Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.08.1993, Qupperneq 43

Læknablaðið - 15.08.1993, Qupperneq 43
LÆKNABLAÐIÐ 1993; 79: 249-52 249 Þórarinn Gíslason '), Bryndís Benediktsdóttir 2) KÆFISVEFN: Einkenni, orsakir, algengi og afleiðingar INNGANGUR Stjórn öndunar í svefni er frábrugðin því sem gerist í vöku. Við vissar aðstæður geta alvarlegar öndunartruflanir komið fram í svefni (1,2). Lang algengast er að öndunin hætti alfarið í 10 sekúndur eða lengur og er þá talað um öndunarhlé (apnea). Ef öndunarhléin eru án samhliða aukningar á öndunarvinnu (central apnea) er ástæðan yfirleitt truflun í miðtaugakerfi. Oftast fer þó öndunarvinna sívaxandi eftir því sem líður á hléið (obstructive apnea) og er ástæðan oftast þrengsli í efri öndunarvegum. Hér á eftir verður eingöngu fjallað um þessa tegund öndunarhléa. Ef öndunarhléin eru 30 eða fleiri að nóttu og önnur sjúkdómseinkenni einnig fyrir hendi, er ástandið kallað kæfisvefn (sleep apnea syndrome) (1). Kæfisvefn getur verið á mjög mismunandi háu stigi, allt frá nokkrum tugum öndunarhléa upp í fleiri hundruð yfir nóttina. Ondunarhléin leiða meðal annars til röskunar á svefni og geta þannig haft víðtæk áhrif að degi til. Ondunartruflanir í svefni voru til skamms tíma taldar fátíðar, en samhliða bættum möguleikum til greiningar og meðferðar ásamt aukinni þekkingu á afleiðingum þeirra hefur komið í ljós, að kæfisvefn er meðal algengustu langvinnra sjúkdóma. Hér á eftir er ætlunin að lýsa helstu einkennum, orsökum, algengi og afleiðingum kæfisvefns. SÖGULEGT YFIRLIT Þótt kæfisvefn hafi verið lítt þekktur þar til fyrir 25 árum, er að finna í Lancet frá 1877 lýsingu á sjúkratilfelli þar sem sjúklingurinn hraut gífurlega og hafði endurtekin öndunarhlé (3). I sama riti 12 árum síðar er lýst tveimur verulega syfjuðum einstaklingum, sem hættu að anda, þegar þeir sváfu (4). Þessi Frá 1) lungnadeild Vifilsstaðaspítala og 2) Heilsugæslunni í Garðabæ. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Þórarinn Gíslason, lungnadeild Vífilsstaðaspítala, 210 Garðabær. sjúkdómsmynd þótti minna rnjög á litríka lýsingu Charles Dickens á feita stráknum Joe í Ævintýrum Pickwicks frá 1837 og var sjúkdómsástandið því almennt kallað Pickwickian syndrome fram á sjöunda áratuginn. Nú orðið telja flestir nafngift þessa nokkuð óheppilega og sé hún notuð, eigi hún eingöngu við sjúklinga sem eru; gífurlega feitir, syfjaðir að deginum, með cor pulmonale og hækkun á koltvísýringi að degi til. I bókmenntum má finna lýsingar á fólki sem mjög sennilega höfðu kæfisvefn (4) . Snorri Sturluson (d. 1241) lýsir í Snorra- Eddu ferð Þórs til Útgarða-Loka. Þar segir að Þór verði ekki svefnsamt vegna Skrýmis sem hraut svo gífurlega að dunaði í skóginum (5) . Það bendir hugsanlega á aukna syfju, að þegar Þór slær hann í höfuðið með hamrinum Mjölni, spyr Skrýmir aðeins hvort laufblað hafi fallið í höfuð sér. I fornsögunum eru það yfirleitt tröllskessur og lítilsigldar persónur, sem hrjóta, en aftur á móti er ýtarlega lýst draumum, því að söguhetjurnar dreymir oft fyrir daglátum. EINKENNI Einkennum kæfisvefns má skipta í tvennt. Annars vegar þau sem koma fram í svefni og hins vegar þau sem koma fram að degi til (tafla I). Kæfisvefnssjúklingar hafa langflestir sögu Tafla I. Helslu einkenni kœfisvefns. Einkenni í svefni: Háværar hrotur Öndunarhlé Óvær svefn - vaknar - martraöir Tíð næturþvaglát Nætursviti Bakfiæöi upp í vélinda Einkenni í vöku: Dagsyfja Þreyta Einbeitingarskortur og óþolinmæöi Kynlífsvandamál - getuleysi hjá '/3 karla

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.