Læknablaðið - 15.02.1997, Side 41
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
113
ar, 10 hringvöðvaskurðir vegna gallsteina og
sex útvíkkarnir á þrengslum í gallvegum.
Aukakvillar komu fyrir í 43 rannsóknum (7%).
Ef einungis var framkvæmd rannsókn komu
aukaverkanir fyrir í 4,6% tilvika en í 14,1% ef
framkvæmd var aðgerð. Brisbólga var algeng-
asti aukakvillinn, kom hún fyrir í 29 rannsókn-
um (4,7%) (tafla V), 14 eftir rannsóknir og 15
eftir aðgerðir. í 11 tilfellum (36,6%) var
skuggaefni ekki sprautað í brisgang, í 10 þeirra
var framkvæmd aðgerð en í einu tilfelli var
aðeins um rannsókn að ræða og fékk sjúkling-
urinn svæsna bólgu. Brisbólgan var yfirleitt
væg (mynd 2) en svæsin brisbólga varð hjá sex
einstaklingum og dóu þrir beint eða óbeint af
völdum hennar. Gallvegasýking kom upp í 12
tilfellum (1,9%), í helmingi sjúklinga í tengsl-
um við aðgerð. Gekk hún yfir á einum til
tveimur sólarhringum hjá 11 en einn sjúklingur
hafði hita í fimm daga. Allir jöfnuðu sig að
fullu. Blæðing er krafðist blóðgjafar kom fyrir
hjá tveimur sjúklingum (0,3%), í báðum eftir
hringvöðvaskurð og í báðum tilvikum fékk
sjúklingurinn einnig svæsna brisbólgu. Annar
þeirra lést. í 15 tilfellum (11,5%) féll blóðrauði
um meira en 10 g/1 eftir hringvöðvaskurð án
þess að til blóðgjafar kæmi. Aðrar aukaverk-
anir voru sjaldæfari; í tveimur tilvikum urðu
innvortis meiðsl vegna tækja, í öðru tilfellinu
kom lítið gat á skeifugörn með staðbundinni
sýkingu og í hinu fór leiðari í gegnum gallgang
við tilraun til útvíkkunnar. Báðir sjúklingarnir
jöfnuðu sig fljótt og að fullu leyti. Alls létust
þrír sjúklingar beint eða óbeint af völdum
svæsinnar brisbólgu í kjölfar rannsóknarinnar.
Heildardánartíðni reiknast þannig 0,5%, eftir
rannsóknir 0,4% og eftir aðgerðir 0,6%.
Umræða
Niðurstöður þessarar rannsóknar eru í stór-
um dráttum sambærilegar við erlendar og inn-
lendar (4) rannsóknir. Holsjárröntgenmyndun
af gallvegum og brisgangi var oftast fram-
kvæmd vegna gallsteina (55,9%) og er nota-
gildi rannsóknarinnar hér ótvírætt bæði til
greiningar og meðferðar. Næmi rannsóknar-
innar er mjög gott við greiningu æxla í bris-
kirtli, greinir 80-90% allra illkynja æxla, aðrar
rannsóknaraðferðir til greiningar þessara sjúk-
dóma, svo sem ómskoðun og tölvusneið-
myndataka, eru ekki eins næmar (5,6). Alls
fundust 26 brisæxli, þar af 18 í þeim 63 rann-
sóknum er gerðar voru vegna gruns um slíkt
Table V. Complications following ERCP.
Complications Number Incidence (%) Deaths
Acute pancreatitis 29 (4.7) 3
Cholangitis 12 (2.0)
Bleeding 2 (0.3)
Instrumental injury 2 (0.3)
Other 2 (0.3)
Fig. 2. Severity of acute pancreatitis after ERCP procedures,
performed at Landspítalinn, the National University Hospital
in Iceland, for the period 1983-1992.
(28,6%). Rannsóknin greinir ástæðu stíflugulu
í um 80% tilvika (7) en verkjalaus gula var
tilefni 8,6% rannsókna, greining fékkst í
82,5% þeirra.
Holsjárröntgenmyndun af gallvegum og
brisgangi greinir orsök óljósra kviðverkja í um
fjórðungi tilfella (8) og fékkst sjúkdómsgrein-
ing hjá fimm af 23 (21,7%). Rannsóknin tókst
aftur á móti ekki fullkomlega nema í 47,8%
tilrauna við þessa ábendingu. Almennt er ekki
mælt með rannsókninni nema við langdregna
verki og ef eitthvað bendir á sjúkdóma í gall-
vegum eða brisi (9). Notagildi rannsóknarinn-
ar reyndist takmarkað hjá sjúklingum með
bráða brisbólgu. Hér hefur verið sýnt fram á að
hringvöðvaskurður vegna steina í gallgangi
hefur læknandi áhrif og lækkar dánartíðni (10).
Rannsóknin tókst hins vegar einungis hjá átta
af 19 sjúklingum (42,1%). Höfðu tveir gall-
steina í gallblöðru og enginn í gallgangi.
Ekki er mælt með holsjárröntgenmyndun af
gallvegum og brisgangi í fyrsta brisbólgukasti
nema sterkur grunur sé um gallsteina (9).