Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Side 16
FÖSTudagur 1. júní 200716 Helgarblað DV Kýlt á tvöföldun Vegagerðin er í startholunum með breikkun Suðurlandsvegar í 2+1 veg og búið er að fullhanna þá út- færslu. Fyrsti hluti leiðarinnar, frá Lögbergsbrekkunni að Litlu kaffi- stofunni, er tilbúinn til útboðs. Þannig er gert ráð fyrir tveimur akr- einum í aðra áttina og einni akrein í gagnstæða átt til skiptis með eins til tveggja kílómetra millibili. Að mati stofnunarinnar er þetta hagkvæm- asta leiðin. Hún tryggi ekki síður umferðaröryggi en tvöfaldur vegur, ásamt því að flutningsgeta vegarins sé tryggð. Vegagerðin vísar til vel heppn- aðra vegaframkvæmda í Svíþjóð þar sem alvarlegum slysum hefur fækkað um helming eftir breikkun vega í 2+1 með vegriði, auk þess sem kostnaður við framkvæmd- ina er helmingi lægri. Í Danmörku, Þýskalandi, Bretlandi og Írlandi hefur þessi leið einnig verið farin, án vegriða, með góðum árangri. Nú þegar hefur hluti Suður- landsvegar verið breikkaður í 2+1. Samkvæmt upplýsingum frá Rann- sóknarnefnd umferðarslysa hefur ekkert alvarlegt umferðarslys orðið á þeim kafla eftir að hann var tekinn í notkun haustið 2005. Sturla Böðv- arsson, forseti Alþingis og fyrrver- andi samgönguráðherra, fól engu að síður Vegagerðinni nokkru fyrir kosningar að kanna möguleikann á tvöföldun vegarins í samráði við nærliggjandi sveitarfélög. Sú vinna er stutt á veg komin. Bíða eftir ráðherra Svanur G. Bjarnason, svæðis- stjóri Vegagerðarinnar á Suður- landi, bendir á að skilaboðin frá Vegamálastjóra hafi verið þau að fullhanna 2+1 veg. Hann segir ljóst að sú leið tryggi öryggi og sé tölu- vert ódýrari en 2+2 vegur. „2+1 er sú vinna sem lengst er komin og talað var um innan Vegagerðar- innar að fullvinna. Það er sú lína sem Vegamálastjóri gaf út. Stefna okkar var alltaf að fara í 2+1 veg og fyrir ári síðan buðum við hönnun- ina út. Fyrrverandi samgönguráð- herra setti síðan af stað vinnu við að skoða jafnframt útfærsluna 2+2. Ég veit ekki hvort hún er inni í mynd- inni eða hvort hún verður fullhönn- uð,“ segir Svanur. „Það eru fyrst og fremst sveitarfé- lögin sem hafa hafnað 2+1leiðinni. Þeim þykir það ekki nógu fínt. Í kjöl- farið var byrjað að skoða hina leið- ina en sú vinna er ekki komin langt. Hönnun 2+1 leiðarinnar er klár og fyrsti áfanginn tilbúinn til útboðs. Umræðan hefur meira að segja þró- ast út í einkaframkvæmd og í raun ekkert búið að ákveða í því. Und- irbúningurinn hefur allur miðast við 2+1 leiðina og það kemur í hlut nýs ráðherra að taka lokaákvörðun- ina. Ég reikna með því að menn bíði spenntir eftir ákvörðun ráðherra.“ Of fáir flotbúningar Jón Helgason, framkvæmda- stjóri Vegagerðarinnar, tekur undir að 2+1 breikkun vegarins hafi ver- ið megin áhersla Vegagerðarinnar fram til þessa. Hann bendir á að nú þegar sé búið að breikka hluta veg- arins. „Þetta er sú útfærsla sem vilji var til að skoða nánar. Öll skipu- lagsvinna hefur miðast við þessa út- færslu. Verið er að undirbúa þessa breikkun og við höfum skoðað þessi mál í langan tíma. Auðvitað er búið nú þegar að framkvæma hluta 2+1 leiðarinnar og horfa verður til þess,“ segir Jón. Hannes Kristmundsson, garð- yrkjubóndi í Hveragerði, er mikill baráttumaður þess að Suðurlands- vegur verði breikkaður í 2+2. Hann telur fráleitt annað en að breikka veginn í þá veru þar sem sú leið sé einfaldlega sú öruggasta. „Það hafa allir viðurkennt að 2+2 er öruggasta leiðin. Ég get aldrei sætt mig við það að velja einhverja leið sem er næst öruggasta leiðin. Það er bara ekki nóg því þá er alltaf hætta á að mannslífum sé fórnað og þá veit maður aldrei hver getur farið næst- ur. Ég get ekki sætt mig við það að keyptir séu 7 flotbúningar um borð í 10 manna skip. Ég er sannfærður um að 2+2 leiðin verði valin en fram til þessa hafa útgerðarmennirnir ekki talið sig hafa efni á að kaupa alla flotbúningana.