Læknablaðið - 15.12.1994, Blaðsíða 83
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
587
Tryggingafrettir
Bretland — NHS
Það er yfirlýst stefna breskra
stjórnvalda að fækka lífeyris-
þegum þar í landi urn 200.000 á
næstu tveimur árum. Fram til
þessa hafa örorkumöt vegna líf-
eyristrygginga í Bretlandi verið
að mestu í höndum heimilis-
lækna. Til stendur að breyta
þessu fyrirkomulagi á þann
hátt, að umsækjandinn svarar
nú sjálfur ákveðnu spurninga-
eyðublaði og fer síðan í viðtal og
skoðun til heimilislæknis, sem
einnig fyllir út sérstakt eyðu-
blað með stöðluðum spurning-
um um ýmis læknisfræðileg atr-
iði. Fyrir hvert atriði eru gefin
ákveðin stig eða einkunn. Síðan
er það í höndum lækna er starfa
hjá tryggingastofnuninni (Ben-
efits Agency Medical Service)
að segja til um endanlegt ör-
orkumat samkvæmt niður-
stöðunum.
Breski félagsmálaráðherrann
sir William Hague, hefur lýst
yfir ánægju sinni með þetta nýja
fyrirkomulag og bent á, að
heimilislæknar eigi oft erfitt
með að kveða upp hlutlausan
úrskurð vegna náinna tengsla
við sjúklinginn. Gagnrýnisradd-
Breytingar hjá TR
Talsverðar breytingar eiga
sér nú stað innan veggja TR. í
nýlegri skoðanakönnun sem
gerð var meðal starfsfólks TR
kom í ljós að húsnæðismálin eru
þau málefni sem eru efst á baugi
og starfsmenn kvarta mest und-
an. Gífurleg þrengsli eru á
mörgum deildum og aðkoma að
húsinu, til dæmis fyrir fatlaða,
er afar slæm. Ekki er enn komin
lausn á þessu stóra húsnæðis-
vandamáli. Unnið er að endur-
skipulagningu allra deilda TR.
Mikil uppbyggingarstarfsemi
fer nú fram hvað varðar tölvu-
mál stofnunarinnar. Upplýs-
inga- og greiðslukerfið
TRYGGVI, sem er sérhannað
tölvuforrit verður væntanlega
tekið í notkun um næstu mán-
aðamót, en með tilkomu þess
eiga viðskiptavinir TR að geta
fengið nákvæmari upplýsingar
en áður um lífeyrisgreiðslur
meðal annars á nýjum greiðslu-
seðlum. Unnið er að undirbún-
ingi EDI, það er pappírslausrar
vinnslu fyrir TR, sem ætti að
geta stórbætt samskiptin til
dæmis við lækna, en slík tækni
gefur möguleika á að senda
upplýsingar á milli á stafrænu
formi.
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKISINS
ir hafa þó heyrst. til dæmis frá
varaformanni nefndar um störf
heimilislækna sir John Chis-
holm, sem bent hefur á að þótt
margir heimilislæknar séu því
fegnastir að losna við örorku-
mötin, þá sé visst ósamræmi í
hinu nýja kerfi, sem gerir ráð
fyrir því að umsækjandinn fái
ákveðin stig fyrir ýmsar athafnir
svo sem að taka upp kartöflu-
poka, ganga 45,7 metra, setja á
sig hattinn og halda á vasabrots-
bók. Þeir sem ekki geti fram-
kvæmt tvær síðastnefndu at-
hafnirnar fari að öllum líkind-
um beint á örorku!
Uppbót á lífeyri
Hægt er að sækja um upp-
bót til lífeyrisdeildar TR
fyrir þá lífeyrisþega, sem
hafa mikinn kostnað vegna
lyfja. Mikilvægt er að læknar
tilgreini í vottorði sínu nöfn
þeirra lyfja, sem sjúklingur
notar reglulega og magn
þeirra svo hægt sé að reikna
út þennan kostnað. Engin
sérstök eyðublöð eru fyrir
slík vottorð (sem er nú ólíkt
okkur hjá TR).
Munið....... að sækja þarf
um allar bætur!