Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Page 39

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Page 39
„30.9.71. (Þ.J.) Ástand hefur ekki tekið stór- stígum breytingum nú undanfarna 3 mán- uði, enda þótt auðsýnilega sé um hæga en ákveðna hrörnun að ræða. Eins og áður kom hér fram, hefur meistarinn ekki sýnt neina tilburði til myndlistar, eftir að hann kom hingað inn á deildina, jafnan hafn- að því ef honum hefur verið boðin tæki til þess. Hins vegar bar svo til í morgun er lit- ið var inn til hans að hann lá í rúminu sínu í djúpum svefni, h. framhandleggur reistur upp til hálfs, en fram úr hægri sem er orð- in grönn og sinaber, hékk gullleitur blýant- ur oddbrotinn. Þetta var eftirminnileg sjón þeim sem horfðu á. Lyf óbreytt.“ Ég er sannfærður um að beðið var með þessa opinberun þangað til afi minn gat ekki mót- mælt. Merkilegt að enginn þakkaði fyrir, eng- ar fundagerðir né önnur skjöl hjá borginni frá þessum degi, bara þessi frétt í Morgunblaðinu. Einnig undarlegt að það voru engar fréttir um þetta í öðrum blöðum og engin umfjöllun dag- ana á eftir, heldur ekki í Morgunblaðinu nema þrjár ljósmyndir af verkum úr meintri gjöf dag- inn eftir, sagt að Kjarval hefði gefið þetta haust- ið 1968, ljósmyndirnar af tveimur málverkum (mannamyndir) og einni teikningu sem skiptir máli. Meira um það seinna. Í þessu sambandi má benda á að í skýrslu Baldurs Guðlaugsson- ar frá 1982 er þetta: „Í þessu sambandi er ljóst að einungis örfá- ir aðilar hafa verið til staðar þegar afhend- ingin átti sér stað og fáir því vitað frá fyrstu hendi hvers eðlis afhendingargerningurinn var. Hvorki Jón Þorsteinsson, Páll Líndal, þáverandi borgarlögmaður, né Lárus Blön- dal, þáverandi borgarskjalavörður, ræddu t.d. um þetta við J. Kj.“ Hér á undan skrifaði ég um ástand föður míns þetta haust, sem þarfnast skýringa. Fyrst ber að nefna að efnahagsástandið var bágbor- ið árið 1968, viðreisnin í vandræðum, verð- bólga, gengisfellingar og verkföll. Faðir minn var byrjaður að reyna að halda utan um mál föður síns við vonlausar aðstæður. Til dæmis hafði Sigurður Benediksson, þá listaverkasali, náin samskipti við afa minn og hélt hvert lista- verkauppboðið af öðru nærri mánaðarlega þar sem myndir eftir Kjarval voru seldar í tugatali. Ef ég veit rétt voru þetta meðal annars myndir úr geymslum í Austurstræti 12 þar sem afi hafði haft vinnustofu í áratugi en notaði ekki lengur. Halldór Laxness minnist á þetta í skrifum sín- um við opnun Kjarvalsstaða: „Skömmu fyrir lát Kjarvals höfðu einhverjir spaugarar komist yfir hátt í hundrað myndir meistarans og settu þær á axjón í Reykjavík þar sem þær fóru á verði sem aðeins þekkt- ist á eldhúsdyralist.