Læknablaðið - 15.02.1999, Qupperneq 33
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
127
milli vanlíðunar (distress/bother) vegna getu-
leysisins og þess að hvaða marki getuleysið
hafði áhrif á almenn lífsgæði (10). Þó að þetta
hljómi ef til vill ekki eins og nein ný sannindi
er athyglisvert að ekki hafa allar rannsóknar-
niðurstöður verið samhljóða um þetta samband
(11,12). Ein skýring sem bent hefur verið á til
að útskýra þennan skort á sambandi milli van-
líðunar og lífsgæða er að hefðbundnar aðferðir
til að meta lífsgæði kunni að vera illa til þess
fallnar að meta áhrif einstakra einkenna á al-
menna vellíðan (12). I sænsku rannsóknunum
var stuðst við nýja þriggja þrepa nálgun á lífs-
gæðamati (3,13). I stað hefðbundinna lífsgæða-
prófa sem byggja á útreikningum meðalgilda
margra einkenna var hvert einkenni skoðað
fyrir sig og athugað að hve miklu leyti það
hrjáði sjúklinginn. Að lokum var sambandið
milli vanlíðunar og almennra lífsgæða skoðað.
Hvað á að greiða með skattpeningum?
I dag stöndum við frammi fyrir nýju „vanda-
máli“. Sífellt fleiri lyf og læknisaðgerðir koma
á markaðinn sem geta verið afgerandi fyrir lífs-
gæði tiltölulega þröngs hóps en geta aukið lífs-
gæðin örlítið fyrir mjög marga. Dæmi um slíkt
eru töflur sem auka limstífni (og hugsanlega
lrka kynlífsnautn bæði hjá körlum og konum),
megrunarlyf og lýtalækningar. Fáum dettur í
hug að samfélaginu beri að greiða niður and-
litslyftingar fyrir alla en flestir eru vonandi
sammála því að rétt sé að greiða niður lýtaað-
gerðir sem miða að því að reyna að lagfæra
verulega útlitsgalla eða endurbyggja brjóst
kvenna sem farið hafa í krabbameinsaðgerð.
Eins kemur líklega fáum til hugar að krefja
samfélagið um niðurgreidd lyf til að ná af sér
þessum fimm aukakílóum, en flest ættum við
að geta verið sammála um að greiða niður slfk
lyf fyrir mann sem hefur í mörg ár barist við að
reyna að ná af sér 50 aukakílóum. Að sama
skapi er vafasamt að samfélagið greiði niður
lyf á borð við Viagra fyrir karla eða konur sem
vilja nota lyfið til að auka samfaranautn sína
eða ná aftur þessari steinhörðu limstífni sem er
aðeins farin að dala, þó ennþá sé ekkert því til
fyrirstöðu að hafa samfarir. Hins vegar er það
afar undarlegt ef samfélagið greiðir ekki niður
lyf og hjálpartæki fyrir karla sem verða getu-
lausir eftir krabbameinsaðgerðir, vegna sykur-
sýki eða mænuskaða.
Ekki er svo að skilja að allir getulausir karl-
menn sem komnir eru yfir sextugt muni not-
færa sér niðurgreidd lyf við getuleysi þó þau
standi til boða. I sænsku rannsóknunum sem
vitnað er til í þessari grein skiptust aldraðir
getulausir karlmenn í tvo hópa. Annars vegar
voru þeir sem virtist standa nokkuð á sama um
getuleysi sitt og hins vegar hinir sem liðu vegna
þess. Þessir hópar voru nokkurn veginn jafn
stórir.
Þær raddir heyrast gjarnan í umræðunni um
niðurgreiðslu meðferða vegna getuleysis að
hver sem er geti logið til um ástandið til að fá
meðferðina niðurgreidda. Umfang vandans er
þó ekki eins stórt og sumir ætla, því með þeirri
greiningartækni sem nú er fyrir hendi og virkri
samvinnu þeirra sem hafa sérhæft sig í grein-
ingu getuleysis er hægt að greina hafrana frá
sauðunum. Fáir ef nokkrir karlar sem ekki eru
raunverulega getulausir koma til með að leggja
sig undir smásjá sérfróðra aðila í þeim tilgangi
einum að spara peninga, að því gefnu að lyfið
sé öllum aðgengilegt á markaðsverði. Til þess
er málið of viðkvæmt. En sé einhver vafi á
ferðinni eru til leiðir til að úrskurða í málinu
(5,7,8).
Niðurstaða
Ljóst er að varla er mögulegt að greiða niður
dýr lyf eins og Viagra fyrir alla sem hugsanlega
hefðu áhuga á að nota það til að auka kynlífs-
nautn eða bæta aðeins frammistöðu sína í kyn-
lífi. Hins vegar er Ijóst að hópur karla sem orð-
inn er getulaus, meðal annars vegna sjúkdóma,
meðferða eða slysfara, hlýtur að eiga rétt á nið-
urgreiddri meðferð. Lausnin er fólgin í þróun
skilvirkrar greiningartækni. Getuleysi sem or-
sakast af skurðaðgerð gegn krabbameini í
blöðruhálskirtli hefur líklega svipuð áhrif á
sálræna líðan margar karla og brottnám brjósts
vegna brjóstakrabbameinsaðgerðar hefur á lífs-
gæði margra kvenna. Ef við erum sammála um
að greiða niður lýtalæknismeðferð til að byggja
upp brjóst er tæplega siðferðilega rökrétt að
neita að greiða niður meðferð sem dregur úr
neikvæðum áhrifum aukaverkana meðferðar
við krabbameini í blöðruhálskirtli, eða eykur
lífsgæði karla sem verða getulausir í kjölfar
sjúkdóma eða slysa.
HEIMILDIR
1. Helgason ÁR, Adolfsson J, Dickman P, Arver S, Fredrikson
M, Göthberg M, Steineck G. Sexual desire, erection,
orgasm and ejaculatory functions and their importance to