Læknablaðið - 15.06.1998, Blaðsíða 29
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
479
eftir endurskoðun vefjagreininga greindust
með illkynja mesóþelíóma kemur í ljós talsvert
misræmi (tafla IV). Hjá átta af 20 eru tilgreind
önnur dánarmein en illkynja mesóþelíóma
samkvæmt númerum á dánarvottorðunum og er
í öllum tilfellum nema einu um önnur krabba-
mein að ræða. Þó að þessir átta væru skráðir
með önnur dánarmeinanúmer úr Hinni alþjóð-
legu sjúkdóma- og dánarmeinaskrá, var í fjór-
um tilfellum illkynja mesóþelíóma nefnt með
orðum, sem dánarmein á dánarvottorðunum.
Mynd 1 sýnir árlegt magn í tonnum sem flutt
var inn í þeim tollflokkum þar sem nefndar
voru vörur úr asbesti eða vörur sem meðal ann-
ars innihalda asbest. Hluti efnis í töflunni hef-
ur áður verið birtur í fyrri grein um mesóþel-
íóma (26). Mikill innflutningur á asbestvörum
á árunum 1980 til 1982 skýrist af umfangs-
miklum hitaveituframkvæmdum, en í megin-
æðar hitaveitanna voru notuð asbeströr. Eftir að
bann var sett á asbestnotkun árið 1983, nema í
undantekningartilvikum, dró mikið úr innflutn-
ingi á vörum í tollflokkum þar sem asbest var
nefnt, en virðist síðan aftur hafa aukist frá
1990. Þegar litið er á tollflokkinn 6812 og cif-
verð skoðað eftir árum frá 1988 verður dreif-
ingin eins og sýnd er á mynd 2, miðað við verð-
lag ársins 1995.
Þegar litið er á einstakar vörutegundir í
flokknum sést að nokkuð er mismunandi hvað
flutt er inn á hverju ári. Öll árin nema eitt er
flutt inn fyrir tugi þúsunda króna fatnaður, fata-
hlutar, skófatnaður og höfuðfatnaður úr asbesti
eða asbestblöndum, mest árið 1992, en þá nam
sá innflutningur 225 þúsund krónum. Vélaþétt-
ingar úr asbesti eru fluttar inn fyrir mesta verð-
mætið á hverju ári í þessum tollflokki.
Umræða
Þessi rannsókn sýnir að nýgengi illkynja
mesóþelíóma virðist hafa hækkað á síðustu 30
árum. Hækkað nýgengi hefur einnig fundist í
nálægum iðnvæddum löndum þar sem asbest-
notkun hefur verið mikil (8-15). Ef til vill staf-
ar einhver hluti hækkunarinnar af betri þekk-
ingu á sjúkdómnum og greiningu hans, en meg-
inskýringin er þó jafnan talin mikil asbestnotk-
un áður fyrr (8-15). Illkynja mesóþelíóma er,
þrátt fyrir að það sé orðið tíðara, engu að síður
sjaldgæfur sjúkdómur, en á nýgengi þess hefur
verið litið sem vísbendingu um asbesttengda
sjúkdóma (11,15). Áður hefur verið bent á að
varlega skyldi farið í að bera saman nýgengi
illkynja mesóþelíóma milli landa (26). Kemur
þar ekki einungis til mismunur á skráningu
krabbameina, heldur einnig mismunur í aldurs-
stöðlun. Á tímabilinu 1985-1992 var nýgengi
mesóþelíóma í Finnlandi meðal karla um átta
tilfelli á hverja eina milljón á ári, en meðal
kvenna var það um þrjú tilfelli (15), en á sama
TONS
Fig 1. Annual weight of imports in metric tons by the tarijf numbers with mention of asbestos.