“ Eitt atvik skýrir þetta ástand kannski best. Sumarið 1968 var haldin sýning á eldri verkum afa í eigu fólks. Einn fjórði þjóðarinnar mætti, eða um 50.000 manns; Íslendingar þá eitt- hvað undir 200.000. Mætur maður sagði mér um daginn á Landsbókasafninu að í rauninni hefði þessi aðsókn verið ótrúlegri; hlutfalls- lega fleiri bjuggu úti á landi þá og samgöngur ekki sem í dag. Aðgangseyririnn var ókeypis en ef sýningarskrá var keypt var hún happdrætt- ismiði, vinningurinn mynd eftir Kjarval. Mikið fjármagn safnaðist sem rann allt í tilvonandi myndlistarhús við Miklatún. Áður, árið 1965, var líka sýning á málverkum Kjarvals með sama fyrirkomulagi. Þá safnaðist líka stórfé sem fór til sama málstaðar. Lögmaður fjölskyldunnar átti auðvelt með að reikna þá fjárhæð yfir í nútíma- virði í huganum. Faðir hans hafði keypt nýjan Land Rover um líkt leyti og þetta samsvaraði átta nýjum jeppum. Hvort það er nákvæmt hef ég ekki hugmynd um. Og þá atvikið: Ung hjón fengu myndina og ljósmynd af þeim brosandi við málverkið birt- ist í blöðunum. Ég fann þessa ljósmynd fyrst í Morgunblaðinu vegna þess að hægt er að skoða gömul Morgunblöð allt frá 1913 á net- inu, mikill fjársjóður. Á þeirri mynd 18. júlí 1968 er Alfreð Guðmundsson við hinn enda málverksins. Ekkert merkilegt við það, Alfreð Guðmundsson var jú eins og skuggi í lífi afa míns þessi ár. Til þess að rannsaka önnur dag- blöð frá þessum tíma verður að fara á Lands- bókasafnið, teiknað af Þorvaldi S. Þorvaldssyni arkitekti, stórskemmtilegt hús og líklega þess vegna að það er alltaf fullt af fólki. Í Tímanum fann ég svo aðra ljósmynd af sama atviki, nema að þar er Alfreð ekki einn; faðir minn Sveinn Kjarval stendur við hliðina á honum. Og hvers vegna var hann klipptur í burtu á Morgunblað- inu? Jú, vegna þess að valdið (Morgunblaðið) vildi skapa „andrúmsloft dauðans“ í kringum föður minn, vildi ekki að hann væri til, Kjar- val átti að vera eign íslensku þjóðarinnar og einkasonurinn passaði ekki inn í þá mynd. Ég get nefnt mörg slík dæmi, sérstaklega í sam- bandi við Kjarvalshúsið á Seltjarnarnesi, en finnst þetta sláandi. Við vitum að óæskilegt fólk var fjarlægt af ljósmyndum í gömlu Sovét, Mogginn fræddi okkur um það, en að það væri stundað í höfuðvígi vestræns frelsis voru mér fréttir. Og svo að það sé enginn misskilningur: báðar ljósmyndirnar teknar á sama augnabliki, þrír haldandi eins í málverkið á báðum ljós- myndunum. Í Tímanum er faðir minn auðsjá- anlega með í athöfninni, varla handarbreidd á milli hans og Alfreðs, faðir minn horfandi á myndina og hjónin, enda nefndur með nafni í Tímanum. Í Morgunblaðinu er Alfreð einn nefndur, enda búið að klippa pabba í burtu. Við vissum þetta í fjölskyldunni, ræddum um þetta samsæri að halda föður mínum frá málum föð- ur síns; það aðalástæðan að faðir minn flutti af landinu. Sjá ekki allir níðingsverkið og heldur einhver að þetta hafi verið fyrir slysni? Þetta sumar var Jóhannes Kjarval dáðastur allra Ís- lendinga, aðsóknin að sýningunni sannar það! Ritstjóri Morgunblaðsins, Matthías Johann- essen, var þá að vinna að bók um Kjarval sem varð metsölubók þau jól. Ljósmyndirnar í bók- inni eimmitt eftir son Alfreðs, mannsins sem í dag ræður úrslitum í dómsmálinu sem er á leið til Hæstaréttar. Ekki fyrir slysni að einkasonur Kjarvals var klipptur úr myndinni. Þegar ég var yngri reyndi ég að leiða þetta allt hjá mér, lifa mínu lífi og