Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.1994, Page 21

Læknablaðið - 15.12.1994, Page 21
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 533 Mánud. Þriöjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. Sunnud. Dagur Mynd 1. Hvenœr átti ofbeldið sér stað? Mynd 2. Aldursdreifing Reykvíkinga sem leituðu til slysa- deildar Borgarspítalans vegna ofbeldisáverka 1974-1991. Leiðrétt miðað við þriggja ára tímabil. Mynd 3. Aldursdreifing Reykvíkinga með ofbeldisáverka sem leiddu til innlagnar 1974-1991. Leiðrétt miðað við þriggja ára tímabil. Niðurstöður Til slysadeildar Borgarspítalans leituðu 19.073 sjúklingar með ofbeldisáverka á árun- um 1974-1991, karlar voru 13.198 (69,2%) en konur 5875 (30,8%). Þegar aldursleiðrétt heildartíðni er skoðuð (tafla I, aldursleiðrétt þriggja ára tímabil, 95% öryggisbil) sést að ofbeldisáverkum fjölgaði marktækt á seinni hluta áttunda áratugsins, bæði hjá körlum og konum (p<0,001). Um 1980 (frá 1977-79 til 1980-82) fækkar ofbeldisáverkum verulega eða um 30%. Síðan hefur verið stöðug aukning hjá körlum og er tíðni þar 1989-1991 álíka og hún var 1977-1979 eða rétt undir 20/1000 íbúa á ári. Hjá konum hefur aukningin verið minni en marktæk (p<0,01) og er tíðnin svipuð í lok rannsóknartímabilsins og hún var í byrjun eða um 7/1000 íbúa á ári. Hlutfallið milli karla og kvenna hefur aukist úr 2,4 í 2,8 á rannsóknar- tímabilinu (p<0,01). Árið 1991 urðu konur fyrir ofbeldisáverkum inni á heimili í 41% tilfella, en algengast var að karlar yrðu fyrir ofbeldisáverkum á skemmti- stað (25% tilfella) eða úti við (33% tilfella). í skóla átti ofbeldið sér stað í 5,6% tilvika hjá körlunt og 9,6% hjá konum (tafla II). Á mynd 1 sést, að ofbeldisáverkar eru 2,5 sinnum tíðari á laugardögum og sunnudögum en aðra daga, þannig að helmingur þeirra verð- ur á þessum dögum. Tíðni ofbeldisáverka sem leiddu til innlagnar sjúklings er talsvert frá- brugðin heildartíðni ofbeldisáverka. Tíðni þeirra breyttist óverulega á fyrri hluta rann- sóknartímabilsins (1974-1982) en hefur vaxið stöðugt síðan hjá báðum kynjum og liðlega tvöfaldast á tæpum 10 árum (tafla III, aldurs- leiðrétt þriggja ára tímabil, 95% öryggisbil miðað við 1974-1976, p<0,001). Árin 1989-1991 þurfti að leggja inn 5,6% karla eftir ofbeldisáverka en 6,0% kvenna. Hlutfall milli karla og kvenna sem þurfti að leggja inn er álíka í lok rannsóknartímabilsins og það var í byrjun eða um 2,6. Tíðni ofbeldisáverka var mest hjá aldurs- hópnum 15-19 ára en litlu munar á 20-24 ára (mynd 2). Tíðni ofbeldisáverka sem leiddu til innlagn- ar var mest hjá 20-24 ára körlum en hjá konum 30-34 ára (mynd 3). Ekki var hægt að fá neinar marktækar niður- stöður um það hvort hinn slasaði hafi verið undir áhrifum áfengis eða ekki. Á sjúkra-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.