Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1931, Blaðsíða 18
416
Ráðstafanir gegn kreppunni.
[Stefnir
um all-langt skeið, og leggur hún
einróma til, að tillögur Hoovers
nái fram að ganga.
Garrard Winston, sérfræðingur
frá Bandaríkjunum, hefir látið í
Ijós þá skoðun sína, að nauðsynlegt
sé, að tvennt verði tryggt, þegar
tillögur um viðreisn fjárhags
Þýzkalands verði lagðar fram.
1. Að útvegað verði rekstrar-
lán fyrir þýzkan iðnað, og að það
verði veitt til langs tíma, þannig,
að öll þau lán, sem fengist hafa um
skamma hríð, verði greidd að fullu
án þess að það hafi nokkur áhrif
á framleiðsluna.
2. Að haldið verði áfram
skaðabótagreiðslum og þeim end-
urbótum, sem ófriðarþjóðirnar
eiga að inna af hendi samkvæmt
friðarsamningunum, þó þannig, að
með því verði fjárhag Þýzkalands
ekki ofboðið.
Allt til þessa hafa Þjóðverjar
aðeins fengið lán til skamms tíma,
sökum þess, að ástandið þar hefir
verið svo tvísýnt að þjóðirnar hafa
ekki þorað að hætta fé sínu til
þeirra, með því að veita þeim lán
um langt árabil. Þetta hefir aftur
haft þær afleiðingar, að krafizt
hefir verið greiðslu á lánum þess-
um strax og að hefir kreppt á póli-
tíska sviðinu eða í fjármálunum.
Fé þetta hefir auðvitað verið not-
að eins og fastur fjárstofn til iðn-
aðar og framleiðslu og verið bund-
ið þar, þannig, að tregt hefir geng-
ið með endurgreiðslurnar.
Til þess að þýzkur iðnaður geti
þrifist, verður hann því að fá föst
lán til langs tíma, en hvernig fást
þau ? Þýzk iðnaðarfyrirtæki mynda
með sér félagsskap, og gefa út
skuldabréf, sem þau sameiginlega
eru ábyrg fyrir, til að útvega rekst-
ursféð. Þýzka stjórnin kaupir þessi
skuldabréf fyrir það fé, sem fæst
inn í sköttum og tollum, en afhend-
ir þau síðan til þeirra ríkja, sem
Þýzkaland á að greiða skaðabætur
og ófriðarskuldir, sem fullnæg'
ingu þeirra greiðsla. Stjórnirnar
annast síðan sölu á þessum skulda-
bréfum og annast þær endurbætur,
sem gera á. Með þessu móti vinnst
þetta:
1. Þýzkur iðnaður fær föst lán
til langs tíma í stað lausu lánanna,
og nær því eðlilegri þróun.
2. Afborganir verða ekki svo
tilfinnanlegar, að það hái iðnað-
inum.
3. Skuldhafar fá greiðslu frá
Þýzkalandi, sem þeir geta tekið
góða og gilda, og öllum skilyrðum.
verður fullnægt til hlítar.