Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.1998, Blaðsíða 56

Læknablaðið - 15.06.1998, Blaðsíða 56
506 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 Að finna upp hjólið Ye canna say a thing thats new however hard ye try Ye can but tac a thing thats ould and say it anither way Ég lærði þessa gömlu skosku vísu, (réttritunin er án ábyrgð- ar) af einum lærifeðra minna í byrjun starfsævinnar í lýta- lækningum, en sá hét Alaister Burns Wallace. Hann var mjög hógvær maður og, eins og margir slíkir, spekingur að viti. Þessi vísa kemur oft upp í hugann, þegar ungir og áhuga- samir kollegar koma fram á sjónarsviðið í fjölmiðlum, til að segja alþjóð frá þeirri nýju þekkingu sem þeir eru að færa okkur hingað uppá skerið og hvernig þeir ætli að nýta þá þekkingu til að lækna sjúka, eða eins og nú er mjög í tísku, til að forða okkur frá þeim sjúkdómum sem hrjáð hafa mannkynið um aldir. Þá er þess gjarna getið, svona í „forbifarten", hversu mikið það muni spara í heilbrigðis- kerfinu að innlima aðferðirnar í kerfið. Annar lærifaðir minn úr æsku, Allan Ragnell sagði líka einu sinni við mig, eitthvað á þessa leið. „Það er dæmalaust ergilegt að í hvert sinn sem maður heldur sig hafa fundið nýja aðferð, er einhver helv,- Þjóðverjinn, búinn að finna hana fyrir löngu“. Nú kann einhver að segja að hér sé á ferðinni nöldur gamals manns, sem hefur misst fótanna í þjóðfélagi, sem metur manngildi fremur eftir fyrirferð en innihald. Lát- um það vera, en hugleiðum aðeins, hver áhrif upphafin og jafnvel uppblásin umfjöllun um vísindi og þá sérlega heil- brigðisvísindi hefur í þjóðfé- laginu. Um leið og vísindaleg upp- götvun, sem tengist sjúkdóm- um, kemst í hámæli, hugsar hver einstaklingur um það hvort uppgötvunin kunni að hafa áhrif á sjúkdóma, sem hann þekkir hjá sér eða sínum og sé svo, er líklegast að hann túlki hana þannig að lækning við sjúkdómnum, eða sjúk- dómunum sé á allra næsta leyti. Ljós dæmi um þetta er umfjöllunin um „gagnagrunn- inn“ og nýútblásnar fréttir um lækningar á krabbameini, reyndar í músum. Þetta við- horf er bæði jákvætt og nei- kvætt. Hið jákvæða er, að sér- hver ný uppgvötun í læknavís- indum gerir viðhorf almenn- ings til þeirra jákvæðara en það leiðir af sér auknar líkur á stuðningi opinberra aðila og almennings við vísindin. Hið neikvæða er, að hástemmd loforð leiða óhjákvæmilega til hástemmdra væntinga og ef þær væntingar uppfyllast ekki, heldur fyrr en seinna, veikist trúin á vísindin og getur snúist í andúð. Þetta eru engin ný sannindi og höfund- ur þessa greinakorns hefur oftar en einu sinni dregið þau fram í dagsljósið í ræðu og riti, en þau vilja gleymast og því ber að hafa þau stöðugt í huga, þegar okkur finnst við hafa bætt nýju hjóli í gang- verk vísindanna. Þó að íslensk læknavísindi séu ekki gömul, sakar ekki að muna að vísirinn að flestu því sem læknavísindin eru nú að fást við var eða varð til á fyrri hluta þessarar aldar, meðal annars hér á íslandi. Björn Olafsson gerði fyrstu húðágræðslu á íslandi árið 1902, Árni Árnason skrifaði doktorsrit um arfgengar heila- blæðingar árið 1925, Matthías Einarsson gerði fyrsta heppn- aða keisaraskurð á íslandi árið 1910 og þannig mætti lengi telja. Aðferðafræðin breytist stöðugt en hugmyndafræðin er sparsöm á nýjungar. Því er hollt að athuga fortíðina vand- lega, áður en við helgum okk- ur frumlegar uppfinningar eða aðferðir í nútíðinni og minnast orða Prédikarans: „Það sem hefur verið mun verða og það sem gjörst hefur mun gjörast og ekkert er nýtt undir sólinni. Sé nokkuð til er um verður sagt; sjá þetta er nýtt, þá hefur það orðið fyrir löngu, á tímum sem á undan oss voru.“ HELSTU HEIMILDIR: Ævisaga Björns Ólafssonar. Höf. Guð- mundur Bjömsson Læknar á íslandi 1984. Lækningar og saga. Höf. Vilmundur Jónsson Gamla Testamentið: Prédikarinn í maf 1998. Arni Björnsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.