Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1931, Blaðsíða 72
470
tóbaksverði. En sé tóbaksverðið
hækkað, þá má alveg eins ná
auknum tekjum með tollhækkun.
Þetta munu nú flestir kannast
við í hjarta sínu. En það er búið
að gala svo mikið í blöðum og á
fundum og þingum um þetta,
að mennirnir geta ekki snúið aft-
ur.
Frumvarpið kom fram í Ed.
(Jón Baldvinsson) og fór fram
á að einoka bæði tóbak og eld-
spýtur. Megin breytingarnar sem
gerðar voru á því, voru tvær:
Að taka eldspýturnar frá (til-
laga Páls Hermannssonar) og að
taka tekjurnar af einkasölunni
til ákveðinnar notkunar, sem sé
að hálfu til hvors, verkamanna-
bústaða og byggingar og land-
námssjóðs. — Aftur á móti var
felld tillaga frá Jóni Þorlákssyni
um það, að reisa rammar skorður
við því, að forstjórar tæki um-
boðslaun eða þóknun í nokkurri
mynd, frá þeim sem einkasalan
verzlar við, svo og till. í Nd. frá
Magnúsi Jónssyni um að fresta
einkasölunni um eitt ár, og einn-
ig tillaga frá sama um það, að
verzlunin skyldi jafnan hafa á
boðstólum svo fjölbreytt úrVal
af vörum að fullnægði sanngjörn-
um kröfum neytenda(!)
Sennilega má telja þessi lög
[Stefnir
nokkurskonar skattgreiðslu til
sósialista.
Um bankamálin
voru afgreidd nokkur lög, og
þó að engin þeirra væri sérlega
stórvægileg, voru þau þó alls eigi
með öllu ómerk, og sýna meðai
annars sum, hvernig rök Sjálf-
stæðismanna hafa sigrað í reynd-
inni þó að borin hafi verið of-
urliði á þingi fram að þessu.
Fyrst má þá nefna lög um
Ríkisveðbanka íslands. Stofnun
þessi á að hafa það hlutverk, að
kaupa veðdeildarbréf Lands-
bankans og Búnaðarbankans, og
afla sér fjár til þess með því að
gefa sjálf út skuldabréf, sem hún
setur á markað erlendis. Bréf
þessi eru tryggð með þeim eign-
um, sem bankinn hefir, sem er
veðdeildarbréf tryggð með L
veðrétti í fasteignum og trygg'-
ingarsjóður og svo með ríkis-
ábyrgð. Með þessum trygginguxn
eiga bréfin að vera útgengileg-
En auk þess má gefa bréf þessi
út í erlendri mynt jafnframt ís-
lenzkri, og gerir það bréfin út-
gengilegri og tryggari fyrir kaup
endur, sem ekki treysta íslenzka
gjaldeyrinum.
Hingað til hefir veðdeildinni
verið aflað fjár með lántökum
Frá Alþingi.