gleyma þessum tíma. Ef eitthvað þá ásakaði ég foreldra mína fyrir að hafa ekki staðið uppi í hárinu á þessum dónum. En með þroska hefur mér skilist að það var ekki hægt, þessir dónar voru valdið á Íslandi. Þetta „andrúmsloft dauðans“ kom fram í mörg- um myndum og stundum undarlegum. Þetta sumar hélt systir mín Kolbrún Kjarval sýn- ingu í Unuhúsi. Hún hafði lært leirkerasmíði í Edinborg og sýndi árangurinn. Sýningin vakti athygli og fréttir af henni birtust í blöðunum. Í Vísi varð Kolbrún Kjarval að Kolbrúnu í Unu- húsi. Dagblaðið Tíminn var samt ekki feimið, hafði langt samtal við Kolbrúnu Sveinsdóttur Kjarval og spurði meðal annars um afa hennar, hvaða áhrif það hefði á list hennar að vera son- ardóttir hans. Kolla svaraði því eftir bestu getu, kurteis eins og okkar barnanna var von og vísa, vel uppalin og lítillát. En aftur að Kjarvalshúsinu. Jóhannesi Kjarval listmálara var gefið húsið á Seltjarnarnesi og hann tók við því. Það er ennþá eign dánarbús hans að mínu mati, sama hve oft það gengur sölum eða kaupum. Upphaflega afsalið er gall- að; eða hvernig getur ríkið selt eign sem var gef- in opinberlega með miklum og stórum yfirlýs- ingum og þiggjandinn þáði. Er ekki dómsmál í gangi á Íslandi þar sem Reykjavíkurborg þyk- ist hafa þegið munnlega gjöf af Kjarval í leyni og sú meinta munnlega gjöf staðfest í héraðs- dómi, hvað sem verður í Hæstarétti! Í ævisögu um Kjarval listmálara, skrifaðri af Indriða G. Þorsteinssyni rithöfundi, einskonar opinberri sögu Kjarvals vegna þess að Indriði var á laun- um hjá ríkinu í fleiri ár við verkið, stendur skrif- að á bls. 305, öðru hefti: „Þótt menntamálaráðherra (Gylfi Þ. Gylfa- son) hefði fengið samþykki Kjarvals til að byggja húsið fyrir hann í Lambastaða- túni fór svo að hann vildi ekki taka við því þegar til kom. En í einu af mörgum viðtöl- um þeirra dr. Gylfa og meistarans tókst dr. Gylfa að lauma húslyklunum í hægri vas- ann á jakka hans. Kjarval vissi vel af þessu laumuspili ráðherrans en lét kyrrt liggja. Og ekki skilaði hann þessum lykli í ráðherratíð dr. Gylfa. Þótt Kjarval flytti aldrei í Kjarvals- húsið á Lambastaðatúni kom hann þangað margoft. Má vera að nokkru hafi ráðið um að hann flutti ekki að hann fór að kenna las- leika um það bil sem húsið var tilbúið. En húsið var byggt með samþykki Kjarvals, og voru helstu ástæðurnar fyrir samþykki hans þær að þegar hann félli frá átti að gera þarna bústað handa erlendum listamönnum sem kæmu hingað til dvalar í skemmri tíma. Þetta fyrirkomulag var þekkt annars stað- ar. Bjóst dr. Gylfi Þ. Gíslason við því í sam- tali að eflaust hefði Kjarval aldrei samþykkt bygginguna hefði húsið einungis verið ætlað honum.