Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Page 40
föstudagur 1. júní 200740 Ættfræði DV
ættfræði
U m s j ó n : K j a r t a n G u n n a r K j a r t a n s s o n
N e t f a n g k g k @ d v . i s
Á níunda tímanum í gærmorgun
fann Katalínuflugbátur frá Flugfélagi
Íslands flak Douglas Dakota-vélar-
innar sem hafði verið saknað frá því
um kl. 13 daginn áður. Flak vélarinn-
ar fannst í grunnu gili í snarbröttum
hlíðum austan í utanverðu Hestfjalli
við vestanverðan Héðinsfjörð. Aug-
ljóst var að sprenging hafði orðið er
vélin lenti á fjallshlíðinni og því nær
víst að allir höfðu látist samstund-
is. Svo háttar til á þessum slóðum
að slysstaðurinn er eini staðurinn á
stóru svæði þar sem flakið staðnæm-
ist í fjallshlíðinni en hrapar ekki í sjó
fram.
Hinsta kveðjan
Vélin sem fórst var tveggja hreyfla
Douglas Dakotavél en var hún ein af
þremur DC-3 vélum Flugfélags Ís-
lands og hafði einkennisstafina TF-
ISI. Vélin sem var í áætlunarflugi frá
Reykjavík til Akureyrar hafði lagt af
stað frá Reykjavík kl. 11.25 fimmtu-
daginn 29. maí 1947. Síðast var haft
loftskeytasamband við vélina kl.
12.30 er hún var yfir Skagafirði. Virt-
ist þá allt vera með felldu og átti vélin
að hafa aftur samband við Akureyri
tíu mínútum síðar. Þetta urðu þó síð-
ustu loftskeytasamskiptin við vélina.
Síðast sást til vélarinnar frá Siglu-
nesi um kl. 12.45. Flaug hún þá í
austurátt og svo lágt að farþegar í
vélinni veifuðu til heimilisfólksins á
Reyðarárbænum, norðvestan undir
nesinu. Þá var skyggni um einn kíló-
metri, mjög lágskýjað með dálítilli
úrkomu og fjögurra stiga austanátt.
Örskömmu síðar dimmdi yfir með
þykkum þokubakka.
Líklegur aðdragandi slyssins
Ekkert verður sagt um nákvæm-
ar orsakir slyssins enda enginn sjón-
arvottur að því. Þó þykir einsýnt að
dimmviðri og nánast ekkert skyggni
séu meginskýringin á þessu hörmu-
lega slysi. Vélin flaug sjónflug inn
Eyjafjörð en flugleiðsögutæki á þess-
ari flugleið voru þá fá og frumstæð.
Helst er líkum leitt að því að vélin
hafi lent í svo dimmum þokubakka
inn Eyjafjörðinn að flugmennirn-
ir hafi snúið við og flogið til baka út
fjörðinn. Þeir hafi ætlað að halda sér
sem næst Siglunesi til að átta sig þar
á staðháttum en vélin hafi þá borist
í mynni Héðinsfjarðar í norðaustan-
áttinni og lent á fjallinu.
Lega og stefna flaksins í hlíðinni
benti til þess að flugmennirnir hafi
orðið fjallsins varir skömmu áður en
vélin lenti á því og þá beint vélinni
upp á við til að forðast árekstur en
það hafi þá verið um seinan.
Hörmuleg aðkoma
Ekki var hægt að hefja leit að vél-
inni úr lofti fyrr en aðfaranótt föstu-
dags er farið var að létta til á Norður-
landi. Þá fóru tveir Katalínuflugbátar
til leitar og ein minni flugvél. Eftir að
flak vélarinnar fannst fór leiðangur
frá Siglufirði og Ólafsfirði á slysstað-
inn á vélbátum. Í leiðangrinum var
hjúkrunarfólk og læknar.
Leiðangursmönnum gekk greið-
lega að finna flakið sem lá í um
hundrað metra hæð yfir sjávarmáli
í gilskoru fyrir innan, við svokallaðar
Vogatorfur. Urðu leiðangursmenn að
nota léttabát til að komast í land sök-
um brims. Þeir klifu síðan stórgrýtta
skriðu upp í gilskoruna þar sem
flakið lá og voru komnir á vettvang
skömmu fyrir hádegi á föstudegi.
Þar blasti við hörmuleg sjón og
átakanlegt verkefni. Vélin var mjög
illa farin eftir áreksturinn og spreng-
inguna þótt annar vængur henn-
ar væri heillegur sem og afturhluti
skrokksins. Hlutir úr vélinni voru
dreifðir um gilið sem var sótsvart eft-
ir brunann og líkin lágu dreifð um
svæðið en önnur inni í flakinu. Þau
voru sum sködduð en þó öll þekkj-
anleg. Eitt líkið fannst ekki í þessum
leiðangri enda var mönnum uppá-
lagt að hreyfa ekki við flakinu eða
hlutum þess áður en flugslysarann-
sókn færi fram á vettvangi.
Virðuleg athöfn á Ólafsfirði og
Akureyri
Vélbáturinn Egill flutti líkin til Ól-
afsfjarðar þar sem búið var um þau
og þau sveipuð íslenskum fánum.
Þau voru síðan flutt með skipinu Atla
til Akureyrar. Áður en skipið lagði
frá bryggju í Ólafsfirði, söng Karla-
kór Ólafsfjarðar sálmalög og sóknar-
presturinn mælti nokkur orð.
Er Ms Atli lagðist að bryggju á Ak-
ureyri kl. 10 á föstudagskvöldi, voru
þar samankomin helstu fyrirmenni
bæjarfélagsins og meiri mannfjöldi
en áður hafði sést þar. Lúðrasveit
Akureyrar lék sorgarlög, Karlakór-
inn Geysir söng Hærra minn guð til
þín, séra Pétur Sigurgeirsson sókn-
arprestur hélt ræðu við skipshlið,
síðan söng kórinn Lýs milda ljós, en
að því loknu var ekið með líkin til
kirkju þar sem leikin voru sorgarlög
á kirkjuorgelið.
Fánar blöktu í hálfa stöng á föstu-
deginum á Akureyri og í Reykja-
vík og fyrirhuguðum samkomum
var frestað vegna þessa hörmulega
slyss.
Mesta flugslys á Íslandi
Flugslysið í Héðinsfirði fyrir sex-
tíu árum er stærsta flugslys sem orð-
ið hefur hér á landi. Allir sem með
vélinn voru fórust, fjögurra manna
áhöfn og tuttugu og einn farþegi.
Meðal farþeganna voru ýmsir þekkt-
ir einstaklingar svo sem Garðar Þor-
steinsson alþingismaður, Brynja
Hlíðar lyfjafræðingur á Akureyri,
Gunnar Hallgrímsson tannlæknir og
Stefán Sigurðsson, deildarstjóri hjá
KEA. Þá fórst með vélinni fjögurra
manna fjölskylda sem var að flytja
búferlum til Akureyrar.
Mannskæð flugslysahrina
Sama dag og flugslysið varð í Héð-
insfirði fórst bandarísk farþegaflug-
vél í New York og með henni þrjátíu
og sex manns. Fleiri flugslys urðu svo
þennan dag og næstu tvo daga. Í Jap-
an fórust fjörutíu og einn í flugslysi,
fjórtán manns týndu lífi er vél frá
hollenska flughernum fórst, fjörutíu
manns fórust í flugslysi í Suður-Am-
eríku, þrír í Alaska og fimmtíu og þrír
fórust með Douglas-vél sem hrap-
aði í skóglendi í Maryland í Banda-
ríkjunum, tveimur sólarhringum eft-
ir Héðinsfjarðarslysið. Þetta þóttu
óvenju tíð og mannskæð flugslys
á ekki lengri tíma, og reyndar með
ólíkindum þegar haft er í huga að þá
var flugumferð ekki nema brotabrot
af því sem síðar varð.
Þá má með nokkrum rétti tala um
flugslysavor hér á landi 1947 því auk
Héðinsfjarðarslyssins, fórust fjórir er
Grumman-flugbát í eigu Loftleiða
hvolfdi í flugtaki við Búðardal þann
13. mars auk þess sem tveir ungir
menn fórust er lítil kennsluvél hrap-
aði til jarðar skammt frá Varmadal í
Mosfellssveit í júníbyrjun.
Ingibjörg Jóhannsdóttir
f. 1. júní 1905, d. 9. júní 1995
Ingibjörg Jóhannsdóttir, skóla-
stjóri Húsmæðraskólans að Löngu-
mýri í Vallhólma í Skagafirði fædd-
ist að Löngumýri og ólst þar upp.
Hún var dóttir Jóhanns Sigurðs-
sonar, óðalsbónda á Löngumýri, og
k.h., Sigurlaugar Ólafsdóttur hús-
freyju. Ingibjörg átti tvær systur,
Ólöfu og Steinunni sem einnig komu
að kennslu. Steinunn var kennari í
Skagafirði um langt árabil en kenndi
auk þess á Hellissandi.
Ingibjörg sótti hússtjórnarnám-
skeið við Kvennaskólann í Reykja-
vík, var á garðyrkjunámskeiðum í
Reykjavík, lauk kennaraprófi 1936,
fór námsferð til barna- og hús-
mæðraskóla í Noregi og Svíþjóð
1938 og stundaði síðan nám við Hús-
mæðrakennaraskóla Noregs og síðar
í Danmörku og í Þýskalandi.
Ingibjörg er verðugur fulltrúi
þeirra staðföstu kvenna af aldamóta-
kynslóðinni sem héldu til Reykjavík-
ur og síðan út í heim til mennta, með
þá hugsjón að leiðarljósi að auka
menntun kynsystra sinna. Hún var
ein þeirra kvenna sem ruddu braut-
ina fyrir nýjum viðhorfum í hús-
stjórn og heimilisstörfum er lutu að
stórauknum þrifnaði, matjurtarækt-
un og fjölbreyttri og hollri fæðu.
Ingibjörg stofnaði Húsmæðra-
skólann á Löngumýri og var skóla-
stjóri hans 1944-1967. Þar hélt hún
einnig sumarnámskeið fyrir stúlkur
1955 og 1956 og var forstöðumaður
fyrir barnaheimili Rauða kross Ís-
lands á Staðarfelli og á Löngumýri.
Er Ingibjörg lagði niður húsmæðra-
skólann ánafnaði hún Þjóðkirkj-
unni jörðina Löngumýri en þar hefur
Þjóðkirkjan starfrækt skóla-, funda-
og ráðstefnusetur um árabil.
Ingibjörg var formaður Skógrækt-
arfélags Skagfirðinga, Kvenfélags
Seyluhrepps og gjaldkeri Kvenfélags-
sambands Skagafjarðar um skeið.
Hún flutti til Reykjavíkur 1967.
Ingibjörg skrifaði greinar í blöð
og tímarit, einkum um uppeldismál,
skólamál og hússtjórnarmálefni.
Ættfræði DV
Kjartan gunnar Kjartansson rekur ættir þjóðþekktra íslendinga
sem hafa verið í fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma viðburði
liðinna ára og minnist horfinna merkra íslendinga. Lesendur
geta sent inn tilkynningar um stórafmæli á netfangið kgk�
dv.is
Merkir Íslendingar:
á Íslandi
Í fréttum var þetta helst... 31. maí 1947: Flugvél fórst á Hestfjalli við Héðinsfjörð
Stærsta flugslys
Flakið utan í Hestfjalli
Enginn sjónarvottur var að
slysinu en dimmviðri og
lélegt skyggni eru talin
líklegasta orsökin.