Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.1994, Page 50

Læknablaðið - 15.12.1994, Page 50
558 LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 Ályktun: Liðspeglunareyðublaðið gefur mögu- leika á nákvæmri tölvuvæddri sjúkdóma- og áverka- lýsingu ásamt því sem gert var. Eyðublaðið dugir í langflestum tilfellum sem stöðluð aðgerðarlýsing og við teljum að ekki þurfi að gera hefðbundna aðgerð- arlýsingu nema í undantekningartilvikum með auk- inni reynslu á notkun eyðublaðsins. Við teljum að þessi aðferð gefi meiri möguleika á nákvæmari skráningu og gæðaeftirliti en hefðbundin aðgerðar- lýsing. 15. Yfirlit yfir skurðaðgerðir vegna óstöðugra hálsáverka á íslandi 1975-1991 Ragnar Jónsson, Björn Zoega, *Asbjörn Jónsson, Þórir Ragnarsson Hryggjareining, Borgarspítalanum, *röntgendeild Borgarspítalans Inngangur: Frá 1974 hafa allir hálsáverkar, sem þarfnast aðgerðar verið meðhöndlaðir á Borgar- spítalanum f Reykjavík. Við höfum nú gert aftur- virka könnun á þessum áverkum. Aðferðir: Sjúkraskýrslur og röntgenmyndir sjúkl- inga með óstöðuga hálsáverka voru athugaðir. Skýrslur sjúklinga með taugaáverka og án taugaá- verka voru athugaðir. I könnunni er eingöngu at- hugaðir sjúklingar sem undirgengust aðgerð vegna hálsáverka. Skráður var aldur við áverka, hvernig slys gerðist, taugaáverki, áverkaskor (bæði AIS og ISS). Hálsáverkum var skipt eftir staðsetningu, áverkagerð og skekkju. Metin var rétting á skekkju samkvæmt rtg.myndum. Fylgikvillar eftir aðgerð og breytingar á taugastarfsemi var skráð. Niðurstööur: 1975-1991 voru gerðar aðgerðir vegna óstöðugra hálsáverka á 46 sjúklingum. Þrjátíu og sex voru karlmenn og átta konur. Meðalaldur var 33 ár (14-60 ár). Ástæður áverka voru umferðarslys í 34 sjúklingum (74%) og í 10 sjúklingum (22%) eftir fall úr hæð. Níu sjúklingar (20%) voru undir áhrifum áfengis. Tuttugu prósent höfðu engan taugaáverka, 25% höfðu mænuskaða sem ekki var alger og 22% höfðu algjöran mænuskaða. Þrjátíu og þrjú prósent höfðu stakan hálstaugarótaráverka. Sjötíu prósent höfðu enga aðra áverka. Algengustu aðrir áverkar voru brjósthols-, andlits- og lokaðir höfuðáverkar. Meðal áverkaskor (AIS) var 3,5 og 15,5 (ISS). Það var eitt brot á Cl, eitt C4/C5 brot-liðhlaup, átján C5/C6 brot-liðhlaup, fjórtán C6/C7 brot-liðhlaup og eitt C7/T1 brot-liðhlaup. Ellefu höfðu samfallsbrot í hálsliðbol. í 20 sjúklingum (40%) var gerð aftari innri festing með vírum og í 10 af þessum var gerð spenging með beinfrauði. Hjá 26 sjúklingum (46%) var gerð fremri spenging að hætti Smith-Robinsson án innri festingar. Tveir sjúklingar versnuðu í tauga- starfsemi (báðir með taugarótaráverka) og hjá tveimur bilaði innri festingin strax þannig að skekkja var um áverkastað. Enginn sjúklingur dó eftir að- gerð. Lokaorð: Þetta er afturvirk athugun sem aðallega beinist að lýsingum á hálsáverkum á Islandi og þeim skurðaðgerðum sem notaðar hafa verið við meðferð þessara áverka. Lýst er árangri þessara aðgerða strax eftir aðgerð. 16. Könnun á árangri aðgerða vegna óstöðugra brota á brjóst- og lendhrygg á íslandi 1975-1991 Ragnar Jónsson, Björn Zoéga, *Ásbjörn Jónsson, Bjarni Hannesson Hryggjareining, Borgarspítalanum, *röntgendeild Borgarspítalans Inngangur: Borgarspítalinn hefur haft til með- ferðar nær alla óstöðuga áverka á brjóst- og lend- hrygg á íslandi frá 1974. Við höfum gert afturvirka könnun á meðferð þessara áverka 1975-1991. Aðferðir: Sjúkraskýrslur og röntgenmyndir sjúkl- inga Borgarspítalans með óstöðuga brjóst- og lend- hryggjaráverka voru athugaðar. Athugaðar voru skýrslur sjúklinga með taugaáverka og án taugaá- verka. Könnunin nær til sjúklinga sem fóru í skurð- aðgerð vegna hryggjaráverka. Skráður var tími áverka, hvernig áverki gerðist. Taugaáverki, áverkaskor (AIS og ISS). Hægt var að meta rönt- genmyndir 47 sjúklinga af 50 með brjóst- og lend- hryggjaráverka. Röntgenmyndir þessara 47 sjúkl- inga hafa verið metnar fyrir aðgerð og eftir aðgerð. Áverkar hafa verið greindir eftir staðsetningu, skekkju og samfalli á liðbol. Áverkum var skipt í flokka að hætti Denis. Rétting eftir aðgerð var mæld samkvæmt röntgenmyndum. Fylgikvillar eftir að- gerð og breytingar á taugastarfsemi voru athuguð. Niðurstöður: Á árunum 1975 til 1991 gengust 68 sjúklingar undir aðgerðir vegna áverka á brjóst- og lendhrygg. Fjörtíu og sjö karlmenn og 21 kona. Meðalaldur var 31 ár (15-55). í þeim hópi þar sem hægt var meta röntengmyndir reyndust 17 vera af Denis flokki A, 22 af Denis flokki B, tvær af Denis flokki D og níu af Denis flokki E. Meðalhorn- skekkja (gibbus) var 15,7°. Nítján sjúklingar (28%) slösuðust í umferðarslysum, 27 (41%) eftir fall úr hæð og sjö (10%) í flugslysum. Þrjátíu ogfimm sjúkl- ingar (51%) höfðu eðlilega taugastarfsemi, 24 (35%) höfðu mænu- eða mænutaglsáverka sem þó var ekki alger og átta sjúklingar (12%) höfðu algjöran mænu- eða mænutaglsáverka. Flestir áverkar voru staðsett- ir milli 10. brjósthryggjarliðar og annars lendhryggj- arliðar (39 áverkar). Þrjátíu og fimm sjúklingar (51%) höfðu enga aðra áverka. Meðaláverkaskor (AIS) var 3,5 og 16,5 (ISS). í 35 sjúklingum (51%) var notuð innri festing með Harr-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.