Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Side 62

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2007, Side 62
FÖSTudagur 1. júní 200762 Síðast en ekki síst DV Dagbókin mín Gunnar Ingi Birgisson Mikið óskaplega er nú gott að búa hérna í Kópavoginum. Ég meina - hvar annarsstaðar í heiminum getur maður verið viss um að vakna við ómþýðan gný vinnuvélanna? Ískrandi krana og malandi vöru- bíla. Ég fór út á svalir á nærföt- unum einum klæða í morgun með kaffibollann og leit yfir bæinn minn. Og ég sá að það var harla gott. Jarðýturnar suðuðu, skurðgröfurnar mokuðu eins og ofvirk tröllabörn í sandkassa. Ég viðurkenni það alveg að ég táraðist. Ekkert að því. Það þýðir ekkert að ég sé einhver kelling. Alls ekki. Ég veit ekki betur en Clint Eastwood hafi grátið í myndinni þarna. Hvað sem hún nú heitir. Ekki er hann kelling. Ég er alltaf að komast bet-ur og betur að því hvað ég er mikið náttúrubarn. Ég veit fátt yndislegra en að keyra um Kópavoginn minn í jeppanum og dást að öllum framkvæmdunum. Nýju sundlauginni minni til dæmis - æðislegt allt þetta heita vatn. Hugsaðu þér bara. Maður bara skrúfar frá og þá fyllist sund- laugin af heitu vatni, beint úr náttúrunni! Ótrúlega magnað. Svo getur maður bara labbað út í náttúruna og sótt sér tré eða mosa eða svona blóm og svoleið- is og sett niður þar sem maður vill. Ef það er pláss. Já hún er svo sannarlega yndisleg þessi náttúra. Og ég fíla hana. Ég er náttúrbarn og ég viðurkenni það alveg. Ég er náttúrumikill maður. Stór, tifandi náttúrutíma- sprengja. Náttúrleg atómbomba. Það er svo ofsalega margt að skoða hérna í Kópavoginum mínum. Menningarlífið er í svo miklum blóma. Málverkasýning- ar, tónlist, leiksýningar og allur dansinn. Maður lifandi. Hér í bænum eru nefnilega dans- menntir hafðar í hávegum og listdansarar á hverju strái. Dans er ekki bara list - hann er líka íþrótt. Getur meira að segja ver- ið kontaktsport - undir réttum kringumstæðum. Dálítið eins og box, eða glíma. Nú svo er í bænum mínum sjúklega flott kirkja og fullt af álfa-steinum. Þeir eru nefnilega alveg til í alvörunni, álfarnir. Ég sá meira að segja einu sinni svona álf. Hann var á leiðinni inn á Players og þurfti ekki að bíða í röðinni af því að dyravörðurinn sá hann ekki. Ég væri alveg til í að geta verið svona ósýnilegur, eins og álfarn- ir. Þá gæti ég farið á allskonar sýningar og viðburði óséður. Kannski tékkað duglega á list- dansinum í friði. Ætli það sé nokkuð hægt að taka myndir af svona álfum? Kæra dagbók Ég er náttúrusprengja Sandkassinn Hann er hraður heimurinn hjá blaðamönnum. Nýr ritstjóri er kominn á blaðið Blaðið og mun hann þá fá að njóta þess vafa- sama heiðurs að vera fimmti ritstjórinn á rúmum tveim- ur árum blaðsins. Það er hann ólaf- ur Þ. Stephen- sen sem tekur við kyndlinum af Trausta Hafliðasyni sem stýrði blaðinu í hálft ár. Sjálfur hættir Ólafur sem aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins til að gegna hinu ótrygga starfi. Mér þótti merkileg yfirlýsing hans um áherslurbreyting- ar blaðsins. Hann vill færa það nær fólki og fókusa meira á það sem skiptir fólkið máli. Það eru svo sem ekki undarleg orð komandi frá aðstoðarritstjóra Morgunblaðisins, en sjálfur hef ég ávallt staðið í þeirri trú að blaðamennska snerist meira eða minna um það sem máli skiptir fyrir fólk. Að stjórnmálum. Fréttaflutningur undanfarna daga hefur snúist að nokkru leyti um hugsan- lega aðstoð- armenn nýrra ráðherra. Ró- bert marshall mun aðstoða Samgöngu- ráðherra. Ein- ar k. Har- aldsson mun aðstoða iðnaðarráðherra. Svo mun anna kristín ólafsdóttir hjálpa umhverfisráðherranum. Það eru sennilega þrjár mann- tegundir sem taka andköf við slíkar fréttir. Þeir sem fengu ekki starfið, blaðamenn sem þurfa að eiga við þau næstu fjögur árin og svo spunakerlingar á bloggun- um. Sjálfur vill ég heyra meira um fangelsisvist Parisar Hilton. Að- stoðarmenn eru ekki spennandi frekar en ritarar ráðherranna. En væru þeir í fangelsi, þá sperrti ég eyrun. Af slúðri. Ég heyrði því fleygt fram í heima- bæ mínum, Hafnarfirði, að fólk væri ákaflega skúffað yfir ör- lögum gunn- ars Svavars- sonar fyrsta þingmanns í suðvestur- kjördæmi. Hann er Hafn- firðingur en hlaut hvorki ráðherrastól né embætti innan þingflokks. Í stað- inn er hann formaður fjárlaga- nefndar. Það munu vera sárabæt- ur. Gaflararnir eru þó ekki sáttir. Þeir sjá ekki mikla hagsmuni í Garðbæingnum Þórunni Svein- bjarnadóttur umhverfisráðherra. Vilja þeir meina að ingibjörg Sólrún hafi alfarið lokað á Hafn- firðinga þegar hún gekk einnig fram hjá katrínu Júlíusdóttur sem er annar þingmaður í suð- vesturkjördæmi. Þórunn