Læknablaðið - 15.12.1994, Side 39
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
549
Table XII. Smoking, alcohol consumption and drug abuse in
view of participation in Lions Quest.
Part. Lions Quest No participation
n=280 (%> n=220 <%)
Smoking
& 1. cig./day 49 (17.5) 44 (20.0)
Cannabis
1-2 times 11 ( 3.9) 10 ( 4.5)
s 3 times 2 ( 0.7) 2 ( 0.9)
Sniffing solvents Once 10 ( 3.6) 9 ( 4.1)
2-3 times 10 ( 3.6) 3 ( 1.4)
3=4 times 7 ( 2.5) 1 ( 0.5)
Other drugs
1-2 times 16 ( 5.7) 12 ( 5.5)
S times 24 ( 8.6) 11 ( 5.0)
Alcohol — been Once >,high“ 28 (13.3) 24 (13.3)
2-3 times 33 (15.7) 35 (19.4)
ss 4 times 120 (57.1) 102 (56.7)
Áhrif forvarna: Þegar þeir sem farið hafa í
einhverjum mæli í gegnum LQ námsefnið
(n=280) eru bornir saman við hina sem ekki
hafa gert það (n=220) kemur ekki fram mark-
tækur munur varðandi neyslu vímuefna (tafla
XII). Viðhorf til LQ eru mjög mismunandi
eftir því hvort viðkomandi neytir vímuefna eða
ekki (tafla XIII). Settar voru fram fullyrðingar
um LQ og tóku þátttakendur afstöðu til þeirra
samkvæmt fimm valmöguleikum: Algjörlega
sammála, sammála, veit ekki, ósammála og
algjörlega ósammála. Ef þeir sem eru sammála
„jákvæðum“ áhrifum LQ eru bornir saman við
hina sem eru ósammála kemur í ljós að algeng-
ara er að þeir sem ekki eru í vímuefnaneyslu
telja LQ hafa haft jákvæð áhrif (tafla XIII).
Logistísk aðlivarfsgreining: Til þess að unnt
væri að meta hvað einkenndi helst vímuefna-
neytendur 1992 var beitt þrepa logistískri að-
hvarfsgreiningu. Hannað var líkan sem rnetur
líkurnar á því að vera í neysluhópi þeirra 235
unglinga sem höfðu sögu um áfengisnotkun
fjórum sinnum eða oftar og/eða reykingar og/
eða vímuefnaneyslu. Fylgibreyturnar voru
kyn, aldur, reykingar foreldra, hvort áfengis-
neysla hefði valdið vandræðum á heimili, þátt-
taka í félagi síðastliðinn mánuð og LQ. Með
eftirfarandi líkani er unnt að reikna út líkurnar
á því að vera í neysluhópnum:
jyj _j_ ^fasti + stuðull x kyn + stuðull x aldur + stuðull x reykingar
foreldra + o.s.frv.
Það líkan er skýrði best innihélt breytu er
sett var saman úr reykingum foreldra og því
hvort áfengisneysla hefði valdið erfiðleikum á
heimilinu. Þátttaka í LQ hafði ekki marktæka
þýðingu í ofangreindu líkani. Niðurstöður í
töflu XIV sýna vægi hvers þáttar fyrir sig og
tölfræðilega marktækni í ofangreindu líkani.
Samkvæmt ofangreindu líkani eru líkur ung-
lings á að lenda í vímuefnaneytendahópi meiri
hjá þeim eldri og meiri hjá þeim sem hafa ekki
tekið þátt í starfsemi félags. Reykingar for-
eldra og það að áfengisneysla hafi valdið erfið-
leikum á heimilinu auka einnig líkurnar á að
unglingurinn lendi í hópi vímuefnaneytenda.
Umræða
Um er að ræða framvirka samanburðarrann-
sókn á því hvaða þættir hafa áhrif á vímuefna-
neyslu unglinga og þá sérstaklega hvort viðhorf
og neysla unglinga sem lært hafa LQ náms-
efnið séu öðru vísi en þeirra sem ekki hafa gert
það. Telja verður að rannsóknin endurspegli
vímuefnaneyslu og viðhorf unglinga á þessum
aldri. Heimtur spurningalista voru nokkuð
góðar eða um 80%. Könnunin náði til allra
unglinga í þeim skólum sem rannsóknin tók til
og skólarnir voru valdir þannig að þeir endur-
spegluðu bæði þéttbýli og dreifbýli. Þó ber að
gæta þess, að í brottfallinu gætu hugsanlega
leynst nemendur sem frekar hefðu ánetjast
vímuefnum, því líklegt má telja að þeir séu
oftar fjarverandi frá skóla og hætti jafnvel frek-
ar skólagöngu.
Neysla vímuefna er mjög misjöfn eftir skól-
um (tafla VI) og má reikna með að staðbund-
inna áhrifa á viðhorfum til vímuefna gæti á
hverjum stað. Rannsóknin staðfestir þann
grun, að fjöldi unglinga hefji neyslu vímuefna
um fermingaraldur og rennir sú staðreynd fót-
um undir þá hugmynd að í síðasta lagi sé að
byrja með forvarnanámsefni á borð við Lions
Quest í síðustu bekkjum barnaskóla og byrjun
gagnfræðaskóla eins og reyndin er í dag.
Ef þeir unglingar sem byrja ungir að reykja,
drekka og jafnvel að neyta sterkari efna eru
skoðaðir nánar sést að ýmislegt er sameiginlegt
í lífsviðhorfum og fjölskyldumynstri þeirra.
Þessir unglingar virðast ekki eins tengdir fjöl-
skyldu sinni og hinir. Þeir eru sjaldnar heima á
kvöldin og eiga fá áhugamál sameiginleg með
foreldrum sínum. Foreldrar þessara barna eru
líka oftar fráskilin. Reykingar eru algengari í
þessum fjölskyldum og algengara er að