Læknablaðið - 15.06.1995, Blaðsíða 59
MÓNÍT-L
(ísósorbíð mónónítrat)
-forðalyf við hjartaöng einu sinni á dag.
Mónít-L (ísósorbíö mónónitrat)
Framlcióandi: OMEGA FARMA hf., Kársnesbraut 108, 200 Kópavogur.
Foröahylki; C 01 D A 14. Hvert foröahylki innihcldur: Isosorbidi mononitras
INN 30 mg eða 60 mg. Eiginlcikar: Ísósorbíð mónónítrat er virkt umbrotsefni
ísósorbíð dínítrats. Þaö slakar á sléttum vöðvum æða, aðallega í bláæðum, minnkar
þannig flæði til hjartans og þar með hjartastærö og auöveldar samdrátt hjartans. Lyfið
hefur einnig bein útvíkkandi áhrif á kransæðarnar. Aðgengi lyfsins er um 90%.
Blóðþóttni nær hámarki eftir 3-4 klst. og eftir 12 klst. er þéttni ekki svo mikil að þol
myndist. Helmingunartími er 4-8 klst. Umbrotnar í lifrinni og niðurbrotsefni útskiljast í
þvagi. Áhrif lyfsins vara í um 12 klst. Ábendingar: Hjartaöng, til að koma í veg fyrir
verk. Frábcndingar: Lágur blóðþrýstingur, sérstaklega eftir hjartadrep. Mikið
blóðleysi. Aukinn þrýstingur í miötaugakerfi. Slagæðasjúkdómur í heila. Ofnæmi fyrir
nítrötum. Mcóganga og brjóstagjöf: Öryggi lyfsins á meðgöngu og við brjóstagjöf
hefur ekki verið staðfest. Aukavorkanir: Höfuðverkur. Æðasláttur og roði. Lágur
blóðþrýstingur. Svimi. Yfirlið. Hraöur hjartsláttur. Uppköst. Milliverkanir: Áfengi
getur aukið blóöþrýstingslækkandi áhrif lyfsins. Varúö: Viö brátt hjartadrep á aðeins
að nota lyfiö undir mjög nákvæmu eftiriiti. Skammtastæröir handa fullorönum:
í upphafi meöferðar er ráölagður skammtur 30 mg á dag. Venjulegur skammtur er 60
mg á dag, gefiö aö morgni. Ef þörf krefur má auka skammt í 120 mg á dag sem taka
skal í einum skammti að morgni. Vegna hættu á myndun þols viö
langvarandi notkun nitrata er óráölegt aö nota nítröt samflcytt meira
en 12 klst. i hverjum sólarhring. Lyfiö er ekki ætlaö börnum.
Pakknlngan
Foröahylki 30 mg: 30 stk.; 100 stk.
Foröahylki 60 mg: 30 stk.; 100 stk.