Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1996, Qupperneq 46
42
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82/FYLGIRIT 31
í ljós komu sjö æxli 1992,121993 og 131994. Sömu
ár voru tvö æxli tekin með aðgerð 1992, sex árið 1993
og sjö árið 1994.
Með samlagningu fæst að 49 æxli voru greind
1992-1995 og 25 þeirra tekin með aðgerð.
E-65. Ofstarfsemi kalkkirtla í
íslenskum konum
Hóprannsókn á einstaklingum 30-70
ára
Ari Jóhannesson, Porvaldur V. Guðmundsson
Frá lyflœkningadeild Sjúkrahúss Akraness, rann-
sóknadeild Landspítalans
Ofstarfsemi kalkkirtla (primer hyperparathyroid-
ismus) er samkvæmt nýlegum erlendum rannsókn-
um mun algengari en áður var talið. Litróf sjúk-
dómsins er breitt, en meirihluti sjúklinga með væg
einkenni. Flestir sjúklingar eru miðaldra og eldri
konur. Rétt þótti að kanna algengi sjúkdómsins
meðal íslenskra kvenna á þeim aldri.
Níu hundruð níutíu og níu konur á aldrinum 39-80
ára (meðalaldur 52,5 ár) komu í leitarstöð Krabba-
meinsfélags fslands á tímabilinu júní 1994 til febrúar
1995. Mældur var sermisstyrkur kalsíums. Væri
hækkun á kalsíumi í sermi var viðkomandi einstak-
lingur kallaður til blóðtöku að nýju. Væri kalsíum
enn hækkað var mældur sermisstyrkur parathyroi-
dea hormóns (intact PTH). Væru að minnsta kosti
tvær kalsíummælingar hækkaðar og PTH við efri
mörk eða greinilega hækkað taldist einstaklingur
vera með ofstarfsemi í kalkkirtlum (primer hyper-
parathyroidismus).
Meðalstyrkur kalsíums í sermi var 2,42 mmól/L.
Lægsta gildi var 2,09 og hæsta gildi 3,04. Tuttugu
konur (2,0%) mældust með hækkaðan sermisstyrk
kalsíums á bilinu 2,64-3,04. Blóðtaka og kalsíum-
mæling var endurtekin hjá 19 þeirra. Eftir það voru
sjö sjúklingar með viðvarandi hækkun á kalsíumi í
sermi. Hjá öllum þessum konum hefur PTH mælst
hækkað (sex konur) eða við efri mörk (ein kona).
Þær teljast allar hafa ofstarfsemi í kalkkirtlum (al-
gengi 0,7%).
A sama tíma, eða janúar til febrúar 1994, var sams
konar en sjálfstæð rannsókn gerð á 100 kvenna hópi
á Akranesi, 30-70 ára, er voru hluti af úrtaki vegna
rannsóknar á algengi Gilberts sjúkdóms á íslandi.
Sömu skilmerki voru notuð og í framangreindri
rannsókn. Fimm konur reyndust hafa hækkað serm-
iskalk. Mælingin var endurtekin hjá fjórum og sátu
þá tvær eftir með viðvarandi hækkun (2%).
Önnur hefur greinst með hækkað PTH en niður-
stöður fyrir hina hafa enn ekki borist.
Af rannsókn þessari má ráða að algengi ofstarf-
semi kalkkirtla meðal íslenskra kvenna á aldrinum
30-70 ára sé á bilinu 0,7-0,8%. Ofstarfsemi kalk-
kirtla telst því vera algengur efnaskiptasjúkdómur
meðal íslenskra kvenna.
E-66. Algengi ofstarfsemi í
skjaldkirtli sjúklinga með gáttatif
Sigurður Ólafsson, Uggi Agnarsson, Ari Jóhannesson
Frá lyflœkningadeild Sjúkrahúss Akraness
Inngangur: Gáttatif (atrial fibrillation) er algengt
vandamál, einkum meðal aldraðra. Flestir hafa ein-
hvern grunnsjúkdóm í hjarta eða æðakerfi en of-
starfsemi í skjaldkirtli er einnig þekkt orsök. Er-
lendar rannsóknir hafa sýnt þennan kvilla hjá 3-
25% sjúklinga með gáttatif. Tilgangur rannsóknar-
innar var að athuga algengi ofstarfsemi í skjaldkirtli
meðal sjúklinga sem leggjast inn á lyflækningadeild
og hafa gáttatif.
Aðferðir: í afturvirkum hluta rannsóknar var afl-
að upplýsinga um skjaldkirtilspróf og grunnsjúk-
dóma hjá öllum sjúklingum sem legið höfðu á lyf-
lækningadeild og fengið útskriftargreininguna gátta-
tif á árunum 1993 og 1994. Framvirkur hluti náði til
allra sjúklinga með gáttatif á lyflækningadeild á
tímabilinu l.apríl 1995-31. mars 1996. Mælt var TSH
og T4 i sermi. Einnig voru skráðir þekktir grunn-
sjúkdómar.
Niðurstöður: Fjöldi sjúklinga var 112 (52 í aftur-
virkum hluta, 60 í framvirkum). Konur voru 43
(38,4%), karlar 69 (61,6%). Niðurstöður úr skjald-
kirtilsprófum fcngust hjá 83 sjúklingum. Meðalaldur
þeirra var 73,6 ár (28-94). Skjaldkirtilspróf voru
afbrigðileg hjá fjórum af 46 körlum (8,7%) og 13 af
37 konum (35%). Níu höfðu einangraða TSH hækk-
un, fjórir einangraða TSH lækkun, einn vanstarf-
semi í skjaldkirtli og þrír önnur afbrigði. Sem grunn-
sjúkdóm höfðu 58 af 112 háþrýsting (52%), 32 krans-
æðasjúkdóm (28,6%) og 13 lokusjúkdóm (11,6%).
Hjá 22 sjúklingum (19,6%) fannst engin ákveðin
orsök gáttatifs.
Ályktanir: 1. Ofstarfsemi í skjaldkirtli er sjaldgæf
orsök gáttatifs hjá sjúklingum á lyflækningadeild. 2.
Ósértæk brenglun á skjaldkirtilsprófum er algeng
hjá þessum sjúklingum, líklegast vegna áhrifa sjúk-
dóma utan skjaldkirtils eða lyfja. 3. Háþrýstingur,
kransæða- og lokusjúkdómar eru algengustu orsakir
gáttatifs í þessum hópi sjúklinga.
E-67. Mismikil beinþynning í hrygg
og lærleggshálsi
Þess vegna æskilegt að mæla
beinmassa á báðum stöðunum
Gunnar Sigurðsson, Díana Óskarsdóttir
Frá lyflœkningadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur
Inngangur: Beinmassamælingar í lendaliðbolum
og Iærleggshálsi hafa reynst hafa verulegt forspár-
gildi um beinbrot á þessum stöðum. Tilgangur þess-
arar rannsóknar var að kanna hversu vel mæling á
öðrum staðnum segði til um beinmagn á hinum
staðnum í áhættuhópi íslenskra kvenna.
Aðferðir og þýði: Beinmagn („bone mineral