“ Sem sagt húsið gefið og þegið. Þar með hlýt- ur það að hafa verið í eigu Kjarvals þegar hann lést og í dánarbúi hans. Sú er mín skoðun og ætlunin að láta reyna á það þegar ég hef rétt til þess. Eina fasteignin sem afi minn Jóhannes Kjarval listmálari keypti um ævina var jörðin Einarslón á Snæfellsnesi, keypt rétt eftir seinni heimsstyrj- öldina með lögformlegu afsali. Kjarval borgaði síðan öll gjöld af jörðinni þangað til fyrri eig- endur jarðarinnar sögðust hafa eignast hana aftur þegar afi minn var orðinn gamalmenni og bjó á Hótel Borg. Eina skjalið hjá sýslumannin- um í Stykkishólmi er sundurlaust óundirskrif- að bréf, vélritað á bréfsefni Hótel Borgar, um að afi minn (sem skrifandi bréfsins í 1. persónu) sé kannski að hugsa um að gefa jörðina. Ég veit ekki til þess að afi minn hafi skrifað á ritvél. Í mínum huga er jörðin Einarslón á Snæfells- nesi ennþá í dánarbúi afa míns þótt hún sé komin undir ríkið og sé hluti af þjóðgarði í dag. Dánarbú föður míns er óskipt í umsjá móður minnar, tengdadóttur Kjarvals, og hún komin á tíræðisaldur, lögfræðingar ráða þar en ekki ég. Þrátt fyrir margra ára þrýsting frá mér hefur ekki verið lagt út í málaferli, hvorki vegna Kjar- valshússins né jarðarinnar Einarslóns, talið að málaferlin við Reykjavíkurborg gangi fyrir. Koma tímar og koma ráð, ef íslenska ríkið get- ur gengið á jarðareigendur samkvæmt ýtrustu kröfum, vitnað í Landnámu og stuðst við skjöl langt aftur í aldir, ætti eitt ár til eða frá ekki að skipta öllu máli í erfðamálum Jóhannesar Kjar- val listmálara, mannsins sem fórnaði sér fyrir Ísland og færði því stærri gjafir en flestir Íslend- ingar fyrr eða síðar, list sína. Fleiri heimildir eru til um afhendingu Kjar- valshúss, meðal annars segulbandsspóla af blaðamannafundi haustið 1975. Á þessum fundi kvartaði faðir minn stórum yfir meðferð yfirvalda á afkomendum Kjarvals. Um Kjar- valshúsið segir hann þetta meðal annars (fað- ir minn var alinn upp í Danmörku sem kemur fram í máli hans), orðrétt af spólunni: „Ég bjó þarna skammt frá og svo einn dag sé ég heljarmikla bílahersingu svartra bíla og fjöldi manna sem eru að koma þarna. Og ég auðvitað gat ekki annað en athugað það en ég vildi ekki trufla neinum. Ég fór þá eins og oftar niður í eftirmiðdagskaffi niður í Hót- el Borg og þá eru þeir búnir að drekka kaffi við þessa athöfn sem hafði farið fram sem ég ekki vissi um. Og faðir minn segir, ja má ég ekki kynna þér fyrir menn sem hafa verið að afhenda lykil af húsið...“ Þessi atburður gerðist sumarið 1968 og voru meginástæða þess að foreldrar mínir flúðu land og settust að í Danmörku ári seinna. Sam- kvæmt móður minni var þetta dropinn sem fyllti mælinn, faðir minn brotnaði þennan dag. Þessi húsbygging og hvernig staðið var að henni var föður mínum óendanlegur sársauki, vald- níðslan af hendi ráðamanna gagnvart honum með ólíkindum og í beinu hlutfalli við hversu dáður listamaður faðir hans var og hvað þess- um mönum var not í að vera nálægt Kjarval. Og þá er kannski við hæfi að drepa kjaftasögu sem ég kemst stundum í snertingu við, faðir minn var reglumaður en reykti þó, vinnuþjarkur. Hugmyndin að þessu húsi var nefnilega for- eldra minna, að byggja einfalt timburhús í fljótheitum þar sem hægt yrði að hjúkra afa, á lóðinni næst við hús þeirra. Faðir minn sem var innanhúsarkitekt teiknaði húsið og fór með teikningarnar til menntamálaráðherra, þá Gylfa Þ. Gylfasonar. Þar með var málið úr