Læknablaðið : fylgirit - 31.07.1995, Page 17

Læknablaðið : fylgirit - 31.07.1995, Page 17
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 17 nema við tveir viðstaddir, það nennti enginn að hlusta á svona labbakúta. Svo segir Brynleifur: nah, nah ..., kann hann nokkuð í Fornaldar- sögunni?... nah, nah ... kann hann nokkuð í grískri goðsögu?“ — Pá fór í verra hjá Jóni, hann vissi þar lítið, svo ég hugsa, þetta hefi ég lesið. Síðan er ég tekinn upp, og ég stóð mig sæmilega, og eftir það sagði ég við Jón: „Huh, ég marka ekki mikið, hvað þú kannt í sögu, ég sló þig rækilega út.“ Og þetta lét ég hann hafa alla æfi. Þarna var hann strax allur í annálunum, við vorum þá 16 ára gamlir. Jón var kurteis og lítillát- ur svo af bar, og ekki flíkaði hann kunnáttu sinni. Ég fann strax, að hann var líklega sá snarpgáfað- asti í hópnum. Hann var sá, sem las minnst af öllum, og hefði hann viljað, hefði hann getað verið hæstur. Peir þrír voru svipaðir í einkunn og hæstir, Halldór, Steingrímur og Jón, en Jón var ekkert að hugsa um það, þurfti þess ekki. Hann var jafnvígur á allar greinar, líka stærðfræðina. Hann hafði breiðar og skemmtilegar gáfur, en var líka ljúfur, glettinn og gamansamur, var alltaf til í að tuskast við okkur. Þá var móðins í skóla svo- kallaður „hanaslagur.“ Þar hlaut ég mikla niður- læging vegna líkamslengdar, en sextán ára gamall hafði ég náð fullri hæð, 188 cm, og þar með var ég hæstur nemenda skólans — að líkamshæð! Föðurbróðir Jóns Jóhannessonar var Stefán Jónsson, eldri, dósent við læknadeildina frá 1917- 1922. Jón var frá Hrísakoti á Vatnsnesi, og þar var Stefán einnig fæddur. Sigurður Guðmundsson skólameistari vissi ábyggilega um ættir Jóns. „Jón, þú ert af Vatnsnesinu, faðir þinn var þaðan, en móðir þín, var hún ekki að sunnan?“ „Jú,“ — segir Jón, „frá Hlaðgerðarkoti í Mos- fellssveit.“ „Já“ — segir skólameistari „... vinnukona að sunnan, það er gott að blanda blóðinu svona.“ En ég hugsaði eftir á, að skólameistari var ekki síður að hugsa um sjálfan sig, hann var að norðan og hans ágæta frú að sunnan. Björn Jóhannsson var frá Flateyri í Önundar- firði. Faðir hans hét Jóhann Sveinbjörnsson, pró- fastur, sem dó frá ungum börnum. Ekkjan fluttist þá í heimahaga og ól börnin upp. Bjössi bjó aldrei í heimavistinni, hann vildi alltaf búa í bænum eins og Karl ísfeld. Hann hafði alla burði til námsins, en sinnti því lítið. Hann var ljúfur og góður, hafði mjög kurteislega framkomu, fór vel með vín og mætti vel í kennslustundum. Hann og Karl ísfeld höfðu á sér heimsborgarasnið. Eftir stúdentspróf stofnaði hann fyrirtæki og stjórnaði þeim, og eitt þeirra lifir enn góðu lífi. Það er Sælgætisgerðin Ópal. Góður drengur, og það var gott að vera með honum. Rafn Jónsson var nánasti vinur minn meðal bekkjarbræðranna, og við vorum saman öll stríðs- árin. Hann var mjög geðþekkur, en var svolítið þungur í byrjun, en alltaf léttur, þegar maður fór að tala við hann. Hann var hálfbróðir Guðmundar, óðalsbónda, Jónssonar á Hvítárbakka, og Jóhanns skipherra á Varðskipinu Ægi. Faðir Rafns var ráðs- maður á Vífilsstöðum, Jón Guðmundsson, einnig um tíma bóndi á Reykjum í Lundareykjadal. Rafn var hógvær og prúður. Mér fannst hann aldrei fá eins mikið út úr prófum eins og honum bar, en hann blómstraði, þegar hann kom í tannlækna- deildina í Kaupmannahöfn. Það nám tók hann á stuttum tíma og útskrifaðist 1936. Eftir námið ytra kom hann heim og gerðist tannlæknir við barna- skólana í Reykjavík. En árið 1938 fór hann út aftur til Kaupmannahafnar með Huldu Olgeirsson konu sinni, og þegar ég kom út aftur, nýkvæntur 1939, hittumst við á ný og vorum þar öll stnðsárin í sömu götu. Sveinn Bergsveinsson var eldri en við og vel gef- inn. Eins og Benedikt Tómasson var hann aðeins með okkur í sjötta bekk. Fyrir bragðið hafði að minnsta kosti ég lítið samneyti við hann og hann var löngum með sínum gömlu sambekkingum, Sig- tryggi Klemenzsyni og Benedikt. Sveinn var mikill gleðimaður og oft að setja saman vísur, en alltaf fannst mér hann stirðkveðinn, blessaður. Hann lauk norrænunámi frá H. I. 1936 og doktorsprófi 1941 við Hafnarháskóla. Síðan nam hann hljóðfræði í Þýskalandi í fjögur ár. Það, sem virðist hafa bund- ið enda á hans langa nám, var, að hann fékk berkla 1944 og kom heim í stríðslok. Þegar hann náði sér, gerðist hann kennari í Reykjavík. En 1951 fór hann alfarinn og sat í Austur-Berlín og varð prófessor við Humboldt Universitat. Sveinn var vinstrisinnaður og í hópi með Ásgeiri Blöndal, þegar Ásgeir var rekinn úr skóla og tafðist í námi. Við Ásgeir vorum félagar frá Bíldudal, þótt hann væri nú eldri. Allt þetta olli mér áhyggjum, en Páll Ólafsson (f. 1911), 1994), tannlæknir. verkfræðingur. Rafn Jónsson (1911-

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.