Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1996, Síða 39

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1996, Síða 39
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82/FYLGIRIT 31 35 E-49. Advanced cardiac life support in the prehospital setting 1991-1994, the Reykjavík experience Garðar Sigurðssonjr, TorfiF. Jónasson, Gestur Þor- geirsson From Dpts of Medicine and Cardiology, Reykjavík Hospital, Reykjavík Since 1982 an emergency ambulance manned by a physician has been operated in Reykjavík (popula- tion 120.000). The physicians have followed guide- lines from The American Heart Association. The purpose of this study was to evaluate the results of the Advanced Cardiac Life Support (ACLS) service 1991-1994 and to compare the survival rates before and after the changes in the 1986 The American Heart Association’s guidelines. The data was collected prospectively according to the „Utstein Style" form. From 1991-1994 there were 220 attempted resus- citations after sudden cardiopulmonary arrest from cardiac causes. Mean age was 67 years and the male:female ratio was 168:52. The mean response time was 4.6 min. Seventy-six (35%) patients were admitted to the intensive or cardiac care unit and 37 (17%) survived to be discharged from the hospital. Ventricular fibrillation was the most common initial rhythm, seen in 109 (50%) patients, asystole in 74 (34%) and other arrhythmias (EMD, agonal) in 37 (17%). Thirty patients (28%) with ventricular fibril- lation survived to be discharged from the hospital, three (4%) patients with asystole and four (11%) with other arrhythmias. There is no stastitical differ- ence in mean response time and survival rates between this study and a previous study from 1982- 1986 (1). We conclude that the results of ACLS outside the hospital in Reykjavík and surrounding area is acceptable. Changes in ACLS guidelines do not appear to have increased survival in patients who have arrested outside the hospital in our area since 1982. Ref: 1. Einarsson O. Jakobsson F, Sigurdsson G. Advanced cardiac life support in the prehospital setting: the Reykjavik experience. J Int Med 1989; 225: 129-35. E-50. Breytileiki í hjartslætti eftir hjartadrep Hlíf Steingrímsdóttir, Gizur Gottskálksson, Margrét Vigfúsdóttir, Steinunn Kolbrún Egilsdóttir, Valborg Þorleifsdóttir Frá Sjúkrahúsi Reykjavíkur Inngangur: Breytileiki í hjartslætti minnkar eftir hjartadrep og er það sjálfstæður áhættuþáttur fyrir skyndidauða og illvígar hjartsláttartruflanir frá slegl- um. Með þessari rannsókn athugum við hvort mark- tæk aukning verði á breytileika í hjartslætti að með- altali ári eftir hjartaáfall. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var framvirk og stóð í tvö ár. Sjúklingar sem lögðust inn með hjartadrep á hjartadeild Borgarspítala á tímabilinu 1.11. 1993-1.3. 1994 voru rannsakaðir. Voru það 32 sjúklingar, 27 karlar og fimm konur. Meðalaldur var 64 ár. Var notað tölvustýrt Holter kerfi sem reiknar út St.Georgs hlutfallstölu sem er mælikvarði á breytileikann. Hækkar St.G hlutfallstalan með auknum breytileika í hjartslætti. Viku eftir hjarta- drepið var gerð 24 tíma hjartalínuritsskráning St. G1 reiknaður út, var þetta endurtekið að meðaltali 12 mánuðum síðar og St.G2 fenginn á sama hátt. Niðurstöður: Meðaltal St.G gilda úr fyrri Holter rannsókninni (St.Gl) var borið saman við meðaltal St.G gilda úr seinni rannsókninni (St.G2) og var sá munur marktækur (p<0,001) sem sýnir að bati virð- ist eiga sér stað á þessu ári eftir hjartadrepið og líkurnar á skyndidauða því minni. Ef hópnum er skipt eftir staðsetningu drepsins má sjá marktækan mun á aukningu í breytileika bæði hjá þeim sem fengu framveggsdrep og þeim sem fengu undir- veggsdrep. Þegar upphafs- St.G gildi einstakra und- irhópa voru borin saman reyndist ekki marktækur munur á St.Gl þeirra sem fengu framveggsdrep eða undirveggsdrep, streptókínasa eða ekki streptókín- asa, gegndræpt eða ógegndræpt drep og B-blokkara eða ekki B-blokkara. Meðaltal St.Gl gilda sjúklinga undir 65 ára reyndist 18,41 en þeirra sem eldri voru 12,39 og er þessi munur marktækur (p<0,01). Ekki virðist þó vera munur á bata sjúklinganna eftir aldri þ.e. munur á aukningunni úr St.Gl i St.G2 er ekki marktækur. Umræða: Breytileiki í hjartslætti er sterkur spá- þáttur sem segir til um líkur á skyndidauða og illvíg- um hjartsláttartruflunum frá sleglum eftir hjarta- drep. Þessi rannsókn sýnir aftur á móti að sú minnk- un sem verður á hjartsláttarbreytileikanum eftir hjartadrep gengur að miklu leyti til baka á fyrsta árinu eftir áfallið. E-51. Tíðni kransæðastíflu hjá konum, kvennarannsókn Hjartaverndar Lilja Sigrún Jónsdóttir*, Nikulás Sigfússon*, Guð- mundur Þorgeirsson**, Helgi Sigvaldason* Frá *Rannsóknarstöð Hjartaverndar, **lyflœkn- ingadeild Landspítalans Takmarkaðar rannsóknir hafa farið fram á tíðni kransæðasjúkdóms hjá konum. Hér er lýst rannsókn á alvarlegasta formi hans, kransæðastíflu. Könnuð er þögul og þekkt kransæðastífla meðal íslenskra kvenna, nýgengi, algengi og þróun. Efniviður: Þátttakendur eru 9773 konur úr hóp- rannsókn Hjartaverndar, fæddar 1908-1935 sem
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.