Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1931, Page 65
Stefnir]
Neyðaróp frá Rússlandi.
463
hengi, þá er það notað, annars
verða menn að láta sér nægja, að
leggja fjöl yfir mitt gólfið, eða
setja strik þvert yfir. Oft verða
fjórar til fimm fjölskyldur að
nota sama eldhúsið. Það má nærri
geta um samlyndið í þeirri kös.
Enda segja kommúnistablöðin frá
því, að stundum gangi það svo
langt, að 5—6 húsmæður, sem
eigi að nota sömu eldavélina,
hræki í pottana hver hjá annari
af öfund og illgirni, og þess vegna
hafi þær allt af bundið lokið á
pottunum. — Auðvitað á sér ekk-
ert heimilislíf stað undir þessum
kringumstæðum. Það er eins og
Þ. E. segir: „bölvandi, þrýstandi,
kveinandi kös“, þar sem enginn
er öruggur fyrir njósnurum og
ruddalegum varmennum. Þar get-
ur enginn varið börn sín fyrir
skaðlegum áhrifum dýrslegs sið-
Jeysis, né heldur konur sínar fyr-
ir ósvífnu orðbragði siðspilltra
^ianna. — Þessi upplausn heimil-
auna kórónast svo af áhrifum
l^eim, sem kommúnistar hafa á
karnssálirnar. Bucharin sagði frá
l)Ví mjög fagnandi á 13. „Kon-
&ressi“ kommúnista, að það væri
gleðilegt, að sjá hvernig börnin
riSu upp gegn foreldrum sínum í
Msundatali. „Börnin hlaupast á
brott frá foreldrum sínum, fara
ekki í kirkju, njósna um foreldra
sína, ákæra þá og neyða þá til að
ganga í kommúnistaflokkinn".
Siðspillingin hefir einnig náð
föstum tökum á börnunum. —
„Drengir og telpur eru jafnófeim-
in að hafa samfarir eins og að
drekka glas af vatni“.
Enn skal minnst á eitt, áður en
þessari harmafrásögn er lokið.
Vegna brottrekstrar, eymdar,
borgarstyrjaldar, hungurs, far-
sótta og þó einkum upplausnar
hjónabandsins og heimilanna, hef-
ir myndast sérstök þjóðfélagsstétt
í Rússlandi, og það er vanrækt
börn. Miljónir þessara ólánssömu
píslarvotta flækjast um landið all-
an ársins hring, munaðarlaus, hús-
næðislaus, hálfnakin, skítug, lús-
ug, siðspillt, haldin kynsjúkdóm-
um og forfallin af kókaínnautn.
Þau draga fram lífið á betli,
þjófnaði og ránskap. Allt saman
drengir og telpur á aldrinum fr—
18 ára. Ráðstjórnin stendur alveg
máttvana gagnvart þessu. Þau
deyja af eymd og volæði — en á-
valt koma ný í skarðið. Bucharin
segir sjálfur, að tala þessara
barna sé „risavaxin". örlítill hluti
þessara vesalinga eru sett á kom-
múnistabarnahæli, framtíðarpara-
dís bamanna í hinu kommúnist-
iska þjóðfélagi. Um þessi barna-