höndum föður míns. Þorvaldur S. Þorvaldsson arkitekt var fenginn til að teikna annað hús. Það undarlega að húsið sem var byggt eftir teikn- ingum Þorvalds var lítið annað en litla timbur- húsið á tröllamjöli. Ég vil ekki trúa því að þess- ar teikningar föður míns hafi verið eyðilagðar, einn daginn munu þær skjóta upp kollinum og sanna mitt mál. Ég bar þetta undir Þorvald en hann neitaði að hafa notast við teikningar föður míns. Í dag er til veiðikofi við Hrútafjarðará sem faðir minn teiknaði og smíðaði á þessum árum, auðsjá- anlega upphaflega hugmyndin að þessu húsi. Ég man að Grétar Þorsteinsson núverandi for- seti ASÍ kom að smíði veiðihússins en hann var lærlingur pabba í húsgagnasmíði. Ég skil ekki hvernig Þorvaldur getur hagað sér svona, ekkert að því að notast við hugmyndir annarra eins lengi og menn gangast við því, listamenn gera það alla daga. Alnafni minn Ingimund- ur Sveinsson arkitekt er ekkert að fela að hug- mynd hans að Perlunni í Öskjuhlíð, sem hann teiknaði, komi frá afa mínum Jóhannesi Kjar- val, sagði það við mig í eina skiptið sem við hittumst. Ég er ekki að segja að þessi hugmynd föður míns að húsinu sé svo merkileg, jafnvel úr bandarísku veiðitímariti. Minnir á „leanto“- skýli sem voru byggð í brekkum mót suðri til þess að fanga sólina og fá skjólið af brekkunni fyrir aftan, gluggarnir að framan með hallandi þakinu aftur. Hvað heldur Þorvaldur að hann sé, hér er einn mesti listamaður íslensku þjóð- arinnar og sonur hans teiknar honum hús. Séra Bragi Friðriksson sagði í ræðu sinni við út- för Kjarvals: „Jóhannes Kjarval hafði á orði að hann vildi byggja höll uppi í Öskjuhlíð. Hún átti að verða stór, því stórt skyldi byggja eða alls ekki, sagði hann. Í þessari höll áttu að búa dóttir hans og sonur og hann sjálfur og vin- um sínum vildi hann sæti skipa veglega í hallarsölum sínum. Allir vita, að Kjarval byggði enga slíka höll og aldrei bjó hann í háum sölum. Góðu heilli verða verk hans senn í slíkum salarkynnum. Eitt sinn bauð hann son sinn velkominn til Íslands og gaf honum myndina Morgunroðann. Sú mynd sýnir þessa draumahöll. Hún birtir hans stóra, hreina hjarta. Allar hallir hans eru í myndum.“ Þetta málverk Morgunroðinn var svo hluti af uppeldi mínu, á stofuveggnum á ótal stöð- um vegna þess að fjölskyldan var í húsnæðis- hrakningum. Þegar ég leitaði að heimildum í fjölmiðlum frá árinu 1968 rakst ég á ljósmynd af pabba fyrir framan málverkið á sýningunni í Listamannaskálanum það sumar. Þegar ég sé Perluna í fjarska minnist ég alltaf myndarinnar vegna þess að kúlan er í henni. Foreldrar mínir neyddust til að selja málverkið áður en að þeir fluttu til Danmerkur. Hún sést í fjölskylduljós- mynd á jólunum 1968 en var líklega seld stuttu seinna. Í dag er hún með ótal öðrum myndum eftir afa á Hótel Holti. Faðir minn segir í viðtali 5. júlí 1968 í Morgunblaðinu um þessa mynd: „Hún var máluð 1939, segir Sveinn, sama ár og ég fluttist alkominn heim til Íslands. Ég er fæddur og uppalinn í Danmörku, ég hafði lítil kynni af föður mínum til tvítugsaldurs. En 