Læknablaðið - 15.06.1998, Page 37
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
487
Table I. Effects of treatment clianges on viral load.
Treatment Patients Changes in viral load (log10) Range Mean (log-io)
Various 25 0.7 to -2.88 -0.9
Saq+(2RTI) 11 0.7 to -0.78 -0.23
Saq+RTI(RTI) 6 0.24 to -2.26 -0.65
Saq+2RTI 4 -01.8 to -2.67 -02.37
Rit+(2RTI) 1 -02.19
HTF reverse transcriptase
Saq: saquinavir
Rit: ritonavir
(): treatment prior to addition of drugs
allt frá 0,7 log aukningu (+0,7 log) niður í 2,88
log minnkun (-2,88 log), sem er að meðaltali
minnkun um 0,9 log (-0,9 log). Breyting á
fjölda CD4+ frumna alls hópsins spannaði
fækkun um 195 frumur/mm3 í aukningu um
143 frumur/mm’. Að meðaltali var aukning um
6,9 frumur/mm'.
Hjá 11 sjúklingum sem meðhöndlaðir voru
með tveimur bakritahemlum (sjö á zídóvúdíni
og lamívúdíni, fjórir á zidovudíni og stavúdíni)
var sakvínavír bætt við lyfjameðferðina. Breyt-
ing á veirumagni var frá +0,7 log til -0,78 log,
sem var að meðaltali -0,23 log. Lækkunin var
marktæk hjá þremur af 11 sjúklingum.
Sex sjúklingar voru meðhöndlaðir með ein-
um bakritahemli. Sakvínavír og öðrum bakrita-
hemli var bætt við þá meðferð hjá fjórum þeirra
en hjá tveimur var meðferð hætt og sjúklingur
meðhöndlaður með sakvínavír og tveimur öðr-
um bakritahemlum. Breyting á veirumagni
þessa hóps var frá +0,24 log í -2,26 log, sem er
að meðaltali -0,65 log.
Sex einstaklingar voru lyfjalausir, þrír höfðu
aldrei tekið lyf gegn retróveirum, þrír höfðu
fengið meðferð áður en ekki nýlega. Áhrif
meðferðar var ekki unnt að meta hjá tveimur
því veirumagn var ómælanlegt fyrir meðferð.
Hjá fjórum fyrrnefndum var hafin meðferð
með tveimur bakritahemlum og sakvínavír.
Breyting á veirumagni reyndist frá -1,8 log til -
2,67 log, sem er að meðaltali -2,37 log.
Meðferð með rítonavír ásamt tveimur bak-
ritahemlum var beitt hjá 11 sjúklingum. Rít-
onavír var bætt við meðferð með tveimur bak-
ritahemlum hjá einum sjúklingi og leiddi sú
breyting til minnkunar á veirumagni um 2,19
log. Hjá 10 af 11 sjúklingum var rítonavír með-
ferð hafin í kjölfar breytinga á meðferð með
sakvínavír og tveimur bakritahemlum. Áhrif
þeirra breytinga á veirumagn lágu ekki fyrir
við lok rannsóknartímabils.
Umræða
Lýst hefur verið notkun mælinga á RNA al-
næmisveirunnar í plasma HIV sýktra einstak-
linga á Islandi um rúmlega eins árs skeið.
Spannaði RNA magn hinna HIV sýktu allt svið
mælingaraðferðarinnar það er frá því að mælast
ekki, en greiningarmörk aðferðarinnar eru 400
eintök/mL, upp í mjög há gildi (6,13 log). At-
hyglisvert er að rúmlega tveir þriðju hlutar
mældra höfðu fleiri en 10.000 eintök veira í
hverjum mL plasma en af þeim voru 11 (25%
hópsins) sem ekki höfðu verið meðhöndlaðir
með lyfjum gegn HIV-1 og eru meiri líkur á að
sjúkdómur ágerist meðal þeirra en sambærilegs
hóps með færri en 10.000 veirueintök í mL
plasma (7). I nýlegum leiðbeiningum frá
alþjóðlegri nefnd sérfræðinga í rannsóknum á
alnæmi og umönnun HIV sýktra er mælt með
að meðhöndla alla sem hafa færri en 500 CD4+
frumur/mm' eða hafa fleiri en 5.000-10.000
veirueintök/mL og þá án tillits til fjölda CD4+
frumna eða einkenna (10).
Upphafsbreyting á meðferð hjá hópnum
leiddi til mjög breytilegra áhrifa á RNA magn
(+0,7 logio til -2,8 logio) og lítillar aukningar á
fjölda CD4+ frumna; að meðaltali aðeins um
6,9 frumur í mm3. Breytileg svörun í veiru-
magni skýrist væntanlega af því hve ólíkir ein-
staklingarnir eru með tilliti til veirumagns,
stigs sjúkdóms, meðferðar fyrir breytingu og
þeirrar breytingar sem gerð var á meðferðinni.
Mest meðaltalsaukning CD4+ frumna reyndist
í undirhópnum sem hafði minnsta lækkun
veirumagns en einnig varð að meðaltali fækkun
CD4+ frumna í hópi lyfjalausra sem svöruðu
meðferð best með tilliti til veirumagns (niður-
stöður ekki sýndar). Þekkt er að CD4+ frumur
eru ekki næm mælistika á áhrif lyfja gegn HIV
(11). Einnig er til staðar verulegur líffræðilegur
breytileiki og auk þess breytileiki sem tengist
mælingaraðferð (12,13). Líka ber að hafa í
huga að hópurinn var lítill og margbreytilegur.
Algengasta breyting sem gerð var á meðferð
var að bæta sakvínavír einu við tvo bakrita-
hemla (11 sjúklingar) en sakvínavír kom fyrst