Læknablaðið - 15.06.1995, Blaðsíða 76
Glaxo, 920135
Innúðaduft (duft í afmældum skömmtum til innúðunar): R 03 B A 05
Hvert hylki inniheldur: Fluticasonum INN, propionat, 100 míkróg eða 250
míkróg.
Innúðalyf; R 03 B A 05
Hver úðaskammtur inniheldur: Fluticasonum INN, propionat 50 míkróg eða
125 míkróg.
Drifefni: Dichlorodifluoromethanum og Trichlorofluoromethanum.
Eiginleikar: Flútíkasónprópíónat hefur kröftug sykursteraáhrif. Það hefur
bólgueyðandi áhrif (loftvegum og lungum. Lyfið hefur óveruleg áhrif á
nýmahettustarfsemi gefið í þessu formi. Það af lyfinu, sem berst í
meltingarvef útskilst nær cingöngu með saur, um 75% í óbreyttu formi. Það
er ekkert virkt umbrotsefni. Helmingunartími í sermi er 3 klst. og
dreifingarrúmmál er 2501.
Ábendingar: Astmi, þegar þörf er á staðbundnum, kröftugum, bólgueyðandi
steraáhrifum, bæði sem viðhaldsmeðferð og meðferð við lungnateppu.
Frábendingar: Ofnæmi fyrir innihaldsefnum í innúðalyfinu.
Meðganga og brjóstagjöf: Gæta ber varúðar við gjöf lyfsins á
meðgöngutíma, þar sem lítið er vitað um áhrif lyfsins á fóstur. Ólíklcgt er að
lyfið berist í bijóstamjólk.
Varúð: Hjá öldruðum sem nota innúðalyfið í hámarksskömmtum í langan
tíma er einhver hætta á skerðingu á nýmahettustarfsemi. Meðferð með
innúðalyfinu ætti því ekki að stöðva skyndilega.
Aukaverkanir: Sveppasýking í munni og hálsi. Hæsi.
Milliverkanir: Millivcrkanir við önnur lyf em mjög ólíklegar, þar sem lyfið
nær aðeins óvcmlcgri þéttni í sermi.
Skammtast.erðir handa fullorðnum: 100-1000 míkróg, tvisvar sinnum á
dag.
Vœgur astmi: 100-250 míkróg, tvisvar sinnum á dag.
Meðalvœgur astmi: 250-500 míkróg, tvisvar sinnum á dag.
Slœmur astmi: 500-1000 míkróg, tvisvar sinnum á dag. Ekki þarf að breyta
skammtastærð hjá sjúklingum með skerta lifrar- eða nýmastarfsemi.
Skammtastærðir handa börnum:
Böm 16 ára og eldri: Sömu skammtar og handa fullorðnum.
Böm eldri en 4 ára: 50-100 míkróg, tvisvar sinnum á dag.
Athugið: lnnúðaduft í hylkjum: Gert er gat á hylkið mcð þar til gerðri nál,
síðan er hægt að anda duftinu að sér með hjálpartæki. Hverri pakkningu
lyfsins skal fylgja leiðarvísir á íslensku með leiðbeiningum um notkun þess.
Skráning lyfsins í formi innúðalyfs er til 1.1. 1996, fyrst um sinn.
Glaxo
Þverholti 14 ■ Pótthólf 5499 ■ I2S Reykjavik
Simi:61 69 }0 Fu:il 691}