Læknablaðið - 15.12.1994, Qupperneq 84
588
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
Biðlistar á sjúkrahúsum
Landlæknir hefur á undan-
förnum árum safnað saman
upplýsingum um biðlista frá
nokkrum sjúkrastofnunum.
Reynt er eftir fremsta megni að
hafa upplýsingarnar sem nýjast-
ar og áreiðanlegastar.
Á hefðbundnum biðlistum
eru nú 4.292 einstaklingar sem
er 20,3% aukning frá 1991 eða
um tæp 7% á ári að jafnaði. Frá
1993 jukust þessir biðlistar um
6,4% ef lýtalækningum er
sleppt, en eins og alkunna er
breyttust greiðsluákvæði vegna
lýtalækninga á síðasta ári og
skekkir það heildarmyndina
nokkuð hvað heildartölu ein-
staklinga á biðlistum varðar.
Smávægilegar sveiflur eru á
biðlistum milli ára eftir aðgerð-
um, en í heild má segja að þeir
lengist. Alvarlegast er þó að
einstaklingum á biðlistum sem
bíða eftir bæklunarlækningum
hefur fjölgað mest, að jafnaði
um 27,5%, séu allar stofnanir
teknar saman og 56,5% bæði á
Landspítala og St. Jósefsspítala
í Hafnarfirði. Meðalbiðtími eft-
ir aðgerð á bæklunarlækninga-
deild/slysadeild Borgarspítala
er í dag 300 dagar, og meðalald-
ur þeirra sem þar bíða eru 46 ár,
það er fólk sem er enn á „vinnu-
aldri“.
í>á er einnig óheppilegt hve
margir bíða eftir hjartaþræðing-
um og hve mikið
sá biðlisti hefur
vaxið milli ára,
bæði á Landspít-
ala og Borgarspít-
ala. Þessi biðlisti
skýrir einnig mjög
líklega að ein-
hverju leyti styttri
biðlista eftir
hjartaaðgerðum á
Landspítala, enda
koma gjarnan
hjartaaðgerðir í kjölfar hjarta-
þræðinga. Meðalaldur þeirra
sem bíða eftir hjartaþræðingum
á Borgarspítala er 60 ár og
meðalbiðtími 120 dagar. Á
Borgarspítala er biðtími
minnstur 99 dagar á þvagfæra-
skurðdeild en meðalaldur
þeirra sem bíða er 68 ár. Biðtími
á Borgarspítala er lengstur á
háls-, nef- og eyrnadeild, eða
335 dagar og á þeirri deild spít-
alans er lægstur meðalaldur,
það er 30 ár. Sambærilegar tölur
fyrir St. Jósefsspítala í Hafnar-
firði eru 158 daga biðtími og
meðalaldur 18 ár. Á Landspít-
ala er meðalbiðtími allra ein-
staklinga á biðlistum 125 dagar
og meðalaldur 46 ár. Eflaust
vegur þar þungt tiltölulega hátt
hlutfall þeirra sem bíða eftir að-
gerðum vegna lýtalækninga,
enda er meðalaldur þeirra sem
bíða eftir þessum aðgerðum á
St. Jósefsspítala í Hafnarfirði 32
ár og meðalbiðtími 186 dagar.
Á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri hafa biðlistar haldist
stöðugir milli ára hvað varðar
bæklunarlækningar en nokkur
aukning er á biðlistum vegna
endurhæfingar. Á FSA er
meðalaldur þeirra sem bíða eft-
ir bæklunarlækningum hæstur,
52 ár og meðalbiðtími 161 dag-
ur.
Landlæknisembættið
Yfirlit yfir bidlista sérgreina-
sjúkrahúsa. Tölur miðast við 1.
september hvert ár.
01.09. 01.09. 1993 1994
Bæklunardeildir
Landspítali 177 277
Borgarspítali 512 607
Landakotsspítali 5 -
St. Jósefsspítali, Hafnarfirði 108 169
FSA 111 111
Alls 913 1164
Hjartaskurðlækningar
Landspítali 82 62
Hjartaþræðingar Landspítali 70 100
Borgarspítali 50 59
Alls 120 159
Háls-, nef- og eyrnadeild
Borgarspítali 841 788
St. Jósefsspítali, Hafnarfirði 102 189
AIIs 943 977
Þvagfæraskurðlækningar
Landspítali 444 459
Borgarspítali 60 44
Landakotsspítali 34 -
St. Jósefsspítali, Hafnarfirði 60 16
Alls 598 519
Endurhæfing
Borgarspítali 0 7
Kristnes 25 35
Reykjalundur 511 474
Alls 536 516
Biðlistar án lýta-
lækninga 3192 3397
Lýtalækningar
Landspítali 652 660
St. Jósefsspítali, Hafnarfirði 102 101
Borgarspítali 180 134
Alls 934 895
AHir biðlistar 4126 4292
Fjöldi einstakiinga á biðlistum á nokkrum
sjúkrastofnunum 1991-1994
þús.
5r
Landlæknisembættið 11/1994