Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1996, Qupperneq 26
24
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82/FYLGIRIT 31
E-23. Spirometric values in obese
individuals are different in sitting
and standing position
Gunnar Guðmundsson, Melba Cerveney, D Michael
Shasby
Division of Pulmonary, Critical Care and Occupa-
tional Medicine, University of Iowa College of
Medicine, Iowa City, Iowa, USA
Obesity is an increasing health problem in the
United States and around the world. In the normal
population there is not a significant difference in
spirometric values between sitting and standing
position. It is not known if this is also true for obese
individuals. We therefore performed a study in
which we compared sitting and standingspirometric
values in obese individuals. Patients with a body
mass index of 5=30, that were referred for spiromet-
ry at the Pulmonary Function Laboratory at our
institution, were invited to participate. All tests
were done according to American Thoracic Society
recommendations, after bronchodilator administra-
tion. Coin toss was used to determine if the first
testing was done in a standing or sitting position. We
report results for 42 subjects. There were 26 females
and 16 males. Mean age was 46 years (SD 13.5). Age
range was 20-71 years. Average body mass index
was 39 (SD 7.2), with a range from 31 to 65. Sixteen
did the first testing in the sitting position and 26
[HHljstanding. FVC was greater in the standing
versus the sitting position (Wilcoxen, p<0.05).
There was no difference noted for FEVl. Our con-
clusion is that spirometric measurements are af-
fected by body position in obese individuals.
E-24. Geðræn flog
Köst af geðrænum toga sem oft eru
misgreind sem flogaveiki
Elías Ólafsson, Katrín Sigurðardóttir
Frá taugalœkningadeild Landspítalans
Inngangur: Geðræn flog eru algeng sjúkdóms-
mynd (pseudoseizures, psychogenic seizures, hyst-
erical seizures, non-epileptic events) sem oft er
ranglega greind sem raunveruieg flog. Tíðni geð-
rænna floga er óþekkt. Giskað er á að um 5% floga-
veikra fái geðræn flog. Greining geðrænna floga
byggir á dæmigerðum einkennum og eðlilegu heila-
riti meðan á kasti stendur. Heilasíriti (long term
video/EEG monitoring) er gagnlegasta hjálpartækið
við greiningu geðrænna floga og þar er skráð sam-
tímis heilarit og myndbandsupptaka af köstum sjúk-
lings.
Efniviður: Sjúklingar rannsakaðir með heilasírita
á taugalækningadeild Landspítalans á árunum 1992-
1995.
Niðurstöður: Á rannsóknartímanum voru fram-
kvæmdar 133 heilasíritarannsóknir. Fimmtán ein-
staklingar reyndust hafa geðræn flog, þar af höfðu 11
eingöngu geðræn flog en fjórir reyndust hafa bland-
aða mynd það er bæði geðræn flog og flogaveiki.
Flestir höfðu dæmigerð einkennni (ósamhæfðar út-
limahreyfingar, langvarandi meðvitundarleysi og
svo framvegis). Þeir sjúklingar sem voru nýlega byrj-
aðir að fá einkenni svöruðu meðferð vel.
Umræða: Geðræn flog eru mikilvæg sjúkdóms-
mynd sem oft er ranglega greind sem flogaveiki.
Rétt greining er mikilvæg meðal annars vegna þess
að meðferð með flogalyfjum á ekki við. Meðferðin
sem er fyrst og fremst geðræn og grundvallast á því
að geðræn flog séu ómeðvituð. Horfur er hvað best-
ar sé sjúklingur ungur, einkenni hafi staðið stutt og
ekki sé um persónuleikatruflun eða aðra geðræna
sjúkdóma að ræða. Mikilvægasta skrefið í greiningu
er að muna eftir tilvist geðrænna floga og vera á
varðbergi gagnvart þeim hjá öllum flogaveikum sem
ekki svara meðferð.
E-25. Wada próf
Elías Ólafsson*, Sigurjón B. Stefánsson**, Ólafur
Kjartansson***
Frá *taugalœkningadeild Landspítalans, **Trygg-
ingastofnun ríkisins, ***röntgendeild Landspítalans
Inngangur: Wada prófi eða amytal prófi var fyrst
lýst af J. Wada árið 1949. Rannsóknin byggir á því að
skerða tímabundið starfsemi hvors heilahvels um sig
með intraarterial inndælingu á stuttverkandi barbi-
túrati. Tilgangur rannsóknarinnar er annars vegar
að ákvarða hvort heilahvelið er talandi og hins vegar
að meta skammtíma minni í hvoru gagnaugablaði
(temporal lobus) fyrir sig. Wada prófið er fyrst og
fremst notað til að rannsaka sjúklinga með temporal
lobe -flogaveiki þegar skurðaðgerð (temporal
lobectomia) er fyrirhuguð og er einnig gagnlegt
þegar aðrar tegundir heilaaðgerða eru fyrirhugaðar.
Efniviður og aðferðir: Fimm sjúklingar hafa verið
rannsakaðir á Landspítalanum á þessu ári. Fjórir
þeirra eru með temporal lobe flogaveiki og hafa
upptök floganna þegar verið staðsett með heilasí-
rita. Líklegt er að þessir sjúklingar muni svara vel
skurðaðgerð (temporal lobectomia) og því er amytal
prófið framkvæmt. Einn sjúklingurinn er með arter-
iovenous malformation í hægra heilahveli og prófið
er gert til að ákvarða hvort heilavelið er talandi.
Framkvæmd Wada prófs er svipuð og æðamynda-
taka af höfði. Áhrif lyfsins standa í tvær til sex mín-
útur og koma fram sem helftarlömun og málstol
þegar um talandi heilahvelið er að ræða. Notað er
sérhæft próf sem metur tungumál og skammtíma-
minni og er það lagt fyrir sjúklinginn á meðan áhrifin
vara. Hvort heilahvel fyrir sig er prófað og stendur
rannsóknin í alls um hálfa aðra klukkustund. Reglu-
bundin notkun prófsins hófst á Landspítalanum á
þessu ári.