Læknablaðið - 15.03.1997, Blaðsíða 53
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
183
Framlag sjálfstætt starfandi lækna
(einyrkja) í lífeyrissjóð
í Læknablaðinu, 1. tbl. 1996,
var sagt frá dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur frá 17. október
1995 um frádrátt lífeyrisrétt-
indakaupa frá tekjum sjálfstætt
starfandi einyrkja.
í dómsorði segir meðal ann-
ars; „Viðurkenndur er réttur
stefnanda til að gjaldfœra á
skattframtali 1992 eigin líf-
eyriskaup að fjárhœð kr.
....... Jafnframt er viður-
kenndur réttur stefnanda til aðfá
álagningu skatta árið 1992 end-
urskoðaða í samrœmi við gjald-
breytinguna og oftekinn skatt
endurgreiddan með dráttarvöxt-
um skv. III. kafla 1. nr. 25/
1987. “
Dóminum var áfrýjað til
Hæstaréttar, sem staðfesti und-
irréttardóminn þann 19. desem-
ber 1996.
í dómi Hæstaréttar segir
meðal annars: „Samkvæmt 2.
mgr. 29. gr. laga nr. 75/1981 er
heimilt að draga frá tekjum lög-
aðila og tekjum manna af at-
vinnurekstri eða sjálfstœðri
starfsemi rekstrarkostnað, það
er þau gjöld sem eiga á árinu að
ganga til að afla teknanna,
tryggja þœr og halda þeim við.
í 2. mgr. 1. tl. A-liðar 7. gr.
laga nr. 75/1981 er kveðið á um
það, að vinni maður við eigin
atvinnurekstur eða sjálfstœða
starfsemi skuli hann telja sér til
tekna eigi lœgra endurgjald fyrir
starfsitt og hefði hann innt það
af hendi fyrir óskyldan eða
ótengdan aðila. Þetta endurgjald
telst til rekstrarkostnaðar, sbr. 3.
mgr. 1. tl. 31. gr. laganna, og er
frádráttarbœrt frá tekjum af at-
vinnurekstri eins og launakostn-
aður starfsmanna og mótfram-
lag atvinnurekanda ílífeyrissjóð
starfsmannanna.
Samkvœmt framansögðu er
það meginregla í skattarétti, að
öll gjöld, sem fara í að afla
tekna, tryggja þœr og halda
þeim við, komi til frádráttar frá
tekjum af atvinnurekstri eða
sjálfstœðri starfsemi. Allar und-
antekningar frá þeirri reglu
verða að vera skýrar og ótvírœð-
ar. í lögunum er að þessu leyti
enginn munur gerður á fyrir-
tœkjum eftir rekstrarformi
þeirra. Þá ber hér að hafa íhuga,
að stefnda var skylt að greiða
iðgjöld í lífeyrissjóð af tekjum
sínum, og teljast slík skyldu-
framlög atvinnurekanda til
rekstrarkostnaðar. Er fallist á
niðurstöðu héraðsdóms, að at-
í Þýskalandi hefur verið starf-
andi hljómsveit lækna sem nú er
ætlunin að útvíkka og opna öll-
um evrópskum læknum.
Strengjaleikarar og blásarar
meðal lækna og læknanema sem
reynslu hafa af hljómsveitar-
starfi eru hvattir til þátttöku.
Boðað er til æfingar þann 11.
júní næstkomandi í Lindau og
verður fyrsti opinberi konsert-
inn haldinn þar þremur dögum
vinnurekandaframlag stefnda í
lífeyrissjóð falli undir rekstrar-
kostnað, sem heimiltsé að gjald-
fœra. “
Ætla má að þeir sjálfstætt
starfandi læknar, sem greitt
hafa í lífeyrissjóð undanfarin ár,
geti óskað eftir endurupptöku
opinberra gjalda að minnsta
kosti sex ár aftur í tímann enda
hafi þeir ekki nýtt sér þennan
frádráttarlið á móti rekstrar-
tekjum. Upplýsingar um
greiðslur í lífeyrissjóð lækna
undanfarin ár, vegna sjálfstæðr-
ar starfsemi, er hægt að nálgast
á skrifstofu Læknafélags ís-
lands.
Páll Þórðarson
Læknafélag íslands
Sigurður Heiðar Steindórsson
Stoð - endurkoðun hf.
seinna. Á efnisskrá verða meðal
annarra verk eftir Bizet,
Brahms, Grieg, Tchaikovsky og
Strauss.
Nánari upplýsingar veitir:
Dr. Dieter Pöller,
Agnes Bernauer StraBe 113,
D-80687 Múnchen
vs. 89-563 168, hs. 89-798 342
bréfsími: 89-580 6672
Stofnun hljómsveitar
evrópskra lækna