Læknablaðið - 15.12.1994, Side 65
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
573
reyndust allir flokkaðir með enga eða óverulega
verki.
Ályktanir: Að mati foreldra eru verkir eftir kviðsl-
itsaðgerðir á yngri börnum óverulegir og notkun
verkjastíla er því lítil. Flestir eru komir á fulla fóta-
ferð daginn eftir aðgerð. Staðdeyfing virðist hjálpa
sumum, en notkun meiriháttar leiðsludeyfinga er
óþörf og örsjaldan ætti að þurfa að grípa til sterkra
verkjalyfja. Drengir sem eru að komast á kynþroska-
aldur geta hins vegar haft talsverða verki.
52. Verndandi áhrif
formeðferðar með
deferoxamine á myndun
staklinga og varðveislu
nýrnastarfsemi eftir
blóðflæðisskort — Rannsókn
á kanínunýrum
Guðjón Haraldsson, Sörensen V, Nilsson U, Jons-
son O
Þvagfæraskurðdeild Landspítalans og Sahlgrenska
sjúkrahússins, Gautaborg
Myndun staklinga hefur reynst vera veigamikill
þáttur í þeim nýrnaskemmdum sem sjást við endur-
flæði blóðs til nýrna, sem útsett hafa verið fyrir blóð-
skorti. Fyrri rannsóknir á þessu sviði hafa byggs á
óbeinum mælingum þar sem verndandi áhrif hinna
ýmsu efna, sem hefta myndun staklinga hefur verið
könnuð. Við höfum nýlega kynnt nýja aðferð til
beinna mælinga á myndun staklinga í kanínunýrum.
Gefinn er spunahremmir (OXANOH) með þeim
eiginteikum að geta gengið í efnahvarf með skamm-
lífum staklingum og myndað stöðugan stakling (OX-
ANO-). Þéttni OXANO- í nýrnabláæð er síðan
mæld með spunahermismælingu (ESR).
Mælingar þessar sýndu að án formeðferðar varð
róttæk aukning á myndun staklinga við endurflæði
blóðs eftir 60 mínútna blóðflæðisskerðingu til nýrna.
Er deferoxamine var gefið bæði fyrir lokun nýrnasla-
gæðar og fyrir endurflæði blóðs við 60 mínútna blóð-
flæðisskerðingu varð marktæk minnkun á myndun
staklinga. Pessar niðurstöður benda til þess að bind-
ing járns til dæmis med forgjöf deferoxamins hindri
myndun hins illskeytta hydroxyl staklings frá super-
oxide og hydrogen peroxide. Samtímis rannsóknir á
nýrnastarfsemi sýndu að forgjöf deferoxamins leiddi
til betri varðveislu nýrnastarfsemi mælt 48 tímum
eftir 60 mínútna blóðflæðisskerðingu.
Niðurstöður þessar benda til að hafa ætti í huga
gjöf á járnbindandi lyfjum við nýrnaflutninga eða við
nýrnaskurðaðgerðir þegar blóðflæði til nýrna er
skert.
53. Fylgikvillar í
miðtaugakerfi af völdum
sýkinga í miðeyra og skútum
Fríðrik Kristján Guðbrandsson
Háls-, nef- og eyrnadeild Borgarspítalans
Miðeyrnabólga og skútabólga (otitis media —
sinusitis paranasalis) eru tíðir sjúkdómar. Fyrir daga
sýklalyfja gátu þesir sjúkdómar tekið á sig alvarlega
mynd og valdið sýkingum í aðlægum líffærum, svo og
í miðtaugakerfi. Alvarlegir fylgikvillar þessara sjúk-
dóma hafa orðið æ sjaldgæfari.
Milli 1981 og 1990 voru átta sjúklingar meðhöndl-
aðir á Borgarspítalanum vegna alvarlegri fylgikvilla í
miðtaugakerfi frá sýkingum í miðeyra og skútum.
Tólf fylgikvillar fundust í átta sjúklingum. ígerð í
heila var algengasti og alvarlegasti fylgikvillinn.
Sýklalyfjagjöf kann að gefa falska öryggiskennd en
alvarlegir fylgikvillar geta engu að síður verið á
næsta leyti með hastarlegum afleiðingum. Full
ástæða er til að minna aftur á tilveru þessara fylgik-
villa.
54. Gróandi æðaþels yfír
slagæðatengingar og
bláæðatengingar í rottum
Björn Þ. Sigurbjörnsson, Hallberg E, Sandberg Á
A, Ribbe E
Kirurgiska och Zoologiska Inst., Lunds Universitet,
Svíþjóð
Denuding endothelial damage et anastomoses
may lead to thrombotic complications and failure of
microvascular reconstructions. Early confluent en-
dothelial healing at anastomoses may reduce throm-
botic and other complications. The progress of en-
dothelial coverage of anastomotic structures in the
Aorta and Inferior Vena Cava (IVC) of the rat, was
evaluated at 3, 5, 8,11 and 14 days after completion
of the anastomoses, by means of scanning electron
microscopy. Arterial anastomotic patency was
100%, venous patency was 84%. It was found that
endothelial healing progressed towards thin conflu-
ent coverage first, thereafter thickening of the co-
verage; coverage was first achieved at the needle
defect, then the anastomotic junction and lastly the
suture; the same stage of endothelial coverage of
anastomotic structures was reached 5 to 8 days soon-
er at IVC anastomoses than in the Aorta.
55. Togstyrkur
slagæðatenginga og
bláæðatenginga í rottum
Björn Þ. Sigurbjörnsson, Löwenhjelm P, Bjarni A.
Agnarsson, Stenram U, Ribbe E