Læknablaðið - 15.12.1994, Síða 78
584
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
Dreifibréf landlæknisembættisins
Ráðleggingar varðandi bólusetningar
gegn barnaveiki
Á undanförnum fjórurn árum
hefur borið á vaxandi fjölda til-
fella af barnaveiki í löndum
fyrrum Sovétríkjanna. Land-
læknir mælist því til þess að
ferðamenn, sem leið eiga til
þessara landa, fái örvunar-
skammt af diptheria toxoid
(d=2 Lf) sem gefa skal með tet-
anus toxoid T (T= 5 Lf) áður en
lagt er í ferðina, ef meir en 10 ár
hafa liðið frá síðustu bólusetn-
ingu. Þessi samsetning bóluefn-
isins er nefnd (dT).
Ætla má að einstaklingar,
sem eru 50 ára og eldri, séu ekki
með fullnægjandi vörn gegn
barnaveiki þar sem þeir hafi
ekki fengið grunnbólusetningu
gegn sjúkdómnum. Því er mælt
með að grunnbólusetja þá með
dT (0,5 ml) með sex til átta
vikna millibili og gefa samsvar-
andi örvunarskammt sex til 12
mánuðum síðar hyggi þeir á
ferð til svæða þar sem sjúkdóm-
urinn er landlægur. Með þess-
um hætti er ekki þörf á að gera
Schick próf fyrir bólusetningu.
Mælt er með því að þeir ein-
staklingar sem eru grunnbólu-
settir gegn barnaveiki fái örvun-
arskammt af dT á 10 ára fresti.
Einnig er mælst til þess að allir
sem fá stífkrampasprautu vegna
sármengunar þar sem liðið hafa
meir en 10 ár frá grunnbólusetn-
ingu vegna stífkrampa fái jafn-
framt diptheria toxoid (dT).
Athugið: Skammtur sá af
diptheria toxoid sem notaður er
við bólusetningu barna yngri en
sjö ára (DPT á fyrsta ári og DT
við sex ára aldur) er mun hærri
(D= 20 Lf eða 40 U/L) en sá
sem nota skal hjá þeim sem eldri
eru. Ástæðan er sú að þeir sem
Inflúensa
Landlæknir minnir á tilmæli
um hina árlegu inflúensubólu-
setningu til handa öllum sem
eru eldri en 60 ára og einstak-
lingum sem eru í sérstökum
áhættuhópum. Nýlegar rann-
sóknir styðja eindregið gagn-
semi slíkra bólusetninga sem
kernur fram í fækkun á sjúkra-
húsinnlögnum vegna lungna-
bólgu og inflúensu um 48-57%,
kostnaðarlækkun vegna minni
spítalalegu um 52-66% og
lækkun á dánartíðni um 39-
54% (N Engl J Med 1994; 331:
12).
eldri eru en sjö ára geta fengið
verulegar staðbundnar auka-
verkanir af hærri skammtinum.
Pneumókokkasýkingar
Landlæknir vill einnig minna
á bólusetningar gegn pneumó-
kokkasýkingum á fimm ára
fresti til handa öllum sem eru
eldri en 60 ára og einstaklingum
sem eru í sérstökum áhættuhóp-
um. Á undanförnum árum hef-
ur skilningur rnanna á gildi
pneumókokkabóluefnis við að
draga úr tíðni lungnabólgu af
völdum þessara baktería aukist.
Er nú almennt ekki dregin í efa
gagnsemi þessara bólusetninga
meðal eldri einstaklinga (Arch
Intern Med 1990; 150; 1373,
N Engl J Med 1991; 325: 1453,
1506).
Gert í samráði við Farsóttanefnd ríkisins.
Gert í samráði við Farsóttanefnd ríkisins.
Bólusetning gegn inflúensu
og pneumókokkasýkingum