Læknablaðið - 15.02.1997, Side 11
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
87
töku fólki sem hafði ekki merki hægra grein-
rofs við eina áfangarannsókn en hafði hægra
greinrof við næstu áfangarannsókn þar á eftir.
Fyrir hvern einstakling með nýtt hægra grein-
rof var boðið til þátttöku tveimur einstakling-
um af sama aldri og kyni til samanburðar á
klínískum breytum og niðurstöðum hjartaóm-
unar. Fyrrnefndir þátttakendur voru boðaðir
til hefðbundinnar rannsóknar á Rannsóknar-
stöð Hjartaverndar, ennfremur til hjartaóm-
skoðunar á lyflækningadeild Landspítalans.
Til samanburðar á öðrum breytum, þeirra á
meðal áhættuþáttum, var heildarrannsóknar-
hópurinn í hóprannsókninni sem ekki hafði
hægra greinrof.
Hefðbundin tvívíddar hjartaómun frá brjóst-
vegg var gerð ásamt M-tækni mælingum á
stærð hjartahólfa og reiknað styttingarbrot
vinstri slegils og slegilsmassi.
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru
sendar þátttakendum ásamt ráðleggingum ef
við átti. Afrit af niðurstöðum voru send heimil-
islækni og/eða sérfræðingi þátttakenda.
Skilgreining: Skilgreining á hægra greinrofi
samkvæmt Minnesota lykli (25) var eftirfar-
andi:
Fullkomið hægra greinrof (án Wolff-Parkin-
son-White heilkennis): QRS bilið sé 0,12 sek-
úndur eða meira í einni af eftirfarandi leiðsl-
um; I, II, III, aVL, aVR og einnig að R’ (R
prime) sé stærri en R, eða að mesta breidd R
takka sé 0,06 sekúndur eða meiri í leiðslum VI
eða V2. Wolff-Parkinson-White heilkenni var
skilgreint samkvæmt Minnesota lykli (25).
Rannsóknarstöð Hjartaverndar fylgist með
dauðsföllum í rannsóknarhópnum, dánarorsök
var skráð og flokkuð eftir Alþjóðadánarmeina-
skránni (ICD-9). Lyklar 410—414 í þeirri flokk-
un eru fyrir blóðþurrð. Dánartíðni var reiknuð
og skipting dánarorsaka fékkst samkvæmt
skráningunni. Upplýsingar um orsakir dauðs-
falla fengust einnig frá Rannsóknarstofu Há-
skóla íslands í meinafræði og úr dánarvottorð-
um frá Þjóðskrá Hagstofu Islands.
Upplýsingar fengust úr gagnabanka Hjarta-
verndar. Þær breytur sem voru sérstaklega
kannaðar og bornar saman hjá greinrofshópi
og samanburðarhópi hafa þegar verið skil-
greindar (24).
Tölfræði: Nýgengi var reiknað í fyrri rann-
sókn (24) út frá þeim einstaklingum í hópum B
og C sem höfðu hægra greinrof í einhverjum
áfanga en höfðu mætt í næsta áfanga á undan
og ekki haft hægra greinrof þá. Deilt var í þá
tölu með heildarfjölda þeirra er mættu í báða
áfangana og árafjölda á milli áfanganna. Ný-
gengið var reiknað á 100.000 íbúa á ári. Staðlað
t-próf (tvíhliða) var notað við útreikninga á
ómunarniðurstöðum og klínískum breytum en
fjölþáttargreiningu var beitt á aðrar breytur
(logistic regression og Poisson regression).
Niðurstöður
í hóprannsókn Hjartaverndar reyndust 33
karlar og 14 konur liafa hægra greinrof sem
ekki var fyrir hendi við fyrri áfangarannsókn.
Varðandi klínískar breytur, ómunarniðurstöð-
ur, dánartíðni og dánarorsakir voru til saman-
burðar 66 karlar og 28 konur á svipuðum aldri.
Til samanburðar á öðrum breytum, þeirra á
meðal áhættuþáttum, var heildarrannsóknar-
hópurinn í hóprannsókninni sem var án hægra
greinrofs, samtals 12.874 karlar og 12.532 kon-
ur.
Mæting í rannsóknina var almennt mjög góð
(tafla I). Meðalaldur karla við greiningu hægra
greinrofs var 60 ár (44-72 ár) en kvenna 68 ár
(50-78 ár). Karlar höfðu verið til rannsóknar
að meðaltali í 13 ár (fimm til 22 ár) áður en
greinrofið fannst en konur í átta ár (eitt til 20
ár).
Table I. Attendance to examination and echocardiography, absolute numbers and percentages ofthe population, number of
participants, alive and deceased.
RBBB Control Total number
M w M w M w
Total number 33 14 66 28 99 42
Alive 22 12 46 28 68 40
Dead 11 2 20 0 31 2
Attendance 21 12 37 23 58 35
Attendance (%) (95.5) (100) (80.4) (82.1) (85.3) (87.5)
Echocardiography - attendance 20 11 37 22 57 33
Echocardiography - attendance (%) (90.9) (91.7) (80.4) (78.6) (83.8) (82.5)
Right bundle branch block = RBBB. Control group = Control. M = Men. W = Women