Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.1994, Side 68

Læknablaðið - 15.12.1994, Side 68
SCHERING Diane mite Eina meðferðin við húðþrymlum sem veitir samtímis getnaðarvörn Diane mite (Schering, 792361) TÖFLUR G 03 H B 01 Z E Hver tafla inniheldur: Cyproteronum INN, acetat, 2 mg, Ethinylestradiolum INN 35 míkróg. Eiginleikar: Cýpróterónacetat er steri, sem blokkar andrógen viðtæki í frumum og hamlar verkun karlhormóna. Efnið hefur auk þess gestagen og and-gónadótróp verkun. Blandan cýpróterón acetat og etinýlestradíól veitir getnaðarvörn. Bæði efnin frásogast fullkomlega úr meltingarvegi og hámarksblóðþéttni er náð 14-3 klst. eftir inntöku. Ábendingar: Andrógenháðir kvillar í húð kvenna: gelgjubólur (acne) á háu stigi, hárvöxtur í andliti, feit húð, karlmannaskalli. Getnaðarvörn hjá konum með ofannefnda kvilla. Frábendingar: Þungun, brjóstagjöf, lifrarsjúkdómar, Dubin-Johnsons syndrome, Rotor syndrome, æxli í lifur, ill- eða góðkynja æxli í brjóstum, legbolskrabbamein, saga um blóðtappa eða bláæðabólgu í fótum eða blóðrek, sigðfrumublóðleysi, truflun á blóðfituefnaskiptum, saga um herpes í þungun, otosclerosis. Sykursýki og háþrýstingur geta versnað. Ekki má nota aðrar getnaðarvarnatöflur samtímis töku þessa lyfs. Aukaverkanir: Brjóstaspenna, magaóþægindi, ógleði, höfuðverkur, þyngdaraukning, minnkuð kynhvöt, depurð, chloasma, mígreni, æðabólgur og -stíflur, segarek til lungna, háþrýstingur, sykursýki. Milliverkanir: Barbitúrsýrusambönd, rífampicín og flogaveikilyf geta dregið úr áhrifum lyfsins. Lyfið getur haft áhrif á virkni ýmissa lyfja, t.d. blóðþynningarlyfja, sykursýkilyfja o.fl. Varúð: Hætta skal töku lyfsins þegar í stað, ef grunur er um þungun (feminiserandi áhrif á karlfóstur), við byrjun á mígreni eða slæmum höfuðverkjaköstum, sjóntruflunum, merki um blóðtappa, bláæðabólgu eða segarek, ráðgerða skurðaðgerð (hætta notkun lyfsins 6 vikum áður), við rúmlegu t.d. eftir slys, við gulu, lifrarbólgu, versnun á flogaveiki og við bráða versnun á háþrýstingi. Konum, sem reykja, er mun hættara en öðrum að fá alvarlegar aukaverkanir frá æðakerfi. Athugið: Áður en notkun lyfsins hefst þarf vandlega læknisskoðun, sem felur í sér kvenskoðun, brjóstaskoðun, blóðþrýstingsmælingu, mælingar á blóðsykri og lifrarenzýmum. Sérstaklega þarf að útiloka að þungun sé til staðar. Fylgjast þarf með konum, sem nota lyfið, á u.þ.b. 6 mánaða fresti. Skammtastærðir: Meðferð hefst á 1. degi tíða og er þá tekin 1 tafla á dag á sama tíma sólarhringsins í 21 dag samfleytt. Síðan er 7 daga hlé á töflutöku áður en næsti skammtur er tekinn á sama hátt og áður, en í hléi má búast við blæðingu. Ekki mega líða meira en 36 klst. á milli þess að töflur eru teknar. Ef lengri tími líður eða ef konan kastar upp eða er með niðurgang, verður einnig að nota aðra getnaðarvörn þar til næsti tíðahringur hefst. Pakkningar: 21 stk. X 1 (þynnupakkað), 21 stk. X 3 (þynnupakkað). Hverri pakkningu lyfsins skal fylgja íslenskur leiðarvísir með leiðbeiningum um notkun þess og varnaðarorð. Skráning lyfsins er bundin við lyfjaávísanir sérfræðinga í húðlækningum, kvenlækningum og innkirtlafræðum. Heimildir: Carlborg L. Cyproterone acetate versus levonorgestrel combined with ethinyl estradiol in the treatment of acne. Acta Ostet Scand 1986 Suppl 134:29-32. ^ mrn Stefán Thorarensen Siðumúla 32 108 Reykjavík Sími 91-686044 SCHERING
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.