“ Fyrir minni pening á skemmri tíma Ágúst Mogensen, forstöðumað- ur Rannsóknarnefndar umferð- arslysa, segir nefndina ekki taka afstöðu til þess hvor leiðin skuli far- in. Mikilvægast telur hann að ráð- ast í breikkun vegarins tafarlaust til að aðgreina aksturstefnurnar. „Vegagerðin virðist tilbúin með 2+1 breikkun. Það er engum blöðum um það að fletta að 2+2 leiðin er ör- uggari. Í okkar huga er mikilvægast að ráðast í framkvæmdina sem allra fyrst. Hin leiðin, 2+1, er mun ódýrari og öryggið slagar hátt í 2+2 útfærsl- una. Við viljum sem minnst taka af- stöðu til þess hvor leiðin verði far- in, niðurstaða okkar er einfaldlega sú að fá þetta í gegn sem allra fyrst,“ segir Ágúst. „Um leið og önnur leið- in er ódýrari þá er hún jafnframt fljótlegri í framkvæmd. Fyrir vik- ið ætti að vera hægt að fara í bæði Suðurlandsveg og Vesturlandsveg fyrir minni pening og á skemmri tíma. Aðgreining umferðar á báð- um leiðum er forgangsverkefni og afar brýnt að ganga í þetta strax. Nú bíða allir eftir að heyra línuna hjá nýjum ráðherra.“ Rétt að staldra við Rögnvaldur Jónsson, verkfræð- ingur og fyrrverandi framkvæmda- stjóri Vegagerðarinnar, telur litlar sem engar röksemdir liggja fyrir því að 2+2 breikkun Suðurlandsveg- ar sé skynsamlegri en 2+1. Hann segir mikilvægt að líta á vegakerfið í heild sinni þegar kemur að fjár- munum. „Vegagerðin, Rannsókn- arnefnd umferðarslysa og lögreglan leggja til að byggður verði 2+1 vegur en ríkisstjórn, þingmenn og sveitar- stjórnarmenn vilja 2+2. Vegagerð- in hefur sýnt fram á að 2+1 vegur er nægilega öruggur og að kostn- aður sem nálægt einum þriðja af kostnaði 2+2 vegar. Ekki liggja fyrir röksemdir þeirra sem vilja byggja 2+2 veg,“ segir Rögnvaldur. „Stjórn- völd vilja tryggja umferðaröryggi og greiða umferð um vegi lands- ins. Ekki verður annað séð en að 2+1 vegur fullnægi báðum þessum markmiðum. Rétt er að staldra við og láta ekki tilfinningaleg sjónar- mið ráða ferðinni. Taka verður til- lit til arðsemi og öryggissjónarmiða vegakerfisins. Sé litið til annarra landa fullyrði ég að engri annarri þjóð myndi láta sér koma til hugar að byggja 2+2 vegi með mislægum gatnamótum fyrir umferð sem er ekki með fleiri bíla á dag en raun ber vitni á Suðurlandsveginum.“ Málið í höfn Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, lítur svo á að tvöföld- un Suðurlandsvegar sé í höfn. Hún bendir á að nærliggjandi sveitarfé- lög myndi samstarfshóp með Vega- gerðinni við að útfæra þá leið. „Við erum að vinna að því að tvöfalda veginn. Um það ríkir klár einhugur á Alþingi og öll tvímæli tekinn af í samgönguáætlun sem liggur fyr- ir. Þetta er það sem okkur er sagt af ráðamönnum þjóðarinnar og mér dettur ekki til hugar að trúa neinu öðru. Í mínum huga er það því eng- inn efi að þessi leið verði farin og mér er sagt að nýr samgönguráð- herra ætli að tvöfalda. Þannig að ég lít svo á að málið sé bara í höfn,“ seg- ir Aldís. „Það er tregða í Vegagerð- inni, það er engin spurning. Tregð- an hefur verið það mikil að þeir eru tilbúnir með 2+1 leiðina en það er eitthvað sem við viljum ekki. Ef sú leið verður farin þá sitjum við uppi með hana næstu árin og við viljum enga bráðabirgðalausn. Munur á umferðaröryggi milli leiðanna er mælanlegur og ekki vil ég vera ein þeirra sem lendur útundan í þeim mælingum. Eina leiðin til að tryggja öryggi og flutningsgetu er 2+2. Mál- ið er að Vegagerðin ræður þessu ekki ein og þeir verða að hlýða skip- unum. Ég hef trú á að þetta sé í sjónmáli, ráðamennirnir vilja þetta, Alþingi hefur samþykkt þetta og því lít ég á málið í höfn.“ TRausTi haFsTeinssOn blaðamaður skrifar: trausti@dv.is „Kristján sagði mér í vikunni að eng- in bráðabirgðaleið verði farin og vegur- inn verði tvöfaldað- ur núna, ekki þannig að ráðast þurfi í það seinna. Hann er gall- harður á því að gera þetta strax.“ ÁTakanlegT Banaslys Lísa Skaftadóttir, fimm barna móðir, lést í átakanlegu bílslysi á Suðurlandsvegi þann 21. mars. Talið er að hún hafi fengið flogaveikikast og færst yfir á rangan vegarhelming. Á móti kom vörubifreið og skullu bílarnir saman harkalega. TilBúið í úTBOð Hluti Suðurlandsveg- ar, frá Lögbergsbrekku að Litlu kaffistofunni, er fullhannaður miðað við 2+1 breikkun og tilbúinn til útboðs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.