Læknablaðið - 15.06.1995, Blaðsíða 64
504
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
Hneykslið í læknasamtökunum
Á framhaldsaðalfundi Lækna-
félags íslands (LÍ) síðastliðið
haust voru samþykktar breyt-
ingar á lögum félagsins þannig
að nú er fulltrúafjöldi hvers
svæðafélags í hlutfalli við fé-
lagatölu þess en ekki fjölda
sauðkinda á félagssvæðinu eins
og áður var. Þetta er aðeins lítið
skref í átt til þess að hægt sé að
framkvæma róttæka endur-
skipulagningu á starfsemi
læknasamtakanna. Dæmi um
vanmátt þeirra er tilvísanamálið
svokallaða. Skrifstofa samtak-
anna var sem lömuð vegna
togstreitu ólíkra hagsmunahópa
innan samtaka okkar.
Ef til vill er lausnin sú að
skipta samtökunum stjórnunar-
lega og fjárhagslega í þrjá hópa:
Unglækna, heimilislækna og
sérfræðinga. Þessir hópar
myndu síðan sameinast í mál-
um, sem snerta lækna sem
heild, en geta barist með mis-
munandi áherslum fyrir sér-
hagsmunum sínum. Til þess að
þetta yrði framkvæmanlegt þarf
fjárhagur að vera aðskilinn.
Hver hópur myndi til dæmis
greiða 10-15 þúsund krónur á
ári fyrir hvern félaga til skrif-
stofunnar en hafa að auki eiginn
starfsmann þar. Þetta er ein-
ungis lausleg hugmynd en þó
sett fram í fullri alvöru. Ymsir
hafa talað um nauðsyn svona
skiptingar innan LR en ég vil
framlengja hugmyndina til LI.
Forsaga lagabreytinganna
sem nefndar voru í upphafi, eru
þær að mjög var kvartað um
skort á lýðræði og lýðræðisleg-
um vinnubrögðum í samtökum
lækna. Meðal annars í Frétta-
bréfi lækna fyrir tveimur árum
síðan. Tilefnið þá var úrsögn
mín úr stjórn Námssjóðs lækna
(NL). Ég vildi síðan kynna
ástæður afsagnar minnar fyrir
félögum mínum í læknastétt. í
ljós kom að einungis fulltrúar
svæðafélaga máttu mæta á aðal-
fund LÍ og fundir LR voru um
afmörkuð mál, liðu því nokkur
ár þar til færi gæfist.
Helsta ástæða úrsagnar minn-
ar var sú að í tvö ár voru engir
reikningar sjóðsins lagðir fram.
Kom þetta skýrt fram í upp-
sagnarbréfi mínu til stjórnar LR
á sínum tíma. Reikningar fyrir
árið 1991 voru síðan lagðir fram,
en engir eftir það! Mér var tjáð
að stjórn NL hafi sagt af sér um
síðustu áramót (’94-’95) án þess
að skila af sér reikningum.
Svona vinnubrögð eru fáheyrð
og eru auðvitað andstæð öllum
félagsvenjum. Stjórninni ber að
skila reikningum og ársskýrslu
til viðtakenda sinna. Stjórnin
verður að kalla til utanaðkom-
andi aðila ef reikningar fást ekki
öðruvísi. Ég lýsi ábyrgð á hend-
ur þessarar stjórnar. Brýnt er að
koma þessum málum á hreint,
þar sem búið er að ákveða að
hætta starfsemi NL. Þegar síð-
ast fréttist var eigið fé sjóðsins
um 50 milljónir króna auk inni-
stæðna einstakra lækna.
Reikningar LÍ fyrir árið 1993
voru lagðir fyrir aðalfund haust-
ið 1994 og voru í fyrsta sinn árit-
aðir af löggiltum endurskoð-
anda, sem jafnframt fram-
kvæmdi endurskoðun á
reikningunum. Engar athuga-
semdir voru gerðar við þá fá-
heyrðu staðreynd að engir voru
reikningar frá Námssjóðnum.
Ég lét því blekkjast til að sam-
þykkja ársreikning LÍ fyrir árið
1993. Forystumenn læknasam-
takanna virðast lítinn vilja hafa
til að koma þessum málum á
hreint og njóta til þess stuðnings
margra fyrrverandi og verðandi
stjórnarmanna í samtökum
okkar.
í fyrstu virtist námssjóðsmál-
ið vera smámál sem strax yrði
kippt í liðinn þegar athygli
manna væri vakin á þessari
óreglu. Raunin hefur orðið
önnur. Nú síðast á aðalfundi
LR, sem nýlega var haldinn í
Kópavogi fékk formaður LI
samþykkta dagskrártillögu um
að vísa einni ályktunartillögu
frá mér til stjórnar og tókst
þannig að hindra umræður um
atkvæðagreiðslu um efnisatriði
hennar. Sami formaður reyndi
síðar árangurslaust að fá fund-
arstjóra til að meina mér að
flytja tillögu um námssjóðinn,
sem síðan var samþykkt með
þorra atkvæða gegn einu.
Á sama aðalfundi var einn
dagskrárliður helgaður Sjálfs-
eignarstofnuninni Domus
Medica (SDM), sem er sjóður í
eigu læknafélaganna. Árs-
skýrsla og reikningar þessarar
stofnunar hafa ekki verið lagðir
fram á aðalfundum LI (a.m.k.
ekki fyrir árin ’93 og ’94). Sam-
kvæmt aðeins munnlegri um-
sögn formanns SDM á þeim
fundum heyrðist mér hann segja
að eigið fé væri svipað og hjá
námssjóðnum eða um 50 mill-
jónir króna. Kannski eru þessi
vinnubrögð, að fjalla svona
lauslega um eina af stærri eign-
um læknasamtakanna sam-
kvæmt einhverri gamalli venju.
Á títtnefnum aðalfundi LR
hrökk ég við, þegar fundarstjóri
tilkynnti að formaður SDM
væri kvefaður og félli þessi liður