25. janúar 1939 sendi ég pabba skeyti þar sem ég sagði honum að þann dag legði ég af stað til Íslands til að setjast hér að. Þann sama dag mun hann hafa byrjað á þessari mynd, og þegar ég kom heim, færði hann mér hana að gjöf og kallaði Morgunroða. Ég á ekki ýkja margar myndir eftir pabba, þó talsvert af fallegum teikningum og skissum. En af öllum myndunum er þessi mér kær- ust, því mér fannst bæði myndin og nafn- giftin bera þess vitni að honum væri koma mín til Íslands kær. Þótt myndin sé ekki máluð fyrr en 1939, þá er mótívið ekki með öllu nýtt. Ég á litla vatnslitamynd frá 1918- 20, þar sem sama stemmingin birtist, enda þótt uppbyggingin sé önnur. Mér hefur skil- izt að fígúrurnar í myndinni séu táknrænar fyrir ættina, en byggingin á myndinni miðri með kúptu þakinu sé draumhöll pabba. Hana vildi hann reisa í Öskjuhlíð, að því er mér var sagt, og klæða kúpuna með ljós- rauðu postulíni að innan.“ Sumum finnst að ég fari offari ef ekki græðgi, en á óréttlætið og valdaníðslan að standa, aðeins svo ekki sé hægt að bera slíkt upp á mig? Hvað ef að afi minn sem íslenska þjóðin kallar meistara Kjarval var skipulega rændur í ellinni og afkom- endur hans troðnir undir? Ég býst ekki við að Kjarvalshúsinu eða Einarslóni verði skilað, vil bara að níðingsverkin verði opinberuð og sýnt hverjir stóðu að þeim. Alveg eins og Fréttablað- inu er mikið mál að skálda um Kjarval virðast aðrir hafa skáldað upp gjafir til sín frá honum. Ef ekki annað þá vil ég að sannleikurinn verði opinberaður, ef að ríkið gaf aldrei Kjarvalshúsið og Kjarval gaf jörðina Einarslón er löngu kom- inn tími til þess að fá það á hreint. Ég byrjaði ekki málaferlin gegn Reykjavíkurborg vegna þess að ég héldi að einhver verðmæti væru í þessari meintu gjöf, komst að því seinna. Ég hafði aldrei sett mig inn í það enda var þetta falið uppi á Korpúlfsstöðum í 17 ár eða til ársins 1985 en pabbi lést árið1981. Eina ástæðan að ég lagði af stað var að hreinsa orðstír föður míns, sem af einhverjum ástæðum er mér mikið mál. Og svo eitt sé á hreinu, Hilmar Einarsson og Kristín G. Guðnadóttir, þið hafið ekki hugmynd um hvað var í þessari „meintu gjöf“ þó að þið hafið unnið í henni í áratugi, þið vissuð aldrei hvað fór hvert eða hvenær. Það var hvorki rétt af ykkur né vel gert að gera lítið úr henni í fjöl- miðlum daginn sem dómurinn féll. Við vitum að meira en 600 bókatitlar eru ekki í seinni list- anum sem voru í þeim fyrri, vitum að málverk eftir listmálarann Eirík Smith var í þeim fyrri en ekki seinni, að kassar af olíumálverkum eftir Kjarval voru skráðir í fyrri listann (ekkert lista- verk eftir Kjarval er sérstaklega skráð) en eru í seinni listanum orðnir að meira en 5.000 teikn- ingum en engu olíumálverki. Trúi því hver sem vill! Ég minni á fréttina í Morgunblaðinu frá ár- inu 1971. Ekki nóg með að afi væri rændur með því að segja að hann hefði gefið, líka gert sem minnst úr því með hjálp ykkar, Kristín og Hilm- ar. Eru engin takmörk? Ingimundur Kjarval. auglýsing

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.