Læknablaðið - 15.02.1997, Page 30
102
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
Bréf til ritstjórnar
í tilefni greinarinnar Skurðaðgerdir vegna
meðfœddra hjartagalla hjá íslendingum fœddum
1969-1993 (Læknablaðið 1996; 82:761-5).
Virðulega ritstjórn!
Ég las með áhuga grein um „Skurðaðgerðir
vegna meðfæddra hjartagalla hjá íslendingum
fæddum 1969-1993“, sem birtist í nóvember-
hefti Læknablaðsins 1996 (11. tbl.) Höfundar
eru: Guðrún Inga Benediktsdóttir, Hróðmar
Helgason og Árni Kristinsson.
Ég verð því miður að gera eina athugasemd
við það sem þar kemur fram. í greininni er
staðhæft að á tímabilinu 1969-1973 hafi einung-
is verið gerð ein aðgerð á íslandi vegna opinnar
fósturæðar (Duct.art.persist.) En orðrétt segir
í grein Guðrúnar og fleiri á bls. 763 kafli 3.
Aðgerðarlönd: „Á fyrsta fimm ára tímabilinu
var ein aðgerð framkvœmd hér á landi".
Þetta stangast á við fyrri kannanir og vísa ég
þá til greinar sem birtist í Læknablaðinu, 3.-4.
tbl. mars-apríl 1976, undir fyrirsögninni
„Ductus Arteriosus Persistens“ eftir Björn heit-
inn Júlíusson og fleiri en þar kemur fram að frá
1969 til 1972 að báðum árum meðtöldum voru
gerðar 11 slíkar aðgerðir á Landspítalanum.
Nú er rétt að benda á að aldur þeirra sjúk-
linga, sem talin eru börn er ekki sá sami í
greinunum. í grein Guðrúnar og fleiri er hann
eins dags til 19 ára, en í grein Björns og fleiri er
hann 11 mánaða til 24 ára.
Það er ekki vísað til greinar Björns og fleiri í
heimildaskrá, og birtist hún þó í sama blaði, að
vísu fyrir 20 árum.
Grein Björns virðist því hafa farið framhjá
höfundum og einnig þeim trúnaðarmanni, sem
ritstjórnin væntanlega fól að fara yfir grein
Guðrúnar og fleiri og gera athugasemdir. Ég
hef bent þeim Árna Kristinssyni og Hróðmari
Helgasyni á þetta í bréfi dagsettu 14. nóvember
síðastliðinn en ekki Guðrúnu Ingu Benedikts-
dóttur þar sem ég veit ekki hvar hana er að
finna.
Ef ritstjórnin sér ástæðu til, væri rétt að
kanna þetta nánar og ef til vill færa á réttari veg
því annars verður staðhæfingin í þessari grein í
Læknablaðinu 1996 um að við höfum einungis
gert eina aðgerð vegna opinnar fósturæðar á
Landspítalanum 1969 til 1973 heimild um
ókomin ár.
Grein Björns og félaga frá 1976 verður þá
væntanlega dæmd dauð og ómerk.
Með vinsemd og virðingu
Grétar Ólafsson
yfirlæknir hjarta- og lungnaskurðdeild
Landspítalans
Svar við bréfi
Ég sé í fyrsta lagi ástæðu til að benda Grétari
á titil greinar okkar Guðrúnar og Árna:
Skurðaðgerðir vegna meðfæddra hjarta-
galla hjá íslendingum fœddum 1969-1993 (let-
urbreyting mín).
Grétar virðist misskilja hver efniviðurinn í
okkar rannsókn er. Við vorum ekki að taka
saman yfirlit yfir þær aðgerðir sem gerðar voru
á landinu eða á Landspítalanum á þessum tíma
heldur þær aðgerðir sem gerðar voru á sjúk-
lingum sem fæddir eru á árunum 1969-1993
eins og reyndar kemur fram í titli greinar okk-
ar.
Af grein þeirra Björns og Grétars kemur
fram að 11 ductus aðgerðir hafi verið gerðar á
landinu á árunum 1969-1972. Ég efast ekki um
að það sé rétt þótt trúlega hafi þar verið um að
ræða sjúklinga sem fæddir eru utan þess árabils
sem titill greinarinnar segir til um. Björn og
félagar segja hvergi í sinni grein á hvaða árum
sjúklingarnir eru fæddir sem gengust undir að-
gerðirnar. Fjórtán af 24 sjúklingum í þeirra
rannsókn voru sjúklingar fimm ára og eldri og
hefðu þess vegna ekki þurft að koma inn í
okkar uppgjör en um þetta atriði er ekki hægt
að dæma, þar sem fæðingarár kemur hvergi
fram í greininni. Þess vegna völdum við þann
kost að vitna ekki í greinina. Við teljum að
niðurstöður beggja greinanna standist fylli-
lega. Þannig er algjör óþarfi að halda því fram
að grein Björns og félaga væri dauð og ómerk.
Það er einfaldlega verið að gera upp aðra hluti.
Ég vona að þetta svari athugasemdum Grét-
ars í þessu efni.
Með bestu kveðju
Hróðmar Helgason læknir