er sá þriðji. Kenningar manna eru þær að Ingibjörg sé að tryggja stöðu sína innan flokksins áður en Lúðvík geirsson bæjarstjóri Hafnar- fjarðar muni láta til sín taka í landspólitík. Valur Grettisson fylgist grannt með séð með augum „Ég er að fara á þriðjudaginn ásamt stórgítarleikaranum Gunnari Þór og Baldvini A.B Aalen trommu- leikara og upptökustjóra. Við ætlum að reyna að taka upp eins mikið og við getum en við verðum í gömlu sveitastudíói í eina viku“, segir Magni Ásgeirsson, en hann er að fara taka upp sína fyrstu sólóplötu. „Þetta er orðin svo mikil lenska að fara til Danmerkur og taka upp plötu. Hljómsveitir eins og Sálin hans Jóns míns og Sóldögg hafa gert þetta og borið Danmörku söguna vel,“ segir Magni og bætir því við að það sé nauðsynlegt að einangra sig, ef allt á að ganga að óskum. „Þetta er spurning um að vinna almenni- lega. Miklu betra en að vera gaufast með hina dagvinnuna og allt það umstang sem fylgir hinu daglega lífi,“ segir Magni. Aðspurður um efni plötunnar segir Magni að hún muni innihalda lög sem eru drifin áfram af tilfinningaríku kassagítarrokki í anda Damien Rice. „Þetta eru lög sem ég hef verið að semja í gegn- um árin og eru flest í rokkaðri kant- inum. Elsta lagið samdi ég í Noregi fyrir fjórum árum síðan og það nýj- asta er aðeins nokkurra daga gam- alt, en textarnir eru tiltölulega nýir,“ segir Magni Rockstar hjálpar „Textarnir á plötunni eru um allt milli himins og jarðar. Ég kann að vera skrítinn textahöfundur að þessu leyti því margir tónlistarmenn semja texta um eigin reynslu. Ég fer oft allt aðra leið og syng um það sem mér dettur í hug. Ég trúi því að fólk eigi að rýna í textann og ákveða sjálft um hvað hann er,“ segir Magni og vill meina að Rockstar þættirnir munu hjálpa plötunni þegar hún kemur á alþjóðlegan markað. „Engin spurn- ing. Um þessar mundir er verið að frumsýna þættina í Suður-Afríku. In- dónesía var einnig stór markaður og í gegnum aðdáendasíðuna hafa komið eftirspurnir frá mörgum löndum. Til að anna þessum eftirspurnum stefni ég að því að koma henni í sölu á Itu- nes. Ég hef heyrt um aðdáendur sem hafa flogið frá Kanada til Los Ang- eles, gagngert til að sjá mig. Þannig að aðdáendahópinn vantar ekki“ segir Magni. Útgáfutónleikar nýju plötunnar verða að öllum líkindum haldnir um seinni part júlí mánaðar í Bræðslunni á Borgarfirði-Eystri, en Magni bjó þar til 15 ára aldurs. „Það verða ekki margir tónleikar fyrir utan þessa á mínum heimaslóðum, en þó er aldrei að vita. Á móti sól er mikið bókuð í sumar og í haust. Mér líður best þegar ég hef lítið í einu á minni könnu“, segir Magni Ásgeirsson. Magni Ásgeirsson, söngvari í Á móti sól, heldur til Danmerkur eftir helgi þar sem hann ætlar að taka upp sína fyrstu sólóplötu. Magni segir engan vafa leika á að Rockstar þættirnir muni hjálpa plötunni þegar hún kemur á alþjóðlegan markað. Betri tíð með blóm í haga Það lítur út fyrir að veðrið verði ákaflega gott að minnsta kosti hvað hitastig áhrærir, sértstaklega á Norð- ur- og Norðausturlandi. Á laugardag má gera ráð fyrir því að hitinn fari í 20 stig norðan- og norðaustanlands, en syðra er hins vegar gert ráð fyrir að það verði skýjað og einhver rign- ing um tíma, sérstaklega þó á Suð- austurlandi. Sá galli er á gjöf Njarð- ar að sums staðar má reikna með nokkrum strekkingi af suðaustri á landinu eða 10-15 m/s. Á sunnudag er spáð hægari vindi af suðri eða suðvestri, víða sólríkt um norðan- og austanvert landið. Kannski ekki fullt eins hlýtt og á laugardaginn, en samt rakin sumarblíða. Meira skýj- að verður hins vegar syðra og lítils- háttar úrkoma annað slagið. Það hlaut að koma að því fyrr en síðar að veðrið tæki að skána hér á landi. Eftir afar góða tvo til þrjá daga á suðvesturhorninu nú fyrir helgina og vitan- lega víðar vestanlands er komið að Norðlending- um og íbúum Austur- lands. Síðan er að sjá í næstu viku að suðlæg átt verði ríkj- andi framan af með eitthvað sval- ara veðri. Þá dumbungur sunnan og vestantil og ekki ólíklega verða app- elsínugulu gallarnir meira áberandi á höfuðborgarsvæðinu en ann- ars, en norðan og austantil er útlit fyrir að lengst af verði góð- viðri. Ekki er síðan loku skotið fyrir það að skammvinn norð- urátt geri vart við sig um og upp úr miðri viku. En slíkar hrak- spár langt fram í tím- ann verða bara að koma. Í dag Á morgun Veðrið +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx xxxx xx +127 +146 xx xx xxxx +11 10 +14 5 +9 5 xx +10 3 xx xx xx xx xx xx xx xx +153 +108 +136 +144 -xx MaGni Á kRossGötuM Magni heldur á vit ævintýranna til danmerkur eftir helgi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.