐFERÐIR
Hópur 1: Á Landspítala fóru allir sjúklingar
í klórhexidín bað (Hibiscrub® 4%),
kvöldið fyrir aðgerð og einnig að morgni
aðgerðardags. Aðgerðarsvæði var rakað að
morgni fyrir aðgerð í fyrstu, en í ársbyrjun
1990 var farið að gera það að kvöldi.
Framan af fengu sjúklingar í lyfjaforgjöf
kloxacillín 1,5 g (Orbenin®) gefið í æð og
eftir innleiðslu svæfingar voru þeir þvegnir
með povidon-iodine lausn (Betadine®,
surgical scrub 7,5%), síðan var þerrað með
povidon-iodine alkóhóllausn (Betadine®,
alcoholic solution 10%). í ársbyrjun 1990
var þessu breytt og farið að þvo húð með
klórhexidínspritti 5 mg/ml. Umgangur um
skurðstofu var hafður sem minnstur. Allar
hjartaaðgerðirnar voru gerðar með því að
kljúfa bringubein eftir endilöngu, þess var
gætt að vera í miðlínu og fara varlega með
beinið. í lok aðgerðar var bringubeinið síðan
vírað saman með sex sterkum stálvírum
Tafla I. Fjöldi hjartaaðgerða hérlendis frá 1986-1991
(hópur 1). Fjöldi hjartaaðgerða erlendis 1. janúar 1983
- 31 desember 1986 (hópur 2).
Aðgerðir Fjöldi Meðalaldur Aldursbil
Hópur 1:
Kransæöaaðgerö . . 556 59,0 31-78
Lokuaðgerð og aðrar .. 47 63,9 31-77
Op milli framhólfa 11 43,8 22-65
Gúlar á meginslagæð í brjóstholi 2 62,5 51-75
Alls 616
Hópur 2:
Kransæðaaðgerð . . 410 59,9 34-78
Lokuaðgerð og aðrar .. 71 58,0 16-76
Alls 481
Tafla II. Sýklar sem rœktuðust frá sárum og bióði.
Hópur 1 Hópur 2
Staphylococcus aureus.............. 1 11
Staphylococcus kóagúlasa neikvæður 3 5
Corynebacterium sp................ 1
Corynebacterium sp. og S. aureus .. 1
Klebsiella oxytoca................. 1
Ræktun neikvæð..................... 4 1
Samtals. 9 19
Tafla III. Fjöldi enduraðgerða vegna loss eða sýkingar.
Hópur 1 Hópur 2
Fjöldi sjúklinga ... 616 481
Enduraðgerðir 9(1,5%) 25 (5,1%)*
vegna loss 0 6
vegna sýkingar 9 19
* kí-kvaðrat = 12,544,
p< 0,001, áhætta (risk ratio) 3,7 [95% vissumörk (confidence
limit) 1,8-7,6]
(Surgical Steel no. 6, Ethicon, Edinborg,
Skotland) en hjá stórum, þungum sjúklingum
og hjá sjúklingum nteð lélegt bringubein voru
settir viðbótarvírar. Sárinu var lokað í lögum
með 0 polyglactin (Vicryl®) í undirlag, og nr.
000 polyglactin (Vicryl®) í húð (intracutan).
Hópur 2: Sjúklingar, sem voru skornir
erlendis komu til Islands 10-14 dögum eftir
aðgerð og voru lagðir inn á hjartadeildir
spítalanna. Undirbúningur aðgerða hjá þessum
sjúklingahópi var mismunandi á þessu
tímabili, bæði hvað varðar þvott, sýklalyf
og rakstur á skurðsvæði, en erfitt var að fá
nákvæmar upplýsingar um hvemig að var
staðið. Bringubeininu var venjulega lokað með
grennri vímm en notaður var hérlendis eða nr.