Læknablaðið - 15.12.1994, Side 55
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
563
stigaðir samkvæmt TNM-stigunarkerfinu. Sjúkling-
um var skipt f tvo hópa, hóp A (n=ll) sem eru
sjúklingar greindir fyrir 1978 og hóp B (n=32)
greindir 1978 og síðar. Lífshorfur voru reiknaðar
með aðferð Kaplan Meier en við aðra útreikninga
var notast við kí-kvaðrat.
Nýgengi NS á rannsóknatímabilinu hér á landi var
1,8/105 karla á ári. Allir sjúklingarnir greindust á lífi
með einkenni og voru algengustu einkennin fyrirferð
(n= 42,98%) og verkur í pung (n=23,53%). Ellefu
sjúklingar höfðu einkenni meinvarpa (26%), oftast
kviðverki vegna meinvarpa í retroperitoneal eitlum.
Fimmti hver (21%) sjúklingur hafði einkenni í meira
en sex mánuði fyrir greiningu en 7% innan við tvær
vikur. Mesta þvermál æxlanna var á bilinu 10-80 mm
(meðaltal 40 mm) og greindust 26 þeirra í hægra eista
og 17 í því vinstra. Af 32 sjúklingum sem greindust
eftir 1978 voru 50% á stigi 1,3% á stigi II, 34% á stigi
III og 13% á stigi IV. Fimm ára lífshorfur voru 81%
fyrir hópinn í heild, 36% fyrir hóp A og 100% fyrir
hóp B. Marktækur munur var á lífshorfum hópa A
og B (p< 0,005). Sjö (64%) sjúklingar dóu í hópi A,
allir af völdum NS, en einn (3%) í hópi B úr AML.
Nýgengi NS er lágt hér á landi miðað við Dan-
mörku og Noreg en stigun æxlanna er svipuð. Lífs-
horfur eru sambærilegar við nágrannalöndin. Líkt og
erlendis vænkuðust horfur verulega upp úr 1978 en
þá var farið að nota saman cisplatín, vinblastin og
bleomycin í meðferð NS.
26. Greining og meðferð
nýrnaáverka á Borgarspítala
og Landakotsspítala
Guðjón Birgisson, Guðmundur Geirsson
Þvagfæraskurðdeild Borgarspítalans
Inngangur: A Norðurlöndum eru lokaðir
(,,blunt“) áverkar á nýrum lang algengastir. í flestum
tilfellum er þessum sjúklingum fylgt eftir án skurðað-
gerða. Ef um er að ræða meiriháttar áverka eða
samhliða áverka á öðrum líffærum er aðgerð oft
nauðsynleg. Tilgangur þessarar rannsóknar var að
kanna hvernig greiningu og meðferð nýrnaáverka er
háttað á Borgarspítala og Landakotsspítala á árabil-
inu 1982-1992.
Efniviður og aðferðir: Farið var yfir sjúkraskrár
allra sjúklinga sem lagðir voru inn á umrædd sjúkra-
hús á áðurnefndu tímabili og höfðu fengið ICD
greiningarnar 866 og 902.4. Averkar voru flokkaðir
samkvæmt flokkunarkerfi W.G. Guerriero (1).
Niðurstöður: Alls fundust 87 sjúklingar með
nýrnaáverka, 70 karlar og 17 konur. Meðalaldur var
26 ár (4-83). Áverkinn var hægra megin hjá 47 sjúkl-
ingum en 40 vinstra megin. Aðeins einn þessara 87
sjúklinga (1%) hafði fengið opinn áverka (hníf-
stunga). Annars voru orsakir í flestum tilvikum um-
ferðarslys (34), fall (27) og högg (19). Ellefu slysanna
tengdust íþróttaiðkun og sjö höfðu lent í ryskingum.
Alls höfðu 94% (82) sjúklinga blóðmigu við komu,
þar af helmingur makroskópíska. Átta sjúklingar
voru í losti við komu á sjúrahús (BÞ < 90mmHg),
þar af höfðu þrír makroskópíska blóðmigu og tveir
mikroskópíska. Þrír sjúklingar fóru í bráðaaðgerð
áður en sýni fékkst.
Minniháttar áverkar (tegund A og B) voru mun
algengari (85%) en meiriháttar áverkar (15%). Einn
sjúklingur fékk rof á æðastilk. Þrjátíu og fjórir hlutu
samtímis áverka á önnur líffæri og höfðu sex þeirra
meiriháttar nýmaráverka. Úrógrafía var gerð hjá 68
sjúklingum, og var eðlileg í 34 með minniháttar
áverka en þrír með meiriháttar áverka. Tölvusneið-
mynd (TS) sem gerð hjá 13 sjúklingum sýndi merki
um áverka hjá þeim öllum. Af 39 sem fóru í ómskoð-
un kom áverki í ljós hjá 18 sjúklingum. Angíógrafía
var gerð hjá þremur. Falskt neikvæð úrógrafía fannst
hjá 3 þeirra 37 sjúklinga þar sem gerð var bæði úr-
ógrafía og TS eða ómun og hjá einum sem fór í renal
angíógrafíu.
Áttatíu sjúklingar (92%) voru meðhöndlaðir án
aðgerðar en níu fóru í aðgerð á nýrum (sjö total
nefrektomíur, tvær partial nefrektomíur). Af alls 89
sjúklingum dó einn (vegna áverka á öðrum líffær-
um). Öllum farnaðist vel eftir aðgerðirnar. Af alls 87
sjúklingum dó einn af völdum annarra áverka.
Ályktun: Lokaðir áverkar eru lang algengasta teg-
und nýrnaávreka hér á landi. Stabilir sjúklingar með
vægan áverka samkvæmt sögu og skoðun ásamt
míkróskópískri blóðmigu hafa allir minniháttar
áverka. Röntgenrannsókn eða ómun hjá þessum
sjúklingum ætti því að vera óþörf. Tölvusneiðmynd
er besta rannsóknin hjá sjúklingum með grun um
meiriháttar áverka á nýrum.
Heimildir:
1. GuerrieroWG. Renaltrauma. In: Guerriero WG,
Devine CJ jr. Urologic injuries.
27. Hitameðferð með
örbylgjum um þvagrás eða
„transurethral resection“ við
góðkynja
blöðruhálskirtilsstækkun —
Niðurstöður úr framsýnni
rannsókn
Guðmundur Geirsson, Christer Dahlstrand, Maur-
itz Walden, Silas Petterson
Þvagfæraskurðdeildir Borgarspítalans og Sahl-
grenska sjúkrahússins í Gautaborg
Inngangur: Miklar breytingar hafa átt sér stað