Læknablaðið - 15.08.1993, Page 38
244
LÆKNABLAÐIÐ
aldursstöðlun samkvæmt viðteknum venjum
(26) . Marktækni mismunar milli hópa var
reynd með því að reikna út hlutfallið milli
aldursstaðlaðra talna. Logaritmi af hlutfallstölu
var talinn hafa normal dreifingu og frávik
hans metið sem summan af andhverfu
margfeldis talnanna sem á bak við hann stóðu
(27) .
%
50 -i
40 -
Non-smokers Ex-smokers Smokers
□ Women
■ Men
Fig. Percentage of subjects in the sample with total
edentulousness (265 women and 180 men) by smoking
habits and sex. (Age standardized figures.)
Table II. Number of subjects in the sample by age, sex
and smoking habits. Percentage of dentate individuals in
parentheses.
Men (Dentate) Women (Dentate) Total (Dentate)
Age n (%) n (%) n (%)
Non-smokers: 25-34 39 (100.0) 49 (98.0) 88 (98.9)
35-44 41 (100.0) 68 (95.6) 109 (97.2)
45-54 60 (96.6) 84 (84.5) 144 (89.6)
55-64 52 (78.8) 99 (56.6) 151 (64.2)
65-74 56 (51.8) 96 (27.1) 152 (36.2)
Ex-smokers: 25-34 24 (91.7) 33 (100) 57 (96.5)
35-44 35 (91.4) 34 (94.1) 69 (92.8)
45-54 41 (85.3) 31 (74.2) 72 (91.7)
55-64 60 (68.3) 25 (36.0) 85 (58.8)
65-74 68 (36.8) 37 (18.9) 105 (30.5)
Smokers:
25-34 43 (97.7) 65 (100) 108 (99.1)
35-44 65 (90.8) 64 (90.6) 129 (90.7)
45-54 64 (82.8) 50 (70.0) 114 (77.2)
55-64 39 (51.3) 53 (41.5) 92 (45.7)
65-74 35 (14.3) 34 (20.6) 69 (17.4)
Total 722 (75.1) 822 (67.8) 1544 (71.2)
NIÐURSTÖÐUR
Tíðni tannleysis er hæst á meðal þeirra sem
reykja og lægst á meðal þeirra sem aldrei hafa
reykt, óháð kynferði. Munurinn er marktækari
meðal karla en kvenna (sjá mynd).
í töflu II er hópnum skipt eftir aldri, kyni
og reykingavenjum. Greinilegt er, einkum í
eldri hópunum, hve færri eru tenntir meðal
reykingafólksins.
Tafla III sýnir að tíðni tannátu var meiri meðal
karla en kvenna (p<0,001) og að tíðni tannátu
var hærri hjá reykingafólki af báðum kynjum
en hjá þeim sem aldrei höfðu reykt (p<0,001).
Þá sýnir hún einnig að reykleysingjar af
báðum kynjum höfðu fleiri fyllingar í tönnum
sínum (p<0,001) og að þeir sem reykja hafa
að meðaltali færri tennur en þeir sem ekki
hafa reykt.
í töflu IV sést ástand tannholds sem
hundraðshluti þeirra þátttakenda sem
höfðu tilsvarandi tölu hæsta við skráningu
á CPITN. Hundraðshluti reykleysingja,
af báðum kynjum, sem voru lausir við
tannholdssjúkdóma var nærri tvöfalt hærri
en meðal reykingamanna (p<0,01). I
hópi karlanna voru fyrrum reykingamenn
svipaðir þeim sem enn reyktu, en fyrrum
reykingakonur voru nær þeim reyklausu.
Table III. Smoking liabits and the average dental status.
Dentate subjects only. (Age standardized figures, 95%
confidence limits in parentheses).
Average no. of Men Women Both sexes
Decayed teeth
Non-smokers 1.78 1.18 1.48
(1.61;1.97) (1.06;1.32) (1.37;1.60)
Ex-smokers 2.21 0.88 1.54
(1.99;2.46) (0.72;1.08) (1.40;1.69)
Smokers 2.73 1.93 2.33
(2.50;2.98) (1.74;2.14) (2.18;2.49)
Filled teeth
Non-smokers 10.61 12.79 11.70
(10.18:11.06) (12.36:13.22) (11.40:12.01)
Ex-smokers 9.57 10.59 10.08
(9.11;10.07) (9.98:11.23) (9.70;10.48)
Smokers 10.11 11.11 10.61
(9.66:10.59) (10.64:11.60) (10.28:10.95)
Missing teeth
Non-smokers 4.52 4.92 4.72
(4.24;4.81) (4.66;5.19) (4.52;4.92)
Ex-smokers 6.84 6.59 6.72
(6.44;7.26) (6.13;7.47) (6.41;7.04)
Smokers 6.48 7.71 7.10
(6.12;6.86) (7.32;8.12) (6.83;7.38)