Læknablaðið - 15.12.1994, Side 11
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
523
Tafla IV. Meðalgildi blóðþrýstingsmœlmga hjá körlum sem voru meðhöndlaðir með þvagrœsilyfjum eða fi-blokkum.
Þvagræsilyf þ-blokkar P-gildi Marktækni
meöaltal bþ meðaltal bþ tvíhliða m.v. 95%
Mælingar mm Hg mm Hg próf ö.m.
Slagbil 1 158,8 165,5 0,21 nei
Slagbil 2 153,4 165,2 0,02 já
Lagbil 1 88,5 90,7 0,33 nei
Lagbil 2 81,0 85,0 0,06 nei
einu lyfi hjá 95 körlum. Árangur var talinn
viðunandi ef blóðþrýstingur taldist innan við-
miðunarmarka Álþjóðaheilbrigðisstofnunar-
innar bæði í slagbili og lagbili. Myndin sýnir að
þvagræsilyf og þ-blokkar voru langmest notað-
ir, hins vegar sýnir tafla IV að meðferð með
þvagræsilyfi virtist áhrifaríkari en með
þ-blokkum og var marktækur munur á slag-
þrýstingsgildum við seinni mælingu.
Mynd 2 sýnir árangur meðferðar með tveim-
ur háþrýstingslyfjum hjá 49 körlum. Langal-
gengasta samsetningin reyndist vera þ-blokkar
og þvagræsilyf, síðan angíótensín ummyndun-
arblokkar og þvagræsilyf, þá þ-blokkar og
kalsíumblokkar. Fimm þátttakendur (10%)
tóku angíótensín blokka og þ-blokka og fjórir
(8%) þvagræsilyf og kalsíumblokka. Árangur
meðferðar reyndist svipaður og hjá þeim sem
tóku eitt lyf og reyndist um helmingur hafa
viðunandi blóðþrýstingsgildi. Af þeim fimm
körlum sem tóku þrjú lyf við háþrýstingi fengu
þrír þvagræsilyf, þ-blokka og angíótensín um-
myndunarblokka, einn þvagræsilyf, þ-blokka
og kalsíumblokka og einn þvagræsilyf, angíó-
tensínblokka og kalsíumblokka. Af þessum
fimm hafði aðeins einn viðunandi blóðþrýst-
ingsgildi.
Umræða
Algengi háþrýstings hjá íslenskum körlum er
háð aldri og eykst frá 5% um hálffertugt í 35%
hjá 75 ára körlum (1). Niðurstöður okkar
benda til enn hærra algengis hjá þeim elstu,
eða um 50% í hópi karla 70-84 ára. Rannsókn
okkar sýnir ennfremur að um 50% karla á
umræddum aldri fá viðunandi meðferð við
háþrýstingi. Doktorsritgerð Nikulásar Sigfús-
sonar sýnir bætta meðferð á árunum 1967-1981.
Svo virðist sem meðferðarárangur hafi ekki
batnað síðan 1981 þótt samanburður sé torveld-
ur vegna þess að mismunandi aldurshópar eru
bornir saman (1). Um 80% karla með háþrýst-
ing var kunnugt um sjúkdóm sinn.
%
Mynd 2. Árangur meðhöndlunar með tveimur háþrýstingslyfium
hjá 49 körlum.
Ýmsar skýringar kunna að vera á lökum ár-
angri meðferðar. Hugsanlegt er að blóðþrýst-
ingur mælist hærri á rannsóknarstöðinni en hjá
lækni sem sjúklingur hefur vanist að eiga sam-