Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1931, Blaðsíða 58
456
Neyðaróp frá Rússlandi.
[iStefnir
ætti að lýsa allri þeirri eymd, sem
komið hefir yfir kirkju vora. Já,
stjórn yðar er ógnaröld, sem lengi
mun í minnum höfð, sem máir
burt Guðsmyndina, en setur mynd
dýrsins í staðinn'(Op. 13.14; 15,
2). Nú rætast orð spámannsins,
er hann segir: „Fætur þeirra eru
skjótir til ills og fljótir til að út-
hella saklausu blóði; ráðagerðir
þeirra eru skaðræðisráðagerðir,
eyðing og tortíming er á vegum
þeirra. (Jes. 59,7). Vér vitum, að
yfirlýsing vor vekur reiði og hat-
ur gegn oss, og þér munuð nota
tækifærið til að ásaka oss um mót-
þróa gegn yfirvöldunum. En því
meira reiðinnar athæfi er á ykkar
vegum, því skýrar sannast ásak-
anir vorar. .... Og allt það rétt-
láta blóð, sem þið hafið úthellt,
mun koma yfir yður. (Matt. 23,
35; Lúk. 11,50), og allir þeir, sem
grípa til sverðs, munu falla fyrir
sverði (Matt. 26,52).“
Þetta bréf biskupsins vakti auð-
vitað ákafa reiði, og hatrið óx
enn meir — og nú fyrst byrjaði
hin ægilega ofsókn, sem stendur
sízt að baki ofsóknunum á hend-
ur frumkristninni. — Engin orð
fá lýst þeirri djöfullegu grimmd
og æðisgengna hatri, sem komið
hefir fram í þessum ofsóknum.
Oft er erfitt að gera sér grein
fyrir einstökum staðreyndum, og
verður varla greint milli einstakra
atriða, því að allt er hulið morð-
og blóðþoku, svo að maður verð-
ur beinlínis lamaður af skelfingu,
er maður sér það og heyrir neyð-
aróp hinnar þrautpíndu þjóðar.
Fyrstgerði „stjórnin" allar stór-
eignir kirkjunnar upptækar, og
síðan var skríllinn æstur upp, og
réðst hann þá á kirkjurnar og
allt, sem þeim tilheyrði og lét
greipar sópa um allt verðmæti, án
þess að yfirvöldin reyndu nokkuð
til að hindra það. — Fjárhags-
tjón kirkjunnar vegna þessara að-
fara yfirvaldanna og múgsins,
verður aldrei metið til fulls. —
„Burt með prestana! Drepið prest-
ana!“ kvað við um þvert og endi-
langt landið. Enga sök þurfti að
sanna á þá, það var nóg sök, að
þeir voru prestar. Þegar dr. Ar-
seny, erkibiskup í Nowgorod, var
ákærður og stefnt fyrir dómstól-
ana, og ekkert upplýstist við hina
opinberu yfirheyrslu, sem sann-
aði sekt hans, þá spurði hann:
„Hvers vegna haldið þið áfram að
ofsækja mig?“ „Af því að þú ert
til“, var svarið. — Hinar komm-
únistisku morðsveitir voru sendar
í allar áttir, til þess að ná sér
niðri á „auðvaldinu“, prestunum-
Einn sveitarforingi, að